Vikan - 28.05.1964, Page 49
f FULLRI ALVÖRU
Framhald af bls. 2.
ekki þó að hér hafi samdar ver-
iö sígildar bókmenntir á þeim
tíma, sem samskonar höfundar
heftSu veriö brenndir á báli í
Þýzkalandi ásamt verkum sín-
um; að við státum af meira
en þúsund ára gömlu þingi og
svo viðkvæmri menningu, að
það er óvíst livort liún heldur
sínum rétta kúrs, verði lands-
fólkinu gefinn kostur á að sjá
einhverjar tætlur af amerisku
sjónvarpi.
Allt þetta virðist sem sagt
harla lítils virði. Ég hef sjálf-
ur reynt hvaða undirtektir það
fær, þegar útlendingar eru upp-
fræddir um það, að á íslandi
séu byggð vandaðri og hlýrri
hús en víðast hvar annarsstaðar
i heiminum. Að þrátt fyrir rusl
og braggahverfi í liöfuðborginni
sé þar lífsstandard á móta við
það sem bezt gerist, að minnsta
kosti í Evrópu.
Þess háttar upplýsingar mega
sín lítils á inóti ýmsu öðru, ekki
sízt fjárreiðum þjóðarinnar og
áliti á gjaldmiðlinum. Þegar
allt kemur til alls, byggist álit
og andlit þjóðarinnar fullt eins
mikið á þeim sökum eins og
þeirri staðreynd, sem forn menn-
ing okkar er.
Ég lief oft orðið fyrir því,
að afgreiðslufólk liefur tekið
við islenzkum ferðatékkum af
mikilli tortryggni og þeir hafa
ekki fengizt útleystir fyrr en
eftir langt þóf, þó ferðatékkar
hvaðanæva annarsstaðar séu við-
líka sjálfsagður gjaldmiðill og
peningaseðlar. Það kemur fyrir
íitið að segja þessu fólki, sem
fussar þegar það sér nafn íslands
á einni lítilli ferðaávisun, að
hér sé menning mikil og forn,
sex manns á hvern bil og meira
talað i sima en viðast hvar ann-
arsstaðar. GS.
GIFTING EFTIR GATA-
SPJÖLDUM
Framhald af bls. 15.
vinnu við tæknifræðing um vís-
indalega lausn þessa vandamáls,
fer ekki hjá því að árangurinn
verður góður. Á þennan máta má
þagga niður í svartsýnismönnum
um hjónabönd, — og skilnaðar-
lögfræðingar hafa ekkert að gera.
Það hefur þegar komið í ljós,
jafnvel þótt makaval með gata-
spjaldakerfinu sé á byrjunarstigi,
að það á fullan rétt á sér. Spurn-
ingunum, sem umsækjendur eiga
að svara, er skipt niður í 9 flokka.
Það er t.d. spurt í sambandi við
bústað, hvort viðkomandi vilji
heldur búa í borg eða sveit, —
eða hvorutveggja. Vegna þessar-
ar spurningar koma fram sjö mis-
munandi möguleikar, og raf-
magnsheilinn finnur af fullu ör-
yggi einhverja aðra persónu, sem
hefur sama álit á hlutunum. Á
svipaðan hátt er unnið úr spum-
ingum varðandi trúmál, áhuga-
mál, fjármál o.f-1.
En spádómar eða stjörnufræði
koma þama hvergi nærri — en
auðvitað getur sálfræðingurinn
komið með nokkrar spurningar
í sambandi við það, og ef ein-
hversstaðar finnst maki, sem
einngi trúir á stjörnuspádóma,
þá finnur rafmagnsheilinn hann.
Vafalaust eru þeir margir, sem
finnst að 7.500 krónur sé spott-
prís fyrir framtíðarhamingju í
hjónabandi, — og aðrir, sem held-
ur kjósa gömlu aðferðina.
Hún hefur líka gefist mörgum
vel, jafnvel þótt hún sé stundum
töluvert dýrari en þessar 7.500
krónur, sem það kostar að láta
renna sér í gegnum gataspjalda-
vélina. ★
200 METRA FALL
Framhald af bls. 47.
og það getur margt komið fyrir
hjá ungum og fjörugum strákum
á þeim tíma.
Jæja, við vorum komnir ná-
lægt landamærum Persíu, þegar
regntíminn byrjaði, og við lent-
um í ofsalegum flóðum.
Það hagar þannig til, að þarna
er geysilegur þurrkur og hiti
mestan hluta ársins, og jarðveg-
urinn er svo þéttur og harður,
að vatnið sígur ekki niður. Þetta
er í fjalllendi, hinum megin við
eyðimörkina, sem ég var að segja
þér frá.
Svo kom allt í einu ofsaleg
rigning, og vatnið fossaði niður
í dalina og fyllti þá. Við vorum
svo heppnir, að við komum þarna
alveg í byrjun rigninganna, en
samt var vatnið um fet á dýpt,
og var sífellt að aukast. Það var
því ekki um annað að gera en
flýta sér áfram, áður en við
drukknuðum þarna í dalnum, og
létum því vaða yfir vatnselginn.
Samt urðum við að stanza ann-
að slagið, til að sinna bílnum,
setja á hann bensín o.s.frv. Þá
fengum við annað viðfangsefni,
sem ekki var heldur glæsilegt.
Það er geysimikið af eiturslöng-
um þarna, litlum djöfuls-snák-
um, sem eru stórhættulegir. Þeir
voru að drukkna í flóðinu, og
skriðu upp á hvað sem þeir náðu
í, og um leið og við stöðvuðum
bílinn, var ótölulegur grúi farinn
að skríða upp eftir honum. Ein-
asta ráðið var að hafa einn okkar
uppi á þaki bílsins, með blys
rennvætt í bensíni, og sópa snák-
unum niður af bílnum með því.
„Nei, við gættum þess auðvit-
að, því annars hefðum við ver-
ið illa staddir þarna í miðjum
dalnum innan um þessi kvikindi.
Nú, við komumst áfram, samt
Sumar
tizkan
1964
Ullarkápur - terrelinekápur
poplinkápur - nylonkápur
apaskinnsjakkar - hattar
hanskar og töskur.
Ennfremur glaesilegt úrval
af allskonar sumardrögtum
Póstsendum
Laugavegi 59 - slml 1 44 22