Vikan - 28.05.1964, Side 23
VIKAN-FERÐABLAÐ
Á AÐ TAKA
BÖRNIN MEÐ I
FERÐALAGIÐ?
Það er ekki eins dýrt að taka börnin með í ferðalagið
og flestir halda. Víðast hvar er töluverður afsláttur veitt-
ur fyrir börn á gistihúsum, matsölustöðum, á skipum,
í járnbrautarlestum og víðar. Sá afsláttur fer auðvitað
eftir því hve gömul börnin eru og einnig er það mis-
munandi eftir löndum.
Afsláttur af flugfargjöldum fyrir börn undir 12 ára,
er t.d. 50% hjá flestum flugfélögum. í Noregi og Svíþjóð
er mjög lítið — eða jafnvel ekkert — gjald á gistihúsum
fyrir börn undir 7 ára aldri, annars er þessi afsláttur
misjafn, allt frá 10—50%.
Athugið að börn þola ver en fullorðið fólk breytingar
í mat og á svefntíma. Varizt að gefa þeim mikið kryddað-
an mat, og gefið þeim helzt gosdrykki eða ávaxtasafa að
drekka. Látið þau hvílast vel, fara snemma að sofa ef
hægt er.
í langri flugferð er gott að hafa myndabækur með-
ferðis, eða annað við þeirra hæfi svo að þau geti haft
eittþvað fyrir stafni.
Hvaða þjónustu veita ferðaskrif-
stofur?
Borgar sig að leita til þeirra?
Svörin finnum við í grein á næstu síðu.
Óskaferð mín fyrir 18 þúsund kr.
Þrír vanir fararstjórar svara þessari
spurningu fyrir VIKUNA.
Sól og sjávarhiti.
Fróðleg tafla un\ sólarlengd og sjávar-
hita á ýmsum stöðum — á ýmsum tímum.
Bensínverð — orðasafn — víntafla
þjórfé — tollareglur — áminningar
leiðbeiningar — heilræði o. m. fl.
VIKAN 22. tbl. —
23