Vikan


Vikan - 28.05.1964, Blaðsíða 33

Vikan - 28.05.1964, Blaðsíða 33
Allir menn, nema meðalháir, meðalþreknir menn um þrítugt. Hringurinn þrengist enn meira þegar þú hefur komizt að því, á hvaða hóteli hann hefur búið“. „Já, já. Þetta er venjuleg lög- reglurannsókn", sagði Kyler. „Þetta er bara venjuleg skyn- semi, það er það sem það er“, sagði Kanzler. „Það versta við venjulega heiibrigða skynsemi er það, hve óvenjuleg hún er. Ef þið hlustuðuð á mig bæði í stað þess að taka fram í fyrir mér, er hugsanlegt að við kæmumst að einhverri niðurstöðu". „Nú, hvað er þetta", sagði Leora. „Ég gæti líklega náð þessum náunga, ef hann er enn í borg- inni“, sagði Kanzler. „Kannske ég ætti að láta borg- arstjórann taka þig í lögregluna, Len?“ „Það er óþarfi fyrir þig að vera með háðsglósur, Tom. Ég hitti fjölda fólks í minni starfs- grein, kannske jafnmarga og þú, og ég verð að þekkja mannlegt eðli. Þú veizt, fólk kemur inn í búðina og réttir mér lyfseðilinn allan samanbrotinn. Ég lít á hann og segi því svo að koma aftur eftir hálftíma. En þessi mann- eskja er samt búin að segja mér mikið um sjálfa sig og ef ég segði nokkurri lifandi sálu frá þessu, gæti svo farið að allri fjölskyldu hans væri steypt í glötun — eng- inn veit neitt um þetta, ekki vin- ir hans, ekki yfirmaður hans og oft jafnvel ekki konan hans. Sumt af þessu er þekkt fólk hér í borginni, get ég sagt þér. í kvöld, þegar þessi náungi réðist á mig, þá hélt ég um stund að ég vissi hver hann væri, ég spurði hann hvort hann væri viss mað- ur og nefndi upphafsstafina í nafninu hans. Það var nafnið á ungum manni, vissum ungum manni, sem kemur stundum inn með lyfseðil. Það kostar offjár í hvert skipti, það sem hann fær fyrir hann. Ég hélt að það væri hann, sem sæti fyrir mér. En þegar ég fór að tala við ræningj- ann, sá ég að þetta var ekki þessi maður, og ég var feginn, því að sá maður hefur nóg að slást við, þó að ekki bætist við að hann fari að ræna fólk vopnaður". „Hvern varstu með í huga?“ sagði Kyler. „Það var ekki hann, svo ég ætla ekki að segja þér það“. „Hvernig geturðu verið viss um, að það hafi ekki verið hann? Hann var með klút um andlitið“, sagði Kyler. „Þú getur haldið áfram að spyrja mig, þangað til þú ert orð- inn helblár í framan, og ég mun ekki segja þér það. Það var ekki hann. Þú ættir heldur, Tom Kyl- er, að einbeita þér að hótelunum og öðrum dvalarstöðum. Þessi náungi, sem réðist á mig, hann lætur sér ekki nægja neina tvö hundruð áttatíu og sex dollara Nfttfrt Kodak ENNÞÁ AUÐVELDARI MYNDATAKA KODAK INSTAMATIC VÉLIN er alveg sjálfvirk — filman kemur í ljósþéttu KODAK-hylki, sem sett er í vélina á augnabliki, engin þræðing, og vélin er tilbúin til myndatöku. Það eru til 4 mismunandi filmur í KODAK- hylkjum: VERICHROME PAN fyrir svart/hvítt, KODACHROME-X og EKTACHROME-X fyrir lit-skuggamyndir og KODACOLOR-X fýrir lit- myndir. — Myndastærðin er 9x9 cm. KODAK INSTAMATIC100 með innbyggðum flashlampa. kr. 829,- KODAK INSTAMATIC 50 kr. 496,— i 20313 Bankastræti 4 og demantshringinn minn. Það kæmi mér ekki á óvart þótt hann væri einmitt núna á þessari stundu að ræna einhvern annan. Það hlýtur að vera. Hann er búinn að ná í þessa 286 dollara og hringinn frá mér, en nú er hann kominn með lögregluna á hælana.. Spurningin er aðeins, hvar hann ber niður næst“. Kyler leit á Leoru Kanzler. „Hann hefur rétt fyrir sér“, sagði hann. „Heldurðu það?“ sagði Leora. „Ég er viss um það. Hann er búinn að reikna þetta allt út og útkoman stemmir", sagði Kyler. „Fyrr í kvöld var kært til okkar rán framið af vopnuð- um manni. Það var hjá Schlitz's, þið vitið, nýlenduvörubúð úti á West Market. Þeir hafa opið þar seint á laugardagskvöldum". „Paul Schlitz's, ég ætti að þekkja þá. Ég sem átti heima á West Market 1884“, sagði Leora. „Voru þeir rændir líka?“ „Tæpri klukkustund á undan Len. Paul og konan hans lokuðu stuttu fyrir klukkan tíu. Þau höfðu dregið gluggatjöldin fyrir. Þá var barið að dyrum. Þau hefðu ekki opnað framdyrnar, en fast- ir viðskiptavinir vissu um hliðar- dyrnar. Paul fór því til dyra og þar stóð náungi með vasaklút um andlitið. Skammbyssu í hend- inni. Ýtti Paul til hliðar, gekk „Já. Okkur var ekki tilkynnt þetta fyrr en að verða tíu. Schlitz varð að fara í næsta hús til að hringja til læknisins. Ég held að hún hafi fengið einhvers- konar hjartakast, svo að það dróst að láta okkur vita“. „Var það sami maður, sem sat fyrir mér?“ „Það bendir allt til þess“. „Það var skrýtið að Jack Riegler skyldi ekki nefna það við mig“. „Jæja, kannski hefur hann ekki verið viss um að þetta væri sami maðurinn, og það borgar sig ekki að koma fólki í geðshræringu. En ég geri ráð fyrir að þú hafir rétt fyrir þér, Len. Fyrst rænir náunginn Schlitz í vesturhluta borgarinnar, svo fer hann til VIKAN 22. tbl. — gg beint að borðinu þar sem Paul og konan hans voru nýbúin að stafla peningunum, sem þau voru að telja. Næstum fjögur hundruð dollarar. Laugardagur er sá dag- ur, sem flestir viðskiptavinir þeirra gera upp við þau, svo það getur verið að það hafi verið meira. Þau þurfa að fara í gegn- um reikningana til að vera viss“. „Voru þau meidd?“ spurði Leora. „Það leið yfir hana, en hvorugt þeirra særðist. Ræninginn setti alla peningana í bréfpoka, tók svo kjötexi og hjó sundur síma- vírana. Það var þá sem leið yfir hana, þegar hún sá hann taka öxina“. „Sama hefði komið fyrir mig“, sagði Leora.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.