Vikan - 11.06.1964, Blaðsíða 7
bæði að aftan og framan í þeim,
sem ég prófaði. Hægt er að fá
,,bucket“ sæti að framan og
myndi ég telja það mun ráðlegra.
Drifskaftsstokkurinn er nokkuð
hár, en það er ekki frágangssök
að sitja yfir honum í aftursætinu,
a.m.k. ekki styttri leiðir. Að inn-
an er bíllinn látlaus og þokka-
legur, og sama er að segja um
útlitið, það er látlaust og þokka-
legt, og venst líklega vel.
Hurðirnar opnast ágætlega, og
læsingarnar eru í sérflokki. Það
þarf ekki annað en að anda á
hurðina, svo dyrnar lokist og
lokist vel. Yfirleitt virðist frá-
gangur vera allgóður, að svo
miklu leyti sem séð verður í
fljótu bragði. Hins vegar „heyr-
ist“ all mikið í veginum, og það
er alltaf til leiðinda.
Allir ljósarofar, og þeirra á
meðal stefnuljósarofi, eru á legg
vinstra megin út frá stýrisstöng.
Þessi frágangur leiðist mér held-
ur. Ekki hvað sízt, þar sem
stefnuljósarofinn er innar á
leggnum, og mér hættir til að
byrja á því að fálma í ökuljósa-
rofann. Á standard módelinu er
flautan yzt á þessari spíru, og er
það svo sem allt í lagi, þótt hring-
urinn sé alltaf þægilegri. Það er
sem sagt ekki mikið af takkadóti
í mælaborðinu, aðeins þurrka
með rúðupissi og innsog. Mæla-
borðið er einfalt og látlaust, með
eins litlu af mælum og hægt er
að komast af með, en hins vegar
vanalegum ljósagangi þess í stað.
Fyrir miðju eru miðstöðvarstill-
ingarnar, og virðist miðstöðin
vera fullboðleg. Þar til hliðar er
svo stór og góður öskubakki, og
aftur í eru smáöskubakkar á
óþægilegum stöðum í hliðunum.
Fjærst stýrinu í mælaborðinu er
svo hanzkahólf allgott, og undir
öllu saman hilla fyrir drasl og
dót.
Kistan er rúmgóð, en opnast
tæplega eins langt niður, eins og
æskilegt væri. Mér finnst kistur
helzt eiga að opnast svo, að ekki
sé nema í mesta lagi smá
þröskuldur aftur úr þeim. Vara-
hjólið er þar til hliðar hægra
megin og stendur upprétt, en
festingin er að neðan. Bera væri
að hafa hana að ofan, svo ekki
þurfi að rífa mikið út, til að ná
varahjólinu. Það virðist vera auð-
velt að komast að viðgerðum á
vélinni, það er vel frjálst í kring-
um hana.
Hæð undir lægsta punkt er
17,02 cm, en það segir ekki alla
söguna, því pannan er fremst, og
engin hlíf fyrir henni. Hins vegar
er hægt að fá gegn rúmlega 2
þúsund króna aukagjaldi hlífðar-
pönnu undir vélina og styrkta
dempara, og hygg ég það heilla-
ráð. Yfirleitt er hægt að fá ýmis-
legt viðbótarágæti gegn auka-
gjaldi, en ódýrasta gerð Corsair
kostar nú 175.500,00. Mér sýnist,
að með hæfilegum viðbótarút-
búnaði myndi maður sleppa með
að borga alls 186.980,00, en á
plagginu, sem ég fékk, stendur
að öll verð séu háð breytingum.
Þetta gæti sem sagt farið upp
í 187 þúsund.
Ég gef Corsair fimm stjömur.
Reynslan ræður, hvort þeim
fækkar eða fjölgar.
— s.
DHOBI
FRAKKINN ER
ENSK ÚRVALS-
FRAMLEIÐSLA
Framleiddur úr
Teryleneblöndu
og alullarefnum.
Margir litir og
gerSir.
ENSKIR
FRAKKAR
HERRADEILD
AUSTURSTRÆTl 14 - SÍMI 12345
LAUGAVEGI 95 - SÍMI 23862
VIKAN 24. tbl.
7