Vikan - 17.09.1964, Síða 4
Lð ofan til vinstri: Það var dálitið erfitt að róa
vona flekum, Því undir þeim voru kútar og bíl-
löngur - til þess auðvitað að halda flekunum fljót-
mdi. Þeir vildu gjarnan sporðreisast, og svo var
:rfitt að halda í horfinu. Það verður ekki hetur seð,
m að iðnaðarmenn séu að rísa upp úr kafinu en
Að ofan: Iðnaðarmenn komnir á fjóra fætur og
cru að rétta úr kútnum, en bændur eru a siversn-
andi grundvelli...
a ... og þar eru þeir komnir í kaf. Ein stétt getui
ekki fallið, án þcss að önnur nátengd bíði hnekki
við enda cr iðnaðurinn kominn upp á rönd ...
Siðan
síðst
17 júní s.l. var mikið um dýrðir
í Mosfellssveit. Þar áttu að fara
fram hátíðahöld í tilcfni dags-
ins — í fyrsta sinn, scm það
hefur verið reynt í þeirri sveit,
en hún er svo nálægt Reykja-
vík, að íbúar hennar sækja yfir-
leitt flestir þangað. Og um leið
átti að vígja nýja sundlaug að
Varmá. Varmá er skammt frá
Hlégarði, og þar var einu sinni
myndarbú, en nú hefur búskap-
ur þar fyrir löngu verið lagður
niður og landinu skipt. Á síð-
ustu árum hefur hins vegar
verið unnið þar að byggingu
nýs skóla í stað gamla Brúar-
landsskólans, sem löngu er orð-
inn ófullnægjandi, |og sund-
laugar.
Og að sjálfsögðu var sundlaug-
in notuð til skemmtiatriða.
Hreppsnefndin og stjórn ung-
mcnnafélagsins kepptu í boð-
sundi — og ungmennafélags-
stjórnin vann með litlum yfir-
burðum, og svo var keppt í boð-
róðri á fiekum milli bænda og
iðnaðarmanna, búsettra i sveit-
inni. Því miður er þeim, er
þetta ritar, ekki kunnugt um
úrslit í þeirri grein, því áhorf-
endum, sem skemmtu sér kon-
unglega, var ekki ljóst, hvort
nokkurn tíma var keppt til úr-
slita. En Sigurjón Jóhannsson
var á góðum stað með mynda-
vélina og tók myndir af fleka-
kappinu.
<> En bændur eru þolgóðir og fljótir að
koma sér á réttan kjöl að nýju. Að vísu eru
sparifötin ekki sérlega fín lengur og skyrtan
full af vatni, en hatturinn cr þó á sínum stað
— og iðnaðarmaðurinn í kafi.
_ VIKAN 38. tbl.