Vikan - 17.09.1964, Qupperneq 9
gengur í bílum yfirleitt, en smur-
ljós og rafmagnsljós er ekki nóg.
Hvorugt kviknar, fyrr en í óefni
er komið, og þegar það kviknar,
heldur maður, að nú hafi eitt-
hvað bilað í ljósasysteminu, en
trúir því ekki að eitthvað hafi
komið fyrir smurninginn eða raf-
magnið. Mér finnst það alltaf
jafn argvítugt og ræfilslegt, að
láta sig muna um að setja þessa
tvo mæla í bílana. Þeir gætu
margri vitleysunni bjargað í
tæka tíð — áður en alvarleg bil-
un hefur orðið.
Hægra megin í mælaborðinu
er svo allgóður öskubakki, en
galli á gjöf Njarðar er sá, að
yfir honum gnæfir fyrirferðar-
mikill vindlakveikjari, sem reyk-
ingamönnum hættir áreiðanlega
til að reka reykfæri sín í, og
sáldra þannig öskunni og jafnvel
glóðinni niður um allan bíl. Og
yzt er sæmilegt hanzkahólf.
Bíllinn er heldur rúmgóður að
innan, bæði á breidd og lengd,
en ég get ímyndað mér, að há-
vaxnir menn eigi í erfiðleikum
með hattana sína. Framsætin hef
ég þegar talað um; þau er að
sjálfsögðu hægt að færa nokkuð
fram og aftur, og eins hægt að
stilla hallann á bakinu. Aftur-
sætið er sófatýpa, allgott sæti, og
það er gott að vera aftursætis-
farþegi í NSU Prinz 1000. Stokk-
urinn í gólfinu er lágur og eng-
um til ama. Aftan við aftursætið
er örlítil skrankista í Fólksvagns-
stæl, og önnur undir setu aftur-
sætisins. Aftursætisbakið er hægt
að leggja niður, og fá þar all-
sæmilegt farangursrúm, þegar
tveir — tvær — tvennt — er á
ferð. Og í hliðum hússins, sitt
hvorum megin við aftursætið, eru
tvær þokkalegar ruslagjótur, svo
sæmilega er séð fyrir þörf þeirra,
sem þurfa að hafa sitthvað smá-
legt með sér. Að framan er svo
allrúmgóð farangursgeymsla,
miðað við það sem gerist á skott-
mótorsbílum.
Því vélin er aftur í NSU Prinz
1000, og það þykir mér nokkur
galli. Það kann að vera tilfinn-
ingalegs eðlis, en ég er alltaf
heldur á móti því, að hafa mót-
orinn fyrir aftan allt. En þar er
hann eigi að síður, og snýr þvers-
um, og virðist allsæmilegt að
komast að helzta pilliríi. Mótor-
inn er lágvær inni, nema þegar
miðstöðin er á, þá heyrist tölu-
vert inn. Hjá honum er að sjálf-
sögðu gírkassinn, sá ómissandi
hlutur, en þessir hlutir ná nokk-
uð langt niður, svo stutt er eftir
í veginn. Hæð undir botn á NSU
Prinz 1000 er gefin upp 19 sm,
en hræddur er ég um, að gír-
kassinn og pannan séu nokkru
neðar. En Ómar sagði mér, að
til stæði að setja stálhlíf undir
allt þetta dót, og hygg ég það
vel ráðið.
Á Prinzinum, sem ég reyndi,
tók kúplingin full ofarlega, en
þegar ég hafði sætt mig við það,
líkaði mér allvel að aka honum.
Hann lá prýðisvel, og þoldi vel
beygjur á nokkurri ferð, gírskipt-
ingarnar léttar og nákvæmar og
náttúrlega allir gírar samstilltir.
Stýringin létt og nákvæm, og
skyggni aftur úr og fram úr ljóm-
andi gott. Vinnslan í hestunum
51 þarna aftur í skotti ljómandi
góð og þá ekki síður þanþol gír-
anna í báðar áttir. NSU Prinz
getur státað af einhverju mesta
Framhald á bls. 29.
ULTRfi+LftSH Mascara
TIL AÐ LENGJA OG LENGJA ENNÞA
IVIEIR SILKIMJÚK AUGNAHÁR.
ULTRA*LASH er fyrsti augnháraliturinn sem
lengir og þéttir augnahárin án þess að gera
þau stíf. Þessi einstaka efnablanda lengir án
gerviþráða. Allt sem þér þurfið að gera er að
bera ULTRA*LASH á með hinum hentuga
TAPER-BRUSH sem byggir upp um leið og
hann litar hvert augnhár. Ekkert auka erfiði
og ekkert ergelsi út af gljáalausum og klístr-
uðum augnhárum. ULTRA*LASH hleypur ekki
í kekki, né skilur eftir klessur eða bletti. Þetta
er fyrsta skaðlausa efnið sem lengir og þéttir
augnhárin, þolir vatn og er lyktarlaust. Sér-
staklega auðvelt að hreinsa á nokkrum sekúnd-
um með Maybelline Mascara Remover. Kemur
í þrem góðum litum: VELVET BLACK, SABLE
BROWN og MIDNIGHT BLUE.
JlwfÆm
cilltaf það hreinasta og bezta fyrir fegurð augnanna:
um
CHÍUSIGTl
BÍLABÚÐ Sb ÁRMÚLA
VIKAN 38. tW. — 0