Vikan


Vikan - 18.06.1964, Blaðsíða 29

Vikan - 18.06.1964, Blaðsíða 29
Honay! Hreyfðu þig ekki. Ég kem aftur. Hann þaut gegnum runn- ana í átt frá fjallinu og hIjóp niður sandinn og Quarrel við hlið hans. Þeir komu út á enda sandeyrar- innar um tuttugu metrum frá rjóðr- inu. Þeir stönzuðu undir síðustu runnunum. Bond sveigði frá sér greinar og leit út yfir vatnið. Hvað var þetta? Um hálfa mílu frá þeim kom sköpulagsiaus hlut- ur yfir vatnið, með tvö, glamp- andi appelsínugul augu með svört- um augasteinum. A milli þeirra, þar sem munnurinn gæti verið, stóð út meterslangur blár logi. Dauf skíman frá stiörnunum sýndi ein- hverskonar kýtt höfuð milli tveggja stuttra og ófétislegra vængja. Það urraði lágt í ófreskjunni, en und- ir urrinu heyrðist annað hljóð, djúpt, reglulegt vélarhljóð. Ófreskjan kom í áttina til þeirra á um það bið tíu mílna hraða og vatnið freyddi frá hennni á báða bóga. Quarrel hvíslaði: — Drottinn minn, kapteinn! Hverskonar skrímsli er þetta? Bond stóð upp. Hann svaraði stuttaraiega: — Veit það ekki ná- kvæmlega. Einhverskonar traktor, dulbúinn og ætlaður til þess að hræða. Hann gengur fyrir dísilvél, svo að þú getur stungið drekanum aftur í gröfina. Við skulum nú sjá. Bond talaði að hálfu leyti við sjálf- an sig: — Það þýðir ekkert að flýja. Þetta fer of hratt yfir og við vitum, að það getur farið yfir hvað sem er. Við verðum að berjast við það hér. Hvar ætli séu veiku punkt- arnir á því? Ökumennirnir. En auð- vitað eru þeir varðir. Við vitum ekki hve mikið. Quarrel, þú byrjar að skjóta á efri hlutann á þessu, þegar það á eftir svona tvö hundr- uð metra. Miðaðu vandlega og haltu áfram að skjóta. Ég ætla að miða á Ijósin, þegar svona fimmtíu metrar eru eftir. Þetta rennur ekki á spori. Þetta hlýtur að vera á risastórum dekkjum. Sennilega flug- véladekkjum. Ég ætia að reyna að skjóta þau. Vertu hér. Ég fer tíu metra til hliðar. Það getur verið að þeir fari að svara skotunum og við verðum að halda kúlunum burt frá stúlkunni. Ertu með? Hann rétti út höndina og þrýsti stóru öxlina. — Og hafðu ekki of miklar áhyggj- ur. Þér er óhætt að gleyma drek- ánum. Þetta er einhverskonar apparat, sem dr. No hefur látið búa til. Við drepum bara öku- mennina og náum ferlíkinu á okk- ar vald og förum á því niður að ströndinni. Það sparar skóna. Ertu með? Quarrel hló stuttaralega: — Ókey, kapteinn, úr því að þú seg- ir það. En ég vona svo sannarlega, að guð sé sammála þér í því, að það séu ekki til drekar! Bond hljóp niður á sandeyrina. Hann skreið undir runnunum þang- að ti! hann hafði beint skotfæri. Hann kallaði lágt: — Honey! — Já, James. Röddin var rétt hjá honum og það var feginleiki í henni. — Gerðu þér gjótu í sandinn, eins og við gerðum á ströndinni. A bak við sverustu trén. Og leggstu svo ofan [ holuna. Það getur vel verið, að það verði skipzt á skot- um. Hafðu ekki áhyggjur af drek- um. Þetta er aðeins einhverskonar vél með furðulegri yfirbyggingu og það eru menn frá dr. No í henni. Vertu ekki hrædd. Ég er rétt hjá þér. — Allt í lagi James. Farðu var- lega. Það var skelfing í röddinni. Bond kraup á annað knéð og starði fram fyrir sig. Nú var þessi hlutur aðeins um þrjú hundruð metra í burtu, og Ijósin lýstu upp eyrina. Logarnir stóðu enn út úr kjaftinum. Þeir komu úr löngum stút, sem var hulinn að nokkru með gapandi kjafti og gulltönnum til þess að líkjast drekamunni. Eld- varpa? Það skýrði þessa brenndu runna og sögu varðarins. Logarnir komu úr einhverskonar olíubrenn- ara. Það var enginn kraftur á tæk- inu núna. Hversu langt mundu log- arnir ná, þegar þeim væri gefinn laus taumurinn? Bond varð að viðurkenna, að þetta var hræðileg sjón, þar sem það kom yfir vatnið. Það var líka örugglega ætlað til þess að hræða. Það hefði líka hrætt hann, hefði hann ekki þekkf ganghljóðið í dfsilvélunum. Þetta var örugglega skætt voon í viðureign við innrás- armenn frá eyjunum í kring, sem ekki þekktu mikið til tækninnar. En hversu vel mundi það reynast í baráttu við vopnaða menn, sem ekki létu hræðsluna ná tökum á sér? Hann fékk svarið næstum undir- eins. Hann heyrði í Remingtonriffli Quarrels. Neisti myndaðist á stjórn- Framhald á bls. 48. VIKAN 25. tbl. — 29

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.