Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 28.05.1964, Qupperneq 51

Vikan - 28.05.1964, Qupperneq 51
sem áður, og áður en langt leið, komum við til þorps, þar sem voru um 4000 íbúar. Við þorð- um ekkert að stanza þar vegna flóðahættunnar, svo við héldum áfram. Við fréttum það daginn eftir, að óskapleg flóðalda hefði skollið á þorpinu og sópað þar öllu í burtu og drekkt öllum íbú- unum. Nokkru síðar komum við svo til stærri borgar og ókum beint inn í hana og stönzuðum ekki fyrr en á aðaltorginu í bænum. Þar ætluðum við að hvíla okkur um stund. En við vissum ekki fyrr til en brjálaður múgur réðist að okkur þarna í bílnum, með bareflum og ópum. Við vissum ekki hver ástæðan var, en fréttum síðar, að ræningjar hefðu verið á ferð þar í nágrenninu, og stolið mat- vælum og öðru, sem bágstöddu fólki var ætlað vegna flóðanna. Múgurinn áleit okkur vera þessa ræningja, og ætlaði að kála okk- ur umsvifalaust. Við höfðum læst öllum hurð- um, svo þeir komust ekki inn í bílinn, en þeir komust að vélinni, opnuðu vélarhlífina og gerðu vél- ina óstarfhæfa, svo við gátum ekkert komizt áfram. Svo réðust þeir að bílnum og ætluðu að velta honum, og kveikja í. Ég sá að við svo búið mátti ekki standa, svo ég greip ein- hverja járnstöng, sem ég fann í bílnum, og réðist út. Svo sveifl- aði ég járninu í kringum mig, lamdi nokkra niður, en hinir hörfuðu aðeins frá. Þetta dugði í bili, en sýnilegt hver endirinn mundi verða, því ekki gat þetta gengið svona lengi. Þá heyrði ég allt í einu upp- hrópun á finnsku úr þvögunni. Þar var þá kominn verkfræðing- ur, sem starfaði þarna í bænum, og var giftur finnskri konu. Hann hafði séð áletrun á finnsku á hliðum bílsins, og þóttist vita að við værum engir ræningjar. Við skiptumst á nokkrum orð- um, og svo hljóp hann í burtu, en ég hélt áfram að berja frá mér með járninu. Eftir nokkra stund komu tvær stórar bifreiðar brunandi, og í þeim um tuttugu alvopnaðir lögreg’ubjónar. sem réðust þegar á múgirm og fæídu hann í burtu, en bundu bílinn okkar svo aftan í annan vöru- bílinn og arógx: okkur tii gisti- húcsins í bænum':. — Og sannfærðist mv.p-rinn um að þið væruð ekki ræningj- arnir? ,,Það held ég. Að minnsta kosti vorum við látnir afskiptalausir úr því. Þarna vorum við svo nokkuð lengi í gistihúsinu, hvíldum okk- ur, gerðum við bílinn og svoleiðis. Fólkið, sem bjó þarna var Múhammeðstrúar, eða játaði ein- hverja grein þeirra trúarbragða. Einn mánuður á ári hverju var álitinn heilagur, og þá fóru fram þrjár undraverðar breytingar hafa orðið á LUX $ NÝJAR aðlaðandi umbúðir $ NÝTT glæsilegt lag $ NÝR heillandi ilmur Hin fagra kvikmyndadis Antonella Lualdi vill ekkert nema Lux-handsápu. Ástæban er sú, að hin mjúka og milda Lux-handsápa, veitir hinu silkimjúka hörundi kvenna þá fullkomnu snyrtingu, sem það á skilið. Lux-handsápan, sapan sem 9 af hverjum 10 kvikmyndastjörnum nota, fæst nú í nýjum umbúðum, með nýrri lögun og með nýjum ilm. Veljib ybur hina nýju eftirsóttu Lux-handsápu. í hvitum, gulutn, bleikum, bláum eba grcenum lit. Verndið yndisþokka yðar íjieð LUX-handsápu --------með Schick ryðfría rakblaðinu með langvarandi egginni fengu þeir allir þann mýksta og þægilegasta rakstur, sem þeir höfðu nokkru sinni upplifað. Hvert blað gefur sömu þægindin dag eftir dag í 10 — 15 — 20 rakstra og jafnvel enn fleiri. Við auglýsum sjaldan. Schick-blaðið gerir það sjálft, og þar af leið- andi er verðið lágt. 3 blöð í pakka kr. 19,85. 5 blöð í hylki kr. 32,95. PASSAR í ALLAR RAKVÉLAR. Heildverzlun Péturs Péturssonar, Suðurgötu 14, sirai 19062

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.