Vikan - 18.06.1964, Page 4
Við upphaf dægurlaga-
söngs
Það mun hafa verið rétt upþ úr
stríðsórunum, að dægurlagasöngur fór
að verða þekkt fyrirbrigði, en fram
að þeim tíma hafði landsfólkið
komizt af með svo sem eina harmoníku
ó böllum og þó þurfti engan
til að raula með. Svo þegar upp
hófust heilar hljómsveitir (hvað sum-
um þótti bruðl í meira lagi) þó
varð allt í einu að fó einhvern til að
syngja með og er nú ekki enn
séð fyrir endann ó þeirri
þróun. Líklega má teljd þær Sigrúnu
Guðmundsdóttur og Soffíu Karlsdóttur fyrstar dægurlagasöngkvenna. Hér á myndinni
er Soffía, en hún var mjög vinsæl og söng til dæmis „Það er draumur að vera
með dáta" eins og þeir muna, sem komnir eru til vits og ára.
Skólameisfarinn á unga aldri
Því miður hefur ekki tekizt að upplýsa, við hvaða tækifæri þessi mynd er
tekin, en þarna eru þrír menn um tvítugt: I miðið er Sigurður Guðmundsson, sem
síðar varð skólameistari á Akureyri og þjóðkunnur maður. Eins og sjá má af þessari
mynd, hefur sterkur svipur hans ótrúlega lítið breytzt með aldrinum. Til
vinstri er Guðmundur Bárðarson, jarðfræðingur og faðir Finns fuglafræðings. Til
hægri er Olafur Oddsson, Ijósmyndari í Reykjavík, faðir Odds Olafssonar, Ijósm.
Merkismenn á stúdenfsafmæli
Þeir komu saman árið 1928 til þess að minnast þess að þá voru liðin 25 ár
frá því er þeir urðu stúdentar frá Menntaskólanum í Reykjavík. Fremri röð frá vinstri:
Geir Zoega, vegamálastjóri, Olafur Þorsteinsson læknir, Gísli Sveinsson síðar
sendiherra, Konráð Stefánsson bóndi, kaupmaður o.fl. og Georg Olafs-
son bankastjóri. Aftari röð frá vinstri: Haraldur Sigurðsson verzlunarmaður, Guð-
mundur Oiafsson lögfræðingur, Vigfús Einarsson skrifstofustjóri, Guðmund-
ur Hannesson bæjarfógeti á Siglufirði og sr. Jóhann Briem frá Hruna, prestur á Mel-
stað. Þessir menn héldu hópinn og voru að minnsta kosti sumir óaðskiljanlegir
vinir alla ævi. — (Sendandi G.G.). 'O
— VIKAN 25. tbl.