Vikan - 18.06.1964, Síða 7
hjá ykkur, sérstaklega við póst-
inn. En ég ætla bara að taka það
fram, að ég hef engan áhuga á
starfinu og skammizt ykkar bara.
Svana.
Ekki má!
Elsku Vika!
Ég má ekki reykja. Við megum
ekki borga hangikjöt, ekki smjör-
líki, ekki borða reykta síld (eins
og hún er dásamleg). Alls ekki
keyra bíl, alls ekki kyssa karl-
mann, því síður lifa með honum.
Allt sem mér þykir bezt má ég
alls ekki — nema eiga á hættu
að fá krabbamein — allavega
styttist líf mitt þó ég aðeins geri
eitt af þessu. — Guð hjálpi mér
(þó þú sért ekki guð), hvað á ég
að gera?
--------Hefurðu heyrt söguna
um öndina, sem þurfti að fara
yfir lækinn?
Hún mátti ekki synda, ekki
fljúga, ekki kafa, ekki hoppa,
ekki fara yfir brú né bát, ekki
láta henda sér yfir og ekki fara
undir lækinn. Hvað gerði öndin?
Hún sagði: Mér er andskotans
sama hvað ég má —• ég syndi.
Postulafætur
Kæri Póstur!
Mig langaði að biðja þig að
útkljá deiluefni okkar hérna
tveggja félaga. Hann heldur því
fram að presturinn segi: „Takið
hinni kostulegu kveðju“, en ég
held að hann segi: „Takið hinni
kærkomnu kveðju“, eða eitthvað
þessháttar. Hvor hefur rétt fyrir
sér.
Fáfróður.
--------Þetta var kærkomið
bréf, Fáfróður minn, og kostu-
legt. Næst, þegar þú ferð í kirkju,
skaltu Ieggja eyrun vel við og
vita hvort þú skilur prestinn þinn
ekki betur. Reyndu að ímynda
þér að hann segi „postullegu",
og vittu hvort það getur ekki
passað.
Sigurðurfrá Brún hefur
oröið:
„Vikan“ hefur upp raust sína
á afmælisdag forseta ríkisins og
liggur í fullri alvöru heilvita
mönnum á hálsi fyrir að van-
treysta íslenzkri þjóð við að
standa af sér eftir þörfum það
af útlendum áhrifum, sem til
tjóns mætti leiða. Hefi|r ekki
einu sinni ritstjórinn hvað þá
annaðhvor heilahelmingur Jóns
Kára heyrt getið um þjóðveldis-
tímabil, hrun þess og glötun
sjálfstæðisins? Endist ekki und-
irbúningur vikublaðs til þess að
moka ofan af þeirri skilnings-
glóru að þjóð, sem ætlaði sér að
komast af með ein sex skip til að-
flutnings og burtflutnings manna
og muna, — vesælar smáskútur
einu sinni á ári, — gat ekki sent
utan margt manna? Meirihluti
þeirra manna, sem utan fór, var
úrval að framtaki og greind og
hafði þá fjárhagslega undirstöðu
að þola nokkur skakkaföll af mis-
ráðum eftirhermum eftir erlend-
um verknaði, ef hér voru reynd-
ar við heimkomuna. Yngri dæmi
svo sem „fransós, kláði í fé“,
sýna að þau voru tilfellin næg.
Þetta úrval sigldra manna stóð
á þjóðveldistíma betur að vígi en
almenningur nú bæði vegna
meiri eðliskosta úrvals en al-
mennings og vegna hæggengni
allra breytinga þá á dögum, en
samt tókst úrvalinu að flytja inn
þá oftrú á eina þjóð og nauðsyn
viðskipta við hana, að einmitt
henni eða þjóðhöfðingja hennar
heppnaðist að ná hér völdum og
gera frjálst ríki að skattlandi og
mjólka það svo og mergsjúga, að
það fékk ekki einu sinni haldið
við fólkstölu sinni hvað þá menn-
ingu í sambærilegu hlutfalli við
grannþjóðir.
Út verða allar þjóðir að leita
til menningarsamskipta, ef þær
eiga ekki að tréna og forpokast,
en til slíkrar útvegunar þarf
snjallari menn en múginn og með
meiri gagnrýni. Hagsýnustu
menn og verkséðustu hér á landi
lærðu nokkuð í vegagerð af hern-
um, þegar hann kom, en það var
minni gleðin af að sjá uppstáss-
aðar stelpugæsir liggja í annarri
hverri brekku við brautirnar,
sem herbílarnir fóru um og þá
með hermannafylgd. Þótt sumar
þeirra hefðu þá ærutaug að
breiða yfir andlitin á sér svo ekki
þekktust, þegar íslenzkur maður
reið framhjá, þá nægir það varla
til grundvöllunar þess trausts á
íslenzkri menningu, að henni
þyki hollt að standa hlífðarlaus
og áveðra.
Því er nú verr að þjóðin á
Framhald á bls. 48.
G R I LL -
Grillsteikt kjöt er ljúffengt. Þegar stcikt er í grillofni, myndast þegar I
upphafi þunn — og ljúffeng — skorpa, sem síðan liindrar þornun kjötsins
við steikinguna. Kjötið heldur þannig safa sínum og bragði óskertu — og
húsmæðurnar losna við hvimleiða steikarbræluna. Infra-rauðu geislarnir
fara gegnum kjötið, scm verður sérstaklega mjúkt og bragðgott.
Við steikinguna bráðnar fitan á kjötinu og drýpur af. Hana má svo nota
með kjötinu, ef vill, því að liún er einnig bragðmikil og ljúffeng, en sós-
ur þarf ekki að búa til, nema þeirra sé sérstaklega óskað, enda verður
þcirra vart saknað, þar sem grillsteikt kjöt cr svo safaríkt og bragðgott.
Hvað er hægt að grillsteikja? Flest kjötmeti er bezt grillstcikt, bæði hrygg-
ur, læri og aðrir stórir bitar, þykkar og þunnar sneiðar, kótelettur, smá-
bitar, pylsur o.s.frv. Grillsteiktir fuglar, svo sem kjúklingar, endur o.fl.
eru kræsingar. Fiskur er góður grillsteiktur. Enfremur alls konar smárétt-
ir úr kjöti, fiski, grænmeti, ávöxtum, brauði, ostum o. fl.
Grillofninn býður marga kosti: Griilsteiktur matur er hollari, þar sem hann
er fituminni og léttari. Langflestum finnst grillsteiktur matur mun ljúf-
fengari. Grillofn er auðveldur og hrcinlegur í notkun. Húsmæður lcsna við
steikarbræluna og þurfa lítið sem ekkert að fylgjast með steikingunni,
því að í flestum tilfellum er steikt á teini, sem innbyggður mótor snýr með
jöfnum hraða, svo að engin hætta er á, að maturinn brenni við. Mörg
hjálpartæki fylgja, þannig að hægt er að steikja mæði stór, smá, þunn og
þykk stykki á teinum eða sérstökum grindum. GRILLFIX grillofnarnir eru
opnanlcgir að ofan. Þar er laus panna, sem hægt er að steilcja á eða nota
sem hitaplötu til þess að halda mat hcitum. GRILLFIX grillofnarnir cru
ennfrcmur búnir þrískiptum hitarofa, sjálfvirkum klukkurofa, innbyggðu
ljósi og öryggislampa. Allt þctta miðar að því að gera liúsmóðurinni steik-
inguna sem þægilegasta. Og ekki má gleyma því, að grillofn þarf ekki
nauðsynlega að vera ætíð staðsettur í eldhúsinu. Hann cr léttur og brælu-
laus, svo að tilvalið og skemnrtilegt getur vcrið að nota liann í borðstofunni
eða jafnvel úti á svölum eða í garðinum, þegar það hentar og húsmóðirin
vill gjarna vera í návist heimilisfólksins cða gestanna.
O. KORME RU P-H AMSEM F
SÍMI 1 2 6 0 6 - SUÐURGÖTU 10 REYKJAVÍK
Sendið undirrit. nánari upplýsingar (mynd, vcrð, greiðsluskilmála)
Nafn .................................................................
Heimili ..............................................................
Til FÖNIX s.f., Suðurgötu 10, Reykjavík.