Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 18.06.1964, Qupperneq 12

Vikan - 18.06.1964, Qupperneq 12
MINUM BÆJARDYRUM SEÐ Ég veit, hvað um mig er sagt, og þið getið tekið minn mólsstað eða þeirra, það er undir ykkur sjálfum komið. Hér standa mín orð móti orðum Eunice og Oliviu-Ann, og það ætti að vera nóg handa þeim, sem hafa sæmilega peru í kollinum. Ég vil bara, að borgararnir viti staðreyndirnar. Það er allt og sumt. Staðreynd: Á sunnudegi, 12. ágúst, á þessu drottins ári, reyndi Eunice að drepa mig með borgara-styrjaldar-sverði pabba síns og Olivia-Ann stakk allt og hjó með 14 tommu sveðju. Fyrir nú utan allt annað. Þetta byrjaði fyrir sex mánuðum, þegar ég kvæntist Marge. Þá feilskaut ég fyrst. Við giftumst í Mobile eftir fjögra daga kynningu. Við erum bæði sextán ára og hún var að heimsækja Georgíu frænku sína. Nú, þegar ég hef tíma til að velta því fyrir mér, skil ég ekki hvers vegna í ósköp- unum ég varð hrifinn af henni. Hún er ekk- ert falleg, enginn kroppur, enginn heili. En hún hefur Ijóst hár, sem ekki er litað, og ég býst við, að það sé svarið. Jæja, við höfðum verið gift í þrjá mánuði þegar Marge verður allt í einu ólétt. Þar gerði ég aftur skyssu. Svo byrjar hún að tönglast á því, að hún verði að fara heim til mömmu — en hún á enga mömmu, bara þessar tvær frænkur, Eunice og Oliviu-Ann. Svo hún læt- ur mig segja upp þessu fína starfi í ,,Selj- um og sendum heim" og fara með sér hing- að niður í Admiral's Mill, sem er ekkert annað en bölvuð hola, hvernig sem á er litið. Daginn, sem við Marge skriðum úr lest- inni í L & N, rigndi eldi og brennisteini, og haldið þið, að einhver hafi komið að taka á móti okkur? Og samt hafði ég spanderað 41 senti í skeyfi, maður! Þarna stend ég og ólétt stelpan og verðum að þramma allar þessar sjö mílur í úrhellis rigningu! Það var slæmt fyrir Marge, því ég gat ekki borið nema lítið af dótinu, af því ég er svo slæmur í bakinu. Þegar við sáum húsið fyrst, komst ég ekki hjá því að verða hrifinn. Ég skal viðurkenna það. Það er stórt og gult og það eru falleg tré í garðinum. Eunice og Olivia-Ann sáu okkur koma og biðu okkar í forstofunni. Ég get svarið að ég vildi að þið gætuð séð þær. Eunice er gömul, akfeit kellingarskrukka og bak- hlutinn á henni vegur að minnsta kosti tíunda- part úr tonni. Hún flygsast um húsið, hvort heldur er í sólskini eða rigningu, ( gamal- dags náttkjól, sem hún kallar kimonó, en er ekkert annað en gamall, skítugur nátt- kjóll. Þar að auki tyggur hún tóbak en reyn- ir að vera fín og spýtir ekki nema í laumi. Hún er alltaf að grobba af þvf, hvað hún hafi góða menntun; hún gerir það til að reyna að gera lítið úr mér, en mér er alveg sama, því ég veit að hún getur ekki einu sinni skilið myndasögur nema stafa textann upp- hátt. Hvert einasta orð, staf fyrir staf. En hún má eiga það, að hún getur eitt — lagt saman, dregið frá, margfaldað og deilt, hraðar en nokkur rafmagnshaus, þegar pen- ingar eru annars vegar. Það er enginn vafi, hvað hún myndi gera, ef hún væri þarna uppi í Washington, D.C., þar sem þeir hafa peningana. Og hún á líka fáeinar spírur! Auðvitað segist hún ekkert eiga, en ég veit betur, því einn daginn rakst ég á, alveg af tilviljun, hérumbil