Vikan


Vikan - 28.05.1964, Síða 12

Vikan - 28.05.1964, Síða 12
Eitt kvöldið þegar Leonard J. Kanzler var á leið heim frá vinnu —■ hann var lyfjafræðing- ur hjá Smith‘s lyfjabúðinni og á þriðjudög- um, fimmtudögum og laugardögum kom það í hans hlut að loka og ganga frá búðinni — þá skauzt maður úr felum bak við kastaníu- tré og gekk í veg fyrir hann. „Upp með hend- urnar“, sagði maðurinn. „Upp með hendurnar? Til hvers? Þú ert þó ekki að ræna mig?“ sagði Kanzler. „Það geturðu bölvað þér upp á, það er ein- mitt það sem ég er að gera. Gakktu afturábak upp að trénu og reyndu ekki að fara í kring- um mig. Þessi er hlaðin“. „Þú nærð ekki miklu frá mér. í hæsta lagi nokkrir dollarar, og svo úrið og keðjan“. „Engin ólíkindalæti, Kanzler. Peningarnir úr kassanum". „Ó“, sagði Kanzler. „Jó, einmitt. f vasanum innan á frakkan- um. Legðu það allt á jörðina og farðu svo strax og ég segi þér“. „Ég held ég viti hver þú ert“, sagði Kanzler. „Það gerirðu nú samt ekki. Legðu pening- ana á jörðina og demantshringinn þinn líka. Við skulum ekkert hugsa um úrið“. „Jú, ég veit hver þú ert. Ertu J. M.?“ „Nei, ég er ekki J. M. og hættu þessum láta- látum. Þú þekkir mig ekki, en ég þekki þig“. „Já, ég geri ráð fyrir því. Allt í lagi. Þarna er veskið og ofan á því hringurinn. Þetta er félagshringur og þeir sem ekki eiga rétt til hans geta ekki borið hann, svo að hann kemur þér ekki að neinu gagni“. „Hver sagði að ég ætlaði að bera hann?“ Maðurinn, sem hafði klút bundinn um niður- andlitið, beygði sig niður eftir veskinu og hringnum. „Hvað á ég nú að gera?“ spurði Kanzler. „Bíða þar til ég hef gáð í veskið“. „Peningarnir eru þar. Tvö hundruð áttatíu og sex dollarar. Er það nóg til að fara í fang- elsi fyrir? Ef þú ert sá, sem ég held að þú sért, skýturðu mig ekki“. „Það er réttara að vera ekki of viss um það, mister“. sért sá, sem ég hélt“. „Þú þekkir mig ekki frá Adam, lagsmaður. Það er því betra fyrir þig að fara að öllu með gát. Nú geturðu lagt af stað, en þú skalt ganga rólega. Byrjirðu að hlaupa, færðu kúlu í bakið. Taktu það bara rólega". „Núna?“ „Núna“. „Hvernig vissirðu að ég . . .“ „Á laugardagskvöldum tekurðu alltaf pen- ingana úr kassanum og á sunnudagsmorgnum kemur Smith og nær í þá hjá þér. Þú sérð að ég veit þetta allt“. „Strax og ég kem heim, ætla ég að hringja til lögreglunnar“. „Auðvitað. Segðu þeim bara að leita að EFTIR JOHN O’HARA UNGI MAÐURINN MEÐ BYSSUNA VAR AÐ ALLRA ÁLITI SNARRÁÐUR OG HUGVITSSAMUR, ÞARTIL ÞAÐ FRÉTTIST HVERNIG FÖR FYRIR HONUM. J. M.“ „Nei, ég held ekki lengur að þú sért J. M. Ég er feginn að svo er ekki. Hann á í nógum vandræðum samt“. „Hypjaðu þig strax af stað, Kanzler". „Nei, þú ert ekki J. M. Þú ert ekki af þess- um slóðum. Þú berð ekki nafnið mitt rétt fram“. „Verð ég að ýta þér af stað?“ „Ég er að fara“, sagði Kanzler. „Við berum það hér fram með o en ekki a — Konzler". Hann gekk hægt að húsinu sínu, sem var uppi á hæðinni bak við dómshúsið. Konan hans var í náttkjól og með hárið vafið í rúll- ur, og hún sat við eldhúsborðið og las í blaði. „Len! Á ég að setja kaffið yfir?