Vikan - 28.05.1964, Side 36
Norðurlandaferð
15.—30. júlí
Bergen - Sognfjörður - Osló - Örebro
- Gautaskurðurinn - Stokkhólmur -
Gautaborg - Kaupmannahöfn
- Glasgow -
Hópferð með íslenzkum far-
arstjóra um fegurstu héruð
Norðurlanda.
Viðkoma í Glasgow á heim-
leið.
FERÐASKRIFSTOFAN
Hverfisgötu 12
Reykjavík
Símar 17600 og 17560
Skipagötu 13
Akureyri
Sími 2950
*
II
'loljpftair0
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
Hrútsmerkið (21. marz — 20. aprrl):
Þú ert ekki sérlega léttur í skapi um þessar mundir
vegna óhagstæSrar útkomu við uppgjör íjármála
þinna. Þú skalt leita til kunningja þíns þótt þér sé
það mótfallið, hann mun áreiðanlega ekki bregðast
þér. Þú skalt taka þátt í félagslífinu.
NautsmerkiS (21. apríl — 21. maí):
Þú missir góðan spón úr aski þínum, að öllum
líkindum fyrir vanstillingu á skapsmunum þínum
og þráa. Þú ættir ef til vill að biðja viðkomandi
afsökunar .Viðskipti eru þér ekki hagstæð en ýmis-
legt sem lýtur að framkvæmdum.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Láttu ekki of marga komast á snoðir um fyrir-
K ▼ JB ætlanir þínar. Þú færð óvænt hrós frá vinnuveit-
'•iWilí anda þínum vegna verks, sem aðallega er sprottið
af heppni þinni. Þú verður fyrir smá vonbrigðum
í sambandi við fjölskyldu þína.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Þú verður þátttakandi í fjölmennum hátíðahöldum
og skemmtun. Þú færð gnægð verkefna heima fyr-
ir, sem gleðja þig og þína. Sýndu ákveðnum manni
meiri tillitsemi en endranær. Þú þekkir ekki hug
hans vegna þess hve dulur hann er.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
©Skemmtilegar fregnir berast þér af ættfólki þínu,
sem munu hafa heillaríkar afleiðingar fyrir þig.
Þú skalt stuðla að þroska listamannshæfileika þinna.
Minnstu þess að hlutirnir verða alltaf ánægjuelgri
ef þú leyfir öðrum að njóta þeirra með þér.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. scptember):
©Því miður hefurðu komið fram við nána ættingja
þína af mikilli óháttvísi. Þú verður að taka sjálfum
þér tak og athuga gaumgæfilega hvar þú ert stadd-
ur. Þú umgengst of mikið fólk, sem kemur fram
við þig af óhreinskilni.
Vogarmerkið (24. septembcr — 23. október):
Maka þínum eða mjög nákominni persónu hefur
hlotnast öfundsverð aðstaða, það lcemur I þinn hlut
að styðja hann með ráðum og dáð. Samstarfsmað-
ur þinn býður þér til einhvers gleðskapar, sem þú
skalt óhikað þiggja.
Drekamerkið (24. októbcr — 22. nóvembcr):
Þú verður virkur þátttakandi í mjög skemmtilegri
ferð, sem farin verður núna um helgina. Þú skalt
vinna ötullega við að koma draumum þínum í
framkvæmd, þú veizt að það er undir þér sjálfum
komið hversu fljótt það vertiur.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. dcsember):
©Þú hlakkar mjög mikið til ferðar, sem þú átt í
vændum, ekki er ólíklegt að þú verðir að taka á
þig nýtt gervi í því sambandi. Kunningi þinn hjálp-
ar þér mikið við framkvæmd langdregins verk-
efnis. Þú ættir að létta þér upp um helgina.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Þú átt í vændum breytingar á högum þínum, lík-
Kirj legast er, að til að byrja með verða þær ekki til
bóta. Kunningi þinn bregzt þér er þú leitar að-
stoðar hans. Þú átt óvenjulegt samtal við gamlan
skólabróður þinn.
Vatnsbcramcrkið (21. janúar — 19. febrúar);
Þú hefur mikið að gera og mörg verkefni krefjast
úrlausnar svo að segja samtímis. Vinur þinn er
F J l (j^lítið dularfullur, en það á eftir að skýrast fyrir
þér. Fjölskylda þín hleypur undir bagga með þér.
Reyndu að gefa þér einhverja frístund.
OFiskamerkið (20. janúar — 20. marz):
Þú þarft að leiðbeina eldri persónu við verkefni,
sem þú hefur mikinn áhuga á. Þú átt margar
ánægjustundir úti undir beru lofti. Þér er nauð-
synlegt að hafa betra samband við félaga þína, þú
hefur vanrækt þá mikið í seinni tíð.
36 — ™AN 22-tbl-