þúsund dollara, sem hún hafði falið í blómapotti úti á veröndinni. Ég snerti ekki eitt einasta sent, það er bara Eunice, sem segir að ég hafi stolið hundrað dollurum, sem er viðbjóðsleg lýgi frá upp- hnfi ti! enda En a!!t snm Eunice segir er — VIKAN 25. tbl. eins pottþétt og lögin, því sú sála er ekki til í Admiral's Mill, sem ekki skuldar henni eitthvað og ef hún segði, að Charlie Carson (sem er blindur, níræður og lamaður, og hef- ur ekki stígið í lappirnar síðan 189ó) hefði skellt henni og nauðgað, myndu allir í þess- ari rottuholu sverja við biblíuna, að þetta væri dagsatt. En Olivia-Ann er ennþá verri, og það er satt! Hún er bara ekki eins slæm á taug- um og Eunice, því hún er fæðingarhálfviti og ætti að vera á Kleppi. Hún er gráhvít á litin og grindhoruð og með yfirskegg. Hún veður um allt og tálgar prik með þessarj 14 tommu sveðju sinni, nema hún sé að bralla einhvern fjandann, eins og það sem hún gerði við frú Harry Steller Smith. Ég sór að segja það aldrei neinum, en þegar lífi manns hefur verið ógnað, geta loforð og svardagar farið í það hurðalausa fyrir mér. Frú Harry Steller Smith var kanarífuglinn hennar Eunice og hét eftir kerlingu frá Pensa- cola, sem bruggaði grasagutl, sem Eunice notar á lifrina í sér. Einn daginn heyrði ég svaka forgang í stofunni, og þegar ég fór að gá, var Olivia-Ann að reka frú Harry Steller Smith út um opinn gluggann með kústi og dyrnar á búrinu upp á gátt. Ef ég hefði ekki komið inn í tæka tíð, hefði þetta aldrei komizt upp. Hún varð skíthrædd um, að ég myndi kjafta í Euniec og tapaði sér alveg, sagði að það væri ekki fallegt að halda skepnunum, sem guð bjó til hérna einu sinni, lokuðum inni í búri og þar að auki þyldi hún ekki skrækina í frú Harry Steller Smith. Jæja, ég vorkenndi kerlingar- uglunni og hún gaf mér tvo dollara, svo ég hjálpaði henni að Ijúga upp sögu handa Eunice. Auðvitað hefði ég aldrei tekið við þessum spírum, hefði ég ekki gert henni greiða með þvf. Það allra fyrsta, sem Eunice segir, þegar við Marge komum, er þetta: — Svo það er þettta, sem þú laumaðist til, að giftast í blóra við okkur, Marge? — Er hann ekki sætur, frænka? spyr Marge. Eunice mælir mig u-p-p og n-i-ð-u-r og segir svo: — Láttann snúa sér við. Ég sný mér við, og Eunice segir: — Þú hefur valið í myrkri, barn. Þetta er ekki karl- maður, þessi ósköp. Ég hef aldrei heyrt annað eins. Það er að vísu satt, að ég er frekar grannur, en ég er bara ekki fullvaxinn. — Víst, segir Marge. Olivia-Ann, sem hefur staðið með svo lafandi skolta, að flugurnar suðuðu út og inn um kjaftinn á henni, grípur allt f einu fram í og segir: — Þú heyrðir, hvað systir sagði. Þetta er enginn karlmaður. Að þetta skuli þykjast vera eitthvað! Það er ekki einu sinni karlkyns! — Þú virðist hafa gleymt því, Olivia-Ann frænka, að þetta er eiginmaður minn, faðir hins ófædda barns míns. Eunice gaf frá sér þetta fyrirlitlega hljóð, sem enginn annnar kann, og segir: — Jamm, ekki myndi ég monta mig af þvf. Eru þetta ekki fínar móttökur? Og ég sem sagði upp þessu fína starfi til að koma hingað. En þetta var nú bara tittlingaskítur hjá því, sem kom seinna um kvöldið. Þegar Bluebell bar fram af borðinu, spurði Marge eins vel og hún gat, hvort við mættum fá