Vikan


Vikan - 18.06.1964, Síða 23

Vikan - 18.06.1964, Síða 23
ERKIHERTOGINN OG HR.PIMM Framhalds- sagan eftir Lindsay Hardy 17. hluti Sðgulok Annabelle starði í augu hans. Hún var að hugsa, að hann hefði verið óeðlilega lengi að koma sér að þessu. Hún hafði átt von á honum fyrir þremur eða fjór- um dögum. En hún ætlaði ekki að segja honum það. Henri glotti og sagði: •—■ Auð- vitað er ég mannlegur. Mér væri svo sem ekkert vel við það, að þú kveiktir í þeim. En ef þú gerð- ir það, þá væri mér fjandans sama. Hann hélt að hún ætlaði aldrei að svara. Loks færðist bros yfir andlit hennar og hún fleygði sér í fang hans og kyssti hann. — Ég elska þig, dásamlegi þorparinn þinn, sagði hún og kyssti hann á ný. — Komdu nú, við skulum fara heim og segja Matildu frænku þetta. 17. KAFLI. Nú fór að færast fjör í tusk- urnar svo um munaði í Villa Florentina. Peggy hafði sagt þeim, að hún mundi fara um helgina og dag einn sagði Green við Matildu frænku: — Ég vildi að við gætum gert eitthvað í þessu með stelp- una. Þau heyrðu í Henri og Anna- belle úti í sundlauginni. — Ég talaði aftur við hana í morgun og Annabelle líka. Hún er alveg staðráðin, er ég hrædd um, og hún hefur einsett sér að segja ekki orð við Julian. Hún ætlar til Parísar með lest, og síðan ætlar hún að fljúga heim til Pasadena þaðan. — Ég á eftir að sakna hennar. — Við söknum hennar öll. Green stóð hugsi stundarkorn með glas af Martini í hendinni. — En fjandinn hirði það, sagði hann, — Soames er alls ekki sem verstur. Hvers vegna getur hún ekki hliðrað svolítið til? — Við vorum svo sem ekkert fús til þess að hliðra til þangað til fyrir skömmu, eða manstu það ekki? — Það heyrðust hlátrasköll og skvamp utan úr sundlauginni, og Green leit út um gluggann og hristi höfuðið, eins og hann ætti erfitt með að sætta sig við þetta. Enn liðu fjórir dagar . . . Julian hafði legið í leti niðri við sjó- inn við La Napoule-flóa. Honum var þungt í skapi, en þarna lá hann þar til hann komst að þeirri niðurstöðu, að ef hann hefði sig ekki á brott þaðan, myndi hann fleygja sér í sjóinn. Hann gekk heim á leið og hugsaði sem svo, að sennilega yrði hann að hafa sig á brott þaðan eftir svo sem einn eða tvo daga; en skyndi- lega skipti hann um skoðun, því að hann snerist á hæli og gekk í áttina til Villa Florentina. Þar rakst hann á Matildu frænku og Mr. Pimm í kvöldkyrrðinni. Hann kastaði á þau kveðju og spurði, hvort Peggy væri við. — Ég þarf að tala við hana, sagði hann. — Bara einu sinni enn. Matilda frænka sagði við Mr. Pimm: — Hvað á ég að gera? •— Kæra Miss Matilda, sagði Mr. Pimm, — ég held . . . ég held satt að segja, að Peggy þætti bara vænt um það. — Jæja þá. Ég mátti reyndar ekki segja þér það, Julian, en ef þú flýtir þér gætirðu náð í hana. Taktu stationbílinn — hún fer með lestinni frá Nice klukkan 8,50. — Miss Matilda, guð blessi þig, sagði Julian og þaut í áttina að bílskúrnum. Hann kom niður á járnbraut- arstöðina á elleftu stundu. Verið var að skella aftur hurðunum, lestin var farin að blása og fólk- ið í gluggunum farið að veifa í kveðjuskyni. Julian þaut eftir járnbrautarpallinum og velti því fyrir sér, hvort hann ætti ekki að fara um borð í lestina far- miðalaus. Enn hvein í lestinni, og hún tók að hreyfast. Og þarna stóð hann eins og illa gerður hlutur og horfði raunalega inn um járnbrautargluggana. Honum fannst hann sjá hana í næstsíð- asta vagninum en þá var líka lestin horfin og járnbrautarpall- urinn tómur. Hann stóð með hendur í vös- um og horfði á lestina hverfa. Tíu mínútur, hugsaði hann. Ef hann hefði aðeins komið tíu mín- útum fyrr. Hann bjóst til að fara. Þá heyrði hann skyndilega í Peggy fyrir aftan sig: — Þú ert sennilega að leita að mér. Hún stóð við dyrnar að biðsalnum. Julian snerist á hæli og starði á hana. Hann benti á eftir lest- inni. — Þú átt að vera, sagði hann, — þú átt að vera í lest- inni þarna. Peggy sagði: — Ég er það samt greinilega ekki. Hún gekk til hans. — Vertu góður við mig. Ég þarfnast þess svo sannarlega. Þetta er ekkert þægilegt