Vikan - 11.06.1964, Blaðsíða 32
- G Rl LL -
Grillsteikt kjöt er ljúffengt. Þegar steikt er í grillofni, myndast þegar í
upphafi þunn — og ljúffeng — skorpa, sem síðan hindrar þornun kjötsins
við steikinguna. Kjötið heldur þannig safa sínum og bragði óskertu — og
húsmæðurnar losna við hvimleiða steikarbræluna. Infra-rauðu geislarnir
fara gegnum kjötið, sem verður sérstaklega mjúkt og bragðgott.
Við steikinguna bráðnar fitan á kjötinu og drýpur af. Hana má svo nota
með kjötinu, ef vill, því að hún er einnig bragðmikil og Ijúffeng, en sós-
ur þarf ekki að búa til, nema þeirra sé sérstaklega óskað, enda verður
þeirra vart saknað, þar sem grillsteikt kjöt er svo safaríkt og bragðgott.
Hvað er hægt að grillsteikja? Flest kjötmeti er bezt grillsteikt, bæði hrygg-
ur, læri og aðrir stórir bitar, þykkar og þunnar sneiðar, kótelettur, smá-
bitar, pylsur o.s.frv. Grillsteiktir fuglar, svo sem kjúklingar, endur o.fl.
eru kræsingar. Fiskur er góður grillsteiktur. Enfremur alls konar smárétt-
ir úr kjöti, fiski, grænmeti, ávöxtum, brauði, ostum o. fl.
Grillofninn býður marga kosti: Grillsteiktur matur er hollari, þar sem hann
er fituminni og léttari. Langflestum finnst grillsteiktur matur mun ljúf-
fengari. Grillofn er auðveldur og hreinlegur í notkun. Húsmæður losna við
steikarbræluna og þurfa lítið sem ekkert að fylgjast með steikingunni,
því að í flestum tilfellum er steikt á teini, sem innbyggður mótor snýr með
jöfnum hraða, svo að engin hætta er á, að maturinn brenni við. Mörg
hjálpartæki fylgja, þannig að hægt er að steikja mæði stór, smá, þunn og
þykk stykki á teinum eða sérstökum grindum. GRILLFIX grillofnarnir eru
opnanlegir að ofan. Þar er laus panna, sem hægt er að steikja á eða nota
sem hitaplötu til þess a.ð halda mat heitum. GRILLFIX grillofnarnir eru
ennfremur búnir þrískiptum hitarofa, sjálfvirkum klukkurofa, innbyggðu
Ijósi og öryggislampa. Allt þetta miðar að því að gera húsmóðurinni steik-
inguna sem þægilegasta. Og ekki má gleyma því, að grillofn þarf ekki
nauðsynlega að vera ætíð staðsettur í eldhúsinu. Hann er léttur og brælu-
laus, svo að tilvalið og skemmtilegt getur verið að nota hann í borðstofunni
eða jafnvel úti á svölum eða í garðinum, þegar það hentar og húsmóðirin
vill gjarna vera í návist heimilisfólksins eða gestanna.
O. KORHLERU P-HAMSEM F
SÍMI 12606 -SUÐURGÖTU 10 REYKJAVÍK
Sendið undirrit. nánari upplýsingar (mynd, verð, greiðsluskilmála)
Nafn ..................................................................
Heimili ..............................................................
II
4
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
©Ilrútsmerkið (21. marz — 20. april);
Þú tekur þátt í stórri skemmtun, þar sem margir
félagar þínir eru samankomnir. Þú kynnist mörgu
nýju fólki og þreytir um skoðun á ákveðinni per-
sónu, sem þér hefur verið lítið gefið um. Þú verð-
ur störfum hlaðinn.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Þú gegnir starfi, sem veitir þér mikla ánægju og
sem þú, ef þú dregur ekki af þér, gætir komið þér
mjög vel fyrir í. Þú hefur verið mjög léttur í skapi
og bjartsýnn undanfarið, það er gott og blessað,
en þú mættir vera svolítið raunsærri.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Kunningi þinn veldur þér skaða sökum vangæzlu
sinnar. Þú skalt þrauthugsa ráðagerð þína áður en
þú nefnir hana við nokkurn mann. Þú verður fyr-
ir óvæntum truflunum af óviðkomandi persónu.
Þú skalt létta þér eitthvað upp.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Sennilega verður þú fyrir smá óþægindum vegna
sambýlisfólks þíns en þú skalt fyrir alla muni
ekki láta það á þig fá, þó þú sért dálítið illa
fyrirkallaður. Gamall skólafélagi býður þér með
sér í stutt ferðalag.
Ljónsmerkið (24. júli — 23. ágúst):
©Þú færð kærkomna gjöf frá persónu sem þú þekk-
ir lítillega. Beittu ölium brögðum til þess að ná
marki þínu, þér berst óvænt hjálp einhvers staðar
frá í því sambandi. Sinntu fjölskyldu þinni meira
en verið hefur og dveldu meira heima.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. septemher);
©Þú flækist inn í mál, sem er þér ógeðfellt, þú
sleppur óskaddaður ef þú gefur aldrei höggstað
á þér, og umfram allt sýndu háttprýði. Þú nærð
mjög góðum árangri í áhugamálum þínum. Kunningi
þinn skilar þér hlut, sem hann hefur lengi haft að láni.
Vogarmerkið (24. septembcr — 23. október):
Kunningi þinn fær gott atvinnutilboð, sem verður
® vissan hátt þér til ábata. Þú þarft að vera skjót-
ur að ákveða og snar í hugsun ef þú ætlar að af-
kasta verkefnum þínum á eins naumum tíma og
þú hefur skammtað þér.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Þú lendir í orðaskaki við vin þinn, þú skalt þó
ekki láta það standa á milli ykkar, því það er
báðum mikill hagnaður að vinátta ykkar haidist.
Einn fjölskyldumeðlimur þinn dvelur að heiman
um stundarsakir. Fylgstu vel með.
Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. descmber):
Þú skemmtir þér óvenjumikið og lifir hátt, gættu
þess vel, að þú verðir ekki flæktur inn í neitt
sem teljast má vafasamt. Verzlun og viðskipti eru
þér mjög óhagstæð. Gerðu boð fyrir kunningja þina
og haltu þeim smá veizlu.
Stcingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Þú skalt hressa upp á vin þinn, sem er mjög dauf-
ur í dálkinn og svartsýnn um þessar mundir. Þú
__ gerir það bezt með því, að gera hann að þátttak-
anda i ráðagerðum þínum. Þú hefur ábyrgðarmiklu
hlutverki að gegna, þú mátt ekkert slaka á.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar);
Þu ert óvenju uppstökkur og þarf lítið til að koma
þér úr jafnvægi. Nokkrir vinir þínir undrast yfir
þessu og þú verður að sýna þeim að þetta er að-
eins stundarfyrirbrigði. Þú skalt dvelja sem mest
heima í frístundum þínum.
©Fiskamerkið (20. fcbrúar — 20. marz):
Endurnýjaðu kunningsskap við félaga þinn, sem
þú vannst með fyrir skömmu. Þið eigið margt sam-
eiginlegt og vinátta ykkar gæti orðið varanleg.
Kunningjafólk þitt hefur orðið fyrir miklu tjóni,
reyndu hvað þú getur að rétta því hjálparhönd.
Til FÖNIX s.f., Suðurgötu 10, Keykjavik.