lánaðan bílinn til að fara á bíó í Phoenix City. — Þú hlýtur að vera gengin af göflunum, segir Euni^e, og þið hefðuð haldið, að beðið hefði verið um náttkjólslufsuna utan af henni. — Þú hlýtur að vera gengin af göflunum, bergmálar Olivia-Ann. — Klukkan er orðin sex, segir Eunice, og ef þú heldur að ég láti þennan peðring keyra minn, svo gott sem glænýja Chevrolet 1943, alla leið hérna niður að garðshliðinu og aftur til baka, hlýturðu að vera gengin af göflunum. Auðvitað fer Marge að hrína, þegar það er talað svona við hana. — Þetta er allt í lagi, maður, segi ég. — Ég hef keyrt fullt af Kadillökkum og svo- leiðis tryllitækjum. — Humf, segir Eunice. — Já, segi ég. — Ef þú hefur nokkrun tíma keyrt svo mikið sem tómar hjólbörur, skal ég með glöðu geði éta tíu taðköggla, steikta upp úr terpentínu, segir Eunice. — Ég vil ekki hafa, að þú talir svona um eiginmann minn, segir Marge. — Það er eins og þú haldir, að ég viti ekki sjálf, hvað ég er að gera. — Það fer vel um svínin í skítnum, segir Eunice. — Láttu þér ekki detta í hug, að þú getir slegið ryki í augu okkar, segir Olivia-A-m, með þessari hneggjandi rödd, sem er svo lík eðlunarhneggi í asna, að það er ómögu- legt að segja hvað er hvað. — Við vorum ekki að skríða úr egginu í gær, segir Eunice. — Ég ætlast til að þið skiljið það, að ég er löglega gift, þar til dauðinn aðskilur okkur, þessum manni, samkvæmt úrskurði borgardómarans í Mobil fyrir þremur og hálfum mánuði, segir Marge. — Spyrjið hvern, sem þið viljið. Þar að auki, Eunice frænka, er hann frjáls, hvítur og sextán ára gamall. Og þar að auki vill George Far Sylvester ekki heyra talað svona um föður sinn. George Far Sylvester er nafnið, sem við höfum ákveðið fyrir litla barnið, þegar það fæðist. Annars stendur mér nokk á sama núna, eins og málin standa. — Hvernig getur stúlka barnað stúlku? segir Olivia-Ann. Þetta er útspekúleruð árás á manndóm minn. — Alltaf heyrir maður eitthvað nýtt. — O, þegiði, segir Eunice. — Ég vil ekki heyra meira um þetta bíó í Phoenix City. Marge fer náttúrlega að kjökra: — Ó, hó, hó, he, en það er Judy Garland, kjökrar hún. — Allt í lagi, elskan, segi ég. — Eg sá þessa mynd áreiðanlega f Mobile fyrir tíu árum. — Þetta er vísvitandi lýgi, hrópar Olivia- Ann. — Þú ert þorpari. Það sé ég og heyri. Það eru ekki tíu ár, síðan Judy tók að leika í kvikmyndum. Olivia-Ann hefur ekki séð eina einustu kvikmynd á allri sinni 52 ára ævi (hún segir engum, hvað hún er gömul, en ég sendi þeim f ráðhúsinu í Montgomery bréf og þeir svöruðu bæði fljótt og vel) en hún er áskrifandi að átta kvikmyndablöðum. Eftir þvf sem hún Delancey á símstöðinni segir, er það eini pósturinn, sem hún fær, fyrir utan verðlistann frá Seors & Roebuck. Hún hefur ofurást á Cary Cooper og á eina tösku og tvo kassa fulla af myndum af honum. Svo við stöndum upp frá borðinu og Eun- ice pokast yfir að glugganum og rýnir út í appelsínutréð og segir: — Fuglarnir eru að setjast í hreiðrin sín — mál að fara í rúmið. Þú ferð í gamla herbergið þitt, Marge, en ég hef látið gera flet fyrir fígúruna þarna á bakdyrapallinum. Það tók mig heila mínútu að melta þetta. Svo segi ég: — Og hvað, ef ég mætti

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.