fyrir mig. Hann lagði handleggina utan um hana: — Þú fórst ekki. — Ég reyndi. En einhvern veg- inn vissi ég, að þú mundir koma. Hann tók töskuna hennar, og þau gengu að stationbílnum, þögul, raunamædd en ástfangin, og visu ekki hvað þau ættu að segja. Síðan sagði Julian: — Þú getur vonandi komið aftur heim, er það ekki? — Auðvitað. Nema hvað það verður óttalega kjánalegt að koma þangað aftur eftir að vera búin að kveðja alla. — Er þér ekki sama? — Jú, ef þú kemur með mér. Þau þögðu lengi, þar til Julian sagði lágt: — Fyrirgefðu, Peggy. Það er það eina, sem ekki er hægt. — Hvað þá? — Georg frændi. Ég myndi gera allt, bókstaflega allt fyrir þig nema það. —■ Það er allt í lagi, sagði hún, — ég ætla ekki að biðja þig um það lengur. — Ég ætla að annast þig vel, sannaðu til. En ég gæti ekki farið aftur til Georgs frænda. — Ég sætti mig við það, því að ég fór ekki með lestinni. — Ég er 29 ára núna. Peggy, hugsaðu þér. Ég verð orðinn 35 ára, áður en ég settist í for- stjórastólinn. Þrjátíu og fimm. Sjö óendanleg ár. Peggy sagði: — Þú vilt halda áfram kappakstrinum, og ég vil frekar sætta mig við það en að fá þig ekki. Það er nú það. — Sjáðu til, okkur Georg frænda lenti óskaplega saman. Ég sagði honum, að ég þyrfti ekki á hjálp hans að halda, að ég gæti alveg staðið á eigin fót- um. Ég sagði vafalaust ýmislegt, sem ég hefði aldrei átt að segja. — Þú ert margsinnis búinn að segja mér þetta. Við skulum sleppa því. — Ég segi það satt, ég gæti ekki farið aftur til hans. Peggy lagði höndina fyrir munn hans. — Gerðu það, Julian, eigum við ekki að tala um eitt- hvað annað? Julian tók höndina á henni og þrýsti hana að sér. Síðan sagði hann: — Jæja, ég slepp víst ekki. Það er enginn heima hjá Pimmsa, svo að það er víst bezt að ljúka þessu af. — Ljúka hverju af? — Bréfinu. Ég get ekki birzt rétt sem svona í dyrunum hjá honum með stúlkunni sem ég ætla að kvænast, nema ég sé viss um að hann hafi eitthvað að gera handa mér, eða hvað? Peggy sagði: — Ég vona bara, að þetta séu ekki ofheyrnir. —■ Við verðum að skrifa gamla hörkutólinu. Við getum ekki far- ið til hans rétt si svona og sagt, hér erum við. Hvers vegna ertu svona hissa? Peggy sagði: — Þú ert vitlaus, en hvað um það. — Nú, á hverju áttir þú von? Þú gazt ekki farið með lestinni, svo að eitthvað verð ég að gera. Peggy sagði með rödd, sem hann hafði aldrei heyrt fyrr: — Soamsi minn, trúirðu því, að ég elska þig? — Þú segir það. — Komdu héma, sagði hún. —■ Ég verð að reyna að sanna þér það. Mr. Pimm kom inn í garðinn daginn eftir og raulaði fyrir munni sér. Hann lyfti staf sín- um og þóttist skilmast við Julian. — Hvar ertu, Danielle? kall- aði hann. — Danielle, hvar ertu? Danielle birtist í dyrunum. — Ég er í eldhúsinu. — Það var ágætt. Vertu bara kyrr þar. Síminn hringdi og þegar Julian heyrði Mr. Pimm segja: — Ah, sönn ánægja að heyra röddina, kæra Miss Matilda, gekk hann út á svalirnar, til þess að Mr. Pimm fengi að hjala við Matildu í friði. Mr. Pimm kom út nokkrum mínútum síðar. — Mér er boðið til hádegisverðar í Villa Flor- entina, lýsti hann yfir glað- klakkalega, án þess að gruna nokkuð, hvað í vændum var. — Green verður í klúbbnum í Antibes. Annabelle er auðvitað einhvers staðar með Henri. Peggy er að verzla í Nice, eins og þú hlýtur að vita. — Ég ætla að hitta hana klukkan eitt. — Og Miss Matilda, blessunin, vill ekki vera ein. Svo að auð- vitað verð ég að standa við gef- in loforð, ég get ekki verið þekkt- ur fyrir annað. Hvað segirðu, tal- aðu hærra, ég heyri ekki hvað þú segir. Julian brosti og sagði: ■— Það er svo greinilegt, Mr. Pimm. Hún stenzt þig ekki? Þú ert búinn að sigra hana. Mr. Pimm sagði með fyrirlitn- ingu: — En góði Julian, að heyra í þér. Þú mátt ekki segja svona. — Hvað þá? — Nú, ég er mjög hændur að Miss Matildu, mér finnst mjög vænt um hana, og ég vil ekki heyra þetta. — Hvað viltu ekki heyra? — Þú gerir mér rangt til, það myndi mér aldrei detta í hug. Framhald á bls. 33. VIKAN 25. tbl. — 23

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.