Vikan - 28.05.1964, Side 2
fullri alvöru:
Hvar kemst
ísland á blað?
Fyrir nokkru barst okkur í
hendur eins konar biblia um
ferðamál; það er uppsláttarbók
]jar sem finna iná svör við flest-
öllu þvi, sem ferðafólk kynni að
hafa áhuga á að vita. Þar voru
tekin fyrir i stafrófsröð þau
lönd á gervallri heimskringlunni,
sem höfundur bókarinnar hafði
talið liugsanlegt að ferðamenn
létu sjá sig. Þar var skrá yfir
alla merkisstaði, merkisborgir
og bæi, merkisbyggingar, sam-
komustaði og veitingahús svo
og margháttaður fróðleikur ann-
ar, sem að gagni mætti koma.
Nema það var ekki minnzt á
ísland.
Ekki minnzt á, að það land
væri til, hvað þá að þar byggi
fólk, livað þá að þar væri neitt
að sjá, né heldur að þar mætti
hafa örlitla viðkomu á leið til
Ameriku með flugvélum Loft-
leiða.
Og um það leyti sem þetta er
skrifað, flutti útvarpið þá frétt,
að Vestur-þýzka stjórnin liefði
látið saman setja lista — vænt-
anlega að undangenginni um-
fangsmikilli rannsókn sam-
kvæmt þýzkri nákvæmni -— yfir
þau lönd heimsbyggðarinnar,
sem kölluð eru „vanþróuð“.
Þelta var að því er mig minnir
gert vegna hugsanlegra við-
skipta sambandslýðveldisins við
vanþróuðu þjóðirnar.
Þar komst ísland á blað.
Það var þar með löndum eins
og Tanganyika, Afghanistan,
Gliana og Kongó. Þessi tvö fram-
angreindu dæmi bregða dálít-
illi birtu á það álit sem jafn-
vel næstu nágrannaþjóðir okkar
liafa á þjóð vorri, hvað sem
líður mærðarhjali i veizlum og
öðrum svokölluðum vináttufund-
um.
Það kemur fyrir ekki þó liér
séu aðeins 6 manns á liverja
bifreið i landinu (Þrátt fyrir
þá óhugnanlegu staðreynd, að
bílar eru dýrari liér en yfirleitt
allsstaðar annarsstaðar). Það
kemur fyrir ekki þó hér sé al-
mennari notkun á síma en í
sjálfu Vestur-þýzkalandi og mun
fleiri simskeyti send á hvern í-
búa en þar. Það kemur fyrir
Framhald á bls. 50.