Vikan - 17.09.1964, Blaðsíða 12
Dömur — og herrar líka — verða að fæð-
ast. Það er ekki hægt að búa þau til, eins og
hver önnur áhöld. Til þess að hægt sé að
kalla þig dömu, verðurðu að göfga tilfinn-
ingar þínar að því marki, að þú finnir þig
knúða til að vera betri við aðra en þú gerir
þér vonir um að þeir verði við þig. Prúð-
mennska er sálarlegur eiginleiki. Hann fel-
ur í sér meðaumkun með karlmönnunum,
náungum þínum; meðfæddan góðleika.
Að mínum dómi er Bella Barlay í sannleika
sagt dama, þótt hún sé ein af helztu gaman-
leikkonum okkar tíma. Það væri ekki henni
líkt að koma klukkutíma of seint á stefnu-
mót með hræsnisfullt og kæruleysislegt: „Ó,
elskan, hefurðu beðið?“ á vörunum. Það, sem
þú kannt að hafa lesið um „listamannaskap-
ferli“, er ekkert annað en frásagnir af fólki,
sem ekki kann að hegða sér.
Svo sagði hún, móð og másandi: „Vinur
kær, mér þykir þetta svo leiðinlegt. Ég er
fimmtíu og fimm mínútum of sein. Tíminn
er lífið. Óstundvísi er nokkurskonar morð.
En, trúðu mér, það var nærri búið að drepa
mig. Það skeði á Hótle Mirage. Það var troð-
ið á mér og ég var lamin.“
„Af aðdáendum þínum?“ spurði ég.
„Ekkert svoleiðis. Það vildi svo til að ná-
ungi, sem kallaður er Hip-Hip Thomas, var
staddur þarna — blóðríkur, ofvaxinn, dún-
mjúkur piltungur, óþroskað eftirlætisbarn,
sem syngur jafnvel eins og safaríkur
skemmdur ávöxtur. Jæja, þessu fyrirbrigði
er um það að kenna að tæplega gjafvaxta
stúlkur í strigabuxum hrintu mér, umkringdu
mig og — hvort sem þú trúir mér eða ekki
— kölluðu mig „litlu mömmu“. Svo að ég
verð að biðja þig innilega afsökunar."
Ég sagði: „Það er alger óþarfi. Stúlkur
verða alltaf stúlkur. Og það er ekki bannað
að kreista neinn. Ég leyfi mér að segja, að
þú hafir sjálf þjarmað þannig að hetjum
æsku þinnar.“
„Þetta orð „kreistingar“ var ekki notað í
mínu ungdæmi. Að vísu hvísluðumst við á
um Á.M. Það er skammstöfun á Ástríðan
Mikla. Það var þegar ég var í skóla. Þá
höfðum við betri stjórn á ástríðum okkar
en nú gerist. Amma mín, til dæmis, varð
óbjarganlega ástfangin í Liszt, tónskáldinu
mikla; allt til æviloka bar hún vindilstúf,
sem hann hafði fleygt frá sér, í nisti um
hálsinn, en hana hefði aldrei dreymt um að
ávarpa hann án þess að þau hefðu áður ver-
ið formlega kynnt hvort fyrir öðru. Einnig
átti ég frænku, sem sór þess eið að giftast
Rússakeisara eða engum ella. Hún hélt eið-
inn, en aldrei mundi það hafa hvarflað að
henni að slíta hnappana af jakkanum hans.“
Ég spurði: „Og þú sjálf?“
Hún svraði: „Mínar þrár voru alltaf af
göfugra tagi, eins og listakonu sæmdi. Þrettán
ára varð ég ástfangin af franska rithöfund-
inum fræga, Guy de Maupassant. Ég segi
þetta ekki af því að ég telji líklegt, að þú
BELLA BARLAY BROSTI.
„ÞETTA MINNIR SVO MIKIÐ A
DRAUM, FINNST ÞÉR EKKI?“
SAGÐI HÚN. „KANNSKE
ÉG HAFI GERT ÞESSU
AUMINGJA HEIMSKA UNGA
FÚLKI RANGT TIL.
ÞAÐ ER DÁSAMLEGT AÐ VERA
UNGUR OG HEIMSKUR ...
BARA AÐ ÞAU HEFÐU EKKI
KALLAÐ MIG „MÚMMU
LITLU.“
menið. Að hugsa sér! Að vera neyddur til að
lesa hinn mikla Maupassant! í mínu ungdæmi
urðu mæður okkar stundum að læsa bækur
hans niðri í skúffu, svo við næðum ekki í þær.“
Ég lét móðgun hennar sem vind um eyru
þjóta og sagