Vikan


Vikan - 18.06.1964, Page 9

Vikan - 18.06.1964, Page 9
Kökur með olíu í Matarolía er algeng í matargerö á suðlægum slóðum, en hef- ur á síðari árum náð töluverðum vinsældum norðar á hnett- inum, einkum til að steikja úr. Þegar kenningin um óholl- ustu fitu úr dýraríkinu og kransæðastíflu er höfð í huga, fara margir að gefa jurtaolíum meiri gaum en áður. Margar upp- skriftir við að steikja úr olíu eru til og hafa m.a. nokkrum sinnum komið í VIKUNNI, en olía í kökur hefur lítið verið reynd hér. Hér fara á eftir nokkrar ágætar uppskriftir. MINÚTUKAKA. 2 dl. soyaolía, 240 gr. sykur, 200 gr. hveiti, 4 eg'g, 2 tsk. lyfti- duft. Þetta er grunndeigið, og það er hrært þannig, að öllu er blandað í skál og rétt aðeins hrært lauslega saman, ca. í eina mínútu. En úr þessu deigi er hægt að gera margskonar kök- ur, eftir því hverju bætt er í grunndeigið. Hún er bökuð í móti, sem smurt hefur verið með oluí, við jafnan 175 gráðu hita í u.þ.b. klukkutíma. Af því, sem bæta má í grunndeigið, má nefna: Saft og rif- inn börk af einni appelsínu, í kryddköku á að setja púður- sykur í stað hvítasykurs og bæta í 1 matsk. kanil, Vi tsk. engifer og % tsk negul, líka má setja kókósmjöl í stað helm- ings hveitis, þ.e.a.s. 100 gr. hveiti og 100 gr. kókósmjöl, og blanda svo 50 gr. af rifnu súkkulaði í kókóskökuna. Séu ávext- ir látnir í deigið á að baka kökuna ca. 20 mín. lengur, en ávextirnir eru 1 matsk. kúrennur, 1 matsk. súkkat, 50 gr. rauð og græn kokkteilber (hálf) og 50 gr. ósætt súkkulaði, skorið í smábita. Líka má bæta rifnu epli, einu eða tveimur í deigið og smyrja svo kökuna með hvítum glassúr þegar hún kólnar, og strá nógu af grófhökkuðum, brúnum möndlum yfir. kaffibollur. 1 dl. olía, 1 egg, 300 gr. hveiti, 1 tsk. salt, 1 matsk. sykur, 1 matsk. karomommur, V2 dl. rúsínur, V3 dl. smáskorið súkkat (fæst mjög smáskorið og tiltölulega ódýrt og gott í litlum pökkum víða í búðum í Reykjavík), 35 gr.. pressuger, 1 dl. mjólk. Olía og egg þeytt saman. Hveiti, salt, sykur, kardimommur, rúsínur og súkkat sett í. Gerið hrært út í mjólkinni, sem áður er hituð þar til hún er ilvolg. Öllu blandað saman og deigið hnoðað í lengju, sem svo er skipt í tólf stykki og gert úr bollur. Bollurnar settar á smurða plötu og látnar standa á volgum stað í ca. hálftíma, en síðan smurðar með þeyttu eggi eða svolitlum rjóma og bakaðar við góðan hita (225 gráður) í u.þ.b. 15 mínútur. Það má sleppa kardimomm- unum, rúsínum og súkkatinu, en þá eru bollurnar skornar í tvennt og borðaðar með smjöri. Framhald á bls. 41. Rósaeyjiam í Ityíaliafí Mhodos skemmtiferð með viðkomu í Kaupmanna- höfn á útleið. — Heimsókn til Tyrklands og dvöl í Kaup- mannahöfn á heimleið — auk dvalar á unaðseyjunni RHODOS 23. DAGAR - KR. 17.845,00. BROTTFÖR: 6. JÚLÍ. Fararstjóri: EINAR PÁLSSON. VIKAN 25. tbl. — Q

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.