“ „Kem eftir eina mínútu". „Ætlarðu á klósettið?" „Ég ætla að hringja". „Til hvers, á þessum tíma sólarhringsins?" „Komdu og hlustaðu á“, sagði hann. Hann tók upp heyrnartólið. Kanzler. „Hvaða númer hringirðu í?“ spurði Leora „Halló, aðalstöð lögreglunnar? Þetta er Leonard Kanzler, sem talar Ó, halló, Jack. Það er eins og þú sért kvefaður. Já, það er að ganga. Líttu inn á morgun, og þá skal ég gefa þér eitthvað við því. Nei, það er satt, ég á frí á morgun. Nei, annan hvern sunnudag. En til að komast að efninu, þá var setið fyrir mér og ég var rændur. Fyrir fimm mínútum. Á leiðinni heim. Það er ekkert að mér, en búðin er 286 dollurum fátækari og ég missti demantshringinn minn. Ungur maður með byssu. Skammbyssu. Hafði falið sig bak við tré á North Second, við 400 blokkina. Þú veizt hvar þessi trjágöng eru. Ég var með peningana úr kassanum á mér. Við skiljum þá aldrei eftir yfir helgina. Ég fer með þá heim í pen- ingakassann og . . . Nei, ég hélt fyrst að ég þekkti hann, en það var einhver annar. Þessi náungi var ókunnugur maður, ekki héðan ur nágrenninu. Svona á að gizka þrítugur, meðal- hár og þrekinn, var með vasaklút fyrir grímu. Nei, það er allt í lagi með mig. Ég var ekki einu sinni hræddur, meðan á þessu stóð, en eftir að ég kom heim, fór ég að gera mér ljóst, að hann hefði ekki hikað við að nota byssuna". „Drottinn minn!“ sagði Leora Kanzler. „Ég er heima. Við tökum það rólega, hjónin, þá laugardaga, þegar ég á frí daginn eftir. Ef þú sendir einhvern hingað, þá segðu þeim að hafa ekki hátt, mundu það, Jack. Ég vil síður vekja upp allt nágrennið. Nei, þau eru bæði að heiman, þau eru í heimsókn hjá ömmu sinni í Shamokin. Þau koma ekki aftur fyrr en á þriðjudaginn". „Miðvikudag", sagði Leora Kanzler. „Miðvikudag, segir konan mín. Allt í lagi, Jack, ég bíð eftir þeim. Nei, ég hef ekki byssu í húsinu. Við höfum eina í búðinni, en ég held satt að segja, að hún sé ekki hlaðin. Ég á hana ekki. Segjum það“. Hann lagði tólið á. „Drottinn minn. Hérna á miðju Second Street? Er ekkert að þér? Ertu alveg viss?“ „Þetta var Jack Riegler. Mér virtist eins og hann væri með hálfgerðan asthma. Nei, það er ekkert að mér. Mig mundi hins vegar ekki langa til að endurtaka þetta. Meðan ég var að tala við hann var ég ekkert óttasleginn, en á leiðinni heim fór ég að hugsa um, að ef hann hefði skotið mig í bakið, mundi ég liggja þarna á götunni þar til einhver fyndi mig og líklega blæða út“. „Svona spölkorn frá heimilinu". „Alveg rétt við“. „Nú ætla ég að ná þér í whiskýsopa“. „Nei, dálítið kaffi er ágætt. Ég vil síður anga af whiský, þegar lögreglan kemur“. „Lögreglan? Kemur hún hingað?“ „Ég vildi heldur að þeir kæmu hingað en að ég þyrfti að fara til þeirra“, sagði Kanzler. „Já“, sagði hún. „Ertu viss um að þér líði vel, Len? Ég mundi deyja, ef eitthvað kæmi fyrir þig“. „Við eurm alveg örugg. Síðasti staðurinn, sem ræninginn mundi dvelja lengi á, er ná- J2 — VIKAN 22. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.