Vikan - 17.09.1964, Qupperneq 7
/
að, að litirnir líkjast helzt fyrsta
flokks abstrakt málverki.
Svo er eitt enn, sem væri mikil
blessun fyrir barnafjölskyldur,
það eru sumarhús til leigu. Þetta
fyrirkomulag hefur mikið rutt
sér til rúms í útlöndum á seinni
árum og það væri víst hægt að
kynna sér þetta nánar þar sem
reynslan í þeim efnum hefur
fengizt. Ég hef veitt því athygli,
að barnafjölskyldur geta ekki
verið lengur í einu en 2 eða 3
daga. Hvernig gætu þær verið
það, þegar hótelverðið fyrir
hvern mann á dag er 400 kr.?
Og með smábörn er ekki hægt
að liggja í tjöldum lengri tíma.
Ég hef séð að fólk kemur inn á
hótelið og biður um næturstað
vegna þess að það er of kalt í
tjöldunum fyrir börnin.
Væri ekki heppilegt, að fjöl-
skyldur gætu leigt sumarhús fyr-
ir 100—150 kr. á dag í viku eða
lengur?
En, góða kona, ætlar þú að
leggja til þessar milljónir, sem
þarf til þessa alls?
Það get ég ekki, en ég get
bent á leið sem mundi gera þetta
allt mögulegt smátt og smátt.
Það er að láta hvert herbergi,
sem leigt verður og hvert tjald
borga smáupphæð, segjum 50 kr.
fyrir hverja nótt sem gist verð-
ur á þessum stað. Með þessu
móti mundu fjölskyldur ekki
borga meira en einstaklingar.
Þetta kallast ,,kurlage“ á megin-
landinu. Fyrir þetta gjald verð-
ur gert allt, sem þarf til að gera
einhvern stað að reglulegum
hressingarstað: Leggja og slétta
vegi, setja upp bekki hér og þar,
halda í lagi þessum tröppum,
sem ganga yfir girðingarnar og
margt fleira.
Ég skrifa þessar línur í þeirri
von, að áhugi gestanna á þessum
fallega stað muni verða hvatn-
ing fyrir viðkomandi aðila til að
endurbæta og byggja upp eitt
horn í sínu góða föðurlandi.
Gabriele Jónasson.
Réttlæti á báða bóga
Kæra Vika!
Mig langar til að skrifa þér til
að fá góð ráð.
Svo er mál með vexti, að ég
er 14 ára og á versta aldri eins
og sagt er. — Ég á mjög góða
foreldra, sem vilja flest fyrir mig
gera. En þó það sé nú svona, þá
get ég ekki annað en farið á bak
við þau með ýmislegt.
Eitt af því fáa sem foreldrum
mínum er illa við, er að ég sé
seint úti á kvöldin. Ég á marga
góða vini. Sérstaklega erum við
fimm krakkar, 3 stelpur og 2
strákar, sem halda hópinn. Við
höfum stofnað nokkurs konar
félag, þar sem við erum að reyna
að hjálpa einum bekkjarfélaga
okkar, sem er farinn að drekka
og reykja mikið, —- en þó mikið
til í laumi. Við höldum fundi hjá
einni vinkonu minni á kvöldin.
Á daginn er það ekki hægt, því
þá erum við í vinnu. Tíminn líð-
ur ótrúlega fljótt á kvöldin, svo
sem margir kannast við þegar
margt þarf um að ræða. Ég
ranka kannski við mér korter yfir
ellefu og þá á ég eftir að labba
heim, sem er 20 mín. gangur.
Og svo þegar ég kem heim er
ausið yfir mig skömmum. Ekki
bætir það úr þegar strákarnir
vilja labba með mér heim og
við mætum mömmu og pabba
svo á miðri leið. Það hefur ekki
svo sjaldan komið fyrir. Og þá
segir pabbi:
„Ég held þú ættir að skamm-
ast þín, að vera úti með strákum,
og það svona seint á kvöldin."
En það er ekki gaman að þessu.
Ég get ekki beðið strákana að
láta mig ganga eina heim. Þeir
halda þá að ég sé eitthvað reið
út í þá, og ég get heldur ekki
sagt foreldrum mínum frá félags-
skap okkar, því við viljum ekki,
að neitt komizt upp um þennan
vin okkar.
Kæra Vika, hvað á ég að gera?
Ég vona að þú gefir mér góð ráð
og það fljótt. Að minnsta kosti
áður en ég leggst undir græna
torfu af áhyggjum.
Með fyrir þökk.
Ein í miklum vanda.
Ps. Hvernig er skriftin og staf-
setningin?
--------Settu þig í spor foreldra
þinna. Þeir vita ekki hvað þú
ert fórnfús, og hvað þú ert að
gerá á kvöldin, þegar þú kemur
heim rétt fyrir miðnætti.
Ef þú ætlast til skilnings og
réttlætis af þeim, þá verður þú
líka að sýna þeim skilning og
réttlæti. Segðu þeim allt af létta,
hvað þú ert að gera, og í hvaða
tilgangi þú ert úti. Þá — vertu
viss — færðu leyfi til þess, virð-
ingu þeirra og það réttlæti og
skilning, sem þú bíður eftir.
Skriftin er óvenju falleg og
stafsetningin góð.
Notaðir bílar
og nýir
f miklu úrvali og við allra efni
Öll þekktustu merkin á markaðnum
Seljum gegn: staðgreiðslu, afborgunum, tryggum skuldabréfum og
vel tryggðum víxlum.
Komið, skoðið og kaupið
Gamla Bílasalan Rauðará
Skúlagötu 55 — Sími 15812.
VIKAN 38. tW. — rj