Vikan - 28.05.1964, Síða 58
UNGFRÚ YNDISFRÍÐ
býður yður hið landsþekkta
konfekt frá N Ó A.
HVAR E R ÓRKIN HAfclS NOA!
l*a» cr alltat saml lelkurlnn f hdnnl Ynd-
isfríð okkar. Hún hclur fallS örkina hans
Nóa einhvcrs staðar í hlaðinu og heitir
góðum verðlaunum handa þcim, sem getur
fundið örkina. Verðlaunin eru stér kon-
fektkassi, fullur af hczta konfektl, og
framleiðandinn cr auðvltað Sælgætlsgerð-
in Nói,
Heimlll
Örkln er & hls.
Síðast er dregið var hlaut verðlaunin:
Guðbjörg Svava SigurSardóttir, vinninganna m4 vitJa á skrifstofu
Bogahlið 20, Rvík. Vikunnar. 22. tbl.
J
Sumarkjólar
nyjasta tízka.
Fjölbreytt úrval
af nýtízku
blússum
og peysurn
L
þingholtsstræti 3 slmi 11987
og svo vorum við frjáls ferða
okkar. Þá var klukkan orðin eitt-
hvað fimm að morgni. Spánski
ofurstinn vildi að við yrðum eft-
ir í Tangier í einn dag í viðbót,
en Mr. Pimm féll næstum því í
öngvit, þegar hann heyrði þessa
uppástungu. Svo að við flýttum
okkur að ná í fyrstu vél frá
Tangier í morgun, og — ja, hér
er ég.
Matilda frænka var farin að
hafa áhyggjur út af einhverju í
fari Annabelle, sem var ekki
fyllilega eins og það átti að vera.
Hún sagði: — Og hvar eru hin-
ir?
-— Þeir eru sennilega í Villa
Marguerite. Þeir náðu í leigubíl
handa mér á flugvellinum.
— Þetta er furðulegt, sagði
Matilda frænka. — Alveg furðu-
legt, frá upphafi til enda.
Stuttu síðar sagði Malraux, að
málinu væri ekki hér með lokið,
það þyrfti að yfirheyra fleiri, ef
til vill eftir svosem tvo daga,
en nú ætlaði hann þó að fara.
Hann óskaði Annabelle til ham-
ingju með að vera orðin frjáls
á ný. Hann kvaddi Monsieur og
Madam, kallaði á menn sína, og
stuttu síðar voru þeir farnir.
Green fylgdi þeim til dyra, en
þegar hann kom aftur sagði Mat-
ilda frænka: — En kæra Anna-
belle, hvað gekk eiginlega að
Timothy Pimm, það get ég ekki
skilið. Þegar þeir vissu, að þér
hafði verið rænt, hvers vegna
fóru þeir þá ekki beint til lög-
reglunnar í stað þess að þjóta til
Tangier á eftir þér sjálfir?
Annabelle sagði: — Ég spurði
einmitt um þetta sjálf.
— Jæja, hvaða ástæðu höfðu
þeir fyrir þessu?
Annabelle hló vandræðalega.
— Þetta hljómar einkennilega.
En eftir því sem Mr. Pimm sagði,
þá höfðu þeir farið til Tangier
vegna þess að hann gat ekki um-
borið að sjá eina af ungu stúlk-
unum sínum lenda í krumlunum
á einhverjum ómerkingum. Hann
hefði ekki tekið þetta alltof
nærri sér, ef Stem hefði verið
einhver, sem hann gæti verið
þekktur fyrir að láta sjá sig með,
en hann gat ekki þolað að bara
einhver og einhver rændi mér.
Matilda frænka sagði: — Þetta
er allt saman eitthvað gruggugt.
—■ Það segirðu satt, Matilda,
sagði Green. — Það ætti að loka
þá alla saman inni, alla með tölu.
— Þessi Timothy Pimm, sagði
Matilda frænka. — Ég veit sann-
arlega ekki hvað við eigum að
gera. Og Julian og Henri, sem
þykist vera Mechlenstein.
Annabelle sagði: — Þar eru að
minnsta kosti engin svik í tafli.
— Það getur vel verið. En
Annabelle mín, það er heldur
kjánalegt að þurfa að votta þakk-
læti sitt. En eftir að við höfum
komist að hinu sanna um þá,
hvernig lízt þér á þessa þrjá
þorpara?
Annabelle var niðurlút, og
stuttu síðar andvarpaði Matilda
og sagði: — Nú, ég veit heldur
ekki hvað ég á að hugsa um þá.
Ég er alveg rugluð.
Annabelle sagði: — Ég líka.
Hún stóð þegjandi stundar-
korn. Síðan grúfði hún andlitið
í höndum sér, brast í grát og
hljóp út úr herberginu.
14. KAFLI
Julian, Henri og Mr. Pimm
sátu úti á svölunum daginn eftir.
Danielle og Carlo hafði verið
sleppt úr haldi, og sólin skein
í heiði, en ekkert gat orðið til
þess að lífga þennan drungalega
hóp við.
Loks sagði Mr. Pimm: — Kæru
vinir, ég get ekki ímyndað mér
hvað fólkið heldur um okkur í
Villa Florentina. Þetta er hræði-
legt, hræðilegt, Miriam Harrison,
Mary-Joe, og Manderville, Pris-
cilla Whipple, Margarete del
Campo — annað eins hefur aldrei
komið fyrir áður. Hvers vegna
í ósköpunum þurfti þessi skepna
Stem að segja Annabelle allt af
létta um okkur? Hann er búinn
að gjöreyðileggja öll þessi dá-
samlegu áform okkar.
Julian sagði: — Hvaða máli
skiptir það. Peggy var hvort eð
er búin að sjá Danielle og Carlo.
Eddie sagði: — Það er ekki enn
búið að segja mér, hvað þau
voru að gera, þarna sem þau
keyrðu saman eftir breiðgötunni.
Julian sagði: — Þau fóru til
Nice með strætisvagninum með
eitthvað, sem hún hafði mallað
ofan í hann. Og Carlo hélt að
hann gæti skilið Denzel eftir svo
sem klukkutíma, svo að hann
keyrði Danielle aftur hingað.
Svo einfalt er það nú.
Þau störðu út í tómið. Þá sagði
Julian: — Það er bara eitt, Mr.
Pimm, hvert eigum við að fara
héðan?
— Kæri vinur, sagði Mr.
Pimm, — við getum ekki verið
hér áfram í Cannes, við verðum
að hafa okkur á brott, það gefur
auga leið. • Við gætum aldrei
horft framan í Miss Matildu án
þess að blikna.
— Það er víst alveg rétt.
Framhald í næsta blaði.
TVÖ N Ý HEFTI
Þriðja heftið af Nýjum danslagatextum
var að koma út. í heftinu eru aðeins
islenzkir textar við öll nýjustu lögin.
Beatles — mynda- og danslagatexta-
heftið er fyrir nokkru komið út í því
eru 23 textar við Beatleslög og 23
myndir af þessari heimsfrægu hljóm-
sveit.
Sendið kr. 25,00 fyrir hvoru hefti og
þið fáið það sent um hæl burðargjalds-
frítt.
NÝIR DANSLAGATEXTAR
PÓSTHÓLF 1208 — BVÍK.
gg — VIKAN 22. tbl.