Vikan


Vikan - 11.06.1964, Blaðsíða 2

Vikan - 11.06.1964, Blaðsíða 2
ER lk at*y< **GINg FERÐATRYGGINGAR okkar tryggja yður fyrir alls konar slysum, greiða sjúkrakostnað yðar, greiða yður dagpeninga verðið þér óvinnufær svo og örorkubætur, ennfremur mun fjölskyldu yðar greiddar dánarbætur. FERÐATRYGGINGAR okkar eru mjög ódýrar, t. d. er iðgjald fyrir 100.000,00 króna tryggingu, hvemig sem þér ferðist innan lands eða utan i hálfan mánuð AÐEINS KR. 87,00 ’*s V, 1 í fullri alvöru: Ekki fipast oss jafnvægið SAMVfNJNUTRYGGINGAR Á einum stað þar sem ísland teygir sig norður i íshafið, verð- ur grýtt og veðurbarið nes, sem hallar til norðurs og vesturs. Þar er enn húið á vorum dög- um, en þeir bæir eru í ætt við melablómin á hálendinu; þau skrimta og hjara þrátt fyrir liarðindin. Ég las það i einni ágætri bók, að víðast eru 4 kýr á bæjum þarna og 100—150 kindur. Það er líka auðvelt að sjá það af túnstærðinni, að bú- in niuni ekki stór og húsakost- urinn vitnar um afkomuna. Þó mun fólk hafa þarna einhverjar aukatekjur af sjó. En sjálft nes- ið er víðast trauðla byggilegt og margir undrast það, að þar skuli búið á miðri tuttugustu öld, þegar enn eru óbyggðir víð- feðmir flákar þesa lands, mun frjórri og byggilegri en þetta út- nes. Samt hefur þetta nes lafað í byggð, hvort lieldur það er vegna átthagaástar ábúendanna eða tilkomið af þeirri rauna- legu staðreynd, að þeir losni ekki við jarðir sínar fyrir við- unandi verð. Nýlega var frá þvi skýrt í fréttum, að kotbýlin á nesi þessu lxefðu fengið rafmagn; það hafði verið tengd raflína allar götur norður á nyrsta oddann. Hvað jxetta ævintýri kostaði á hvert býli, var ekki nefnt. Þetta er allt saman þeim mun skringi- legra sem blómlegar byggðir í nánd við meginrafvirkjanir sunnanlands lxafa enn ekkert rafmagn fengið. Það eru þó byggðir, senx flestir eru saxxx- mála um að eigi framtíð fyrir sér, verði landbúixaði haldið á- fram á íslandi. Hins vegar stend- ur það framförum fyrir þrifum i þessum sveituni, að þær eru látnar bíða, meðan annesjakjós- endurnir fá sitt. í þessunx sveit- um er víðast allmikil mjólkur- framleiðsla jafnframt sauðfjár- búskap og bústærð allt að því að vera þrefalt stærra en á ná- lega túnlausum smábýlum á harðbýlum útnesjunx. Sú saga verður fleyg, að vest- firzkur kjósandi notaði lxarð- fylginn og áhrifamikinn þing- mann til að teygja veg fyrir Framliald á bls. 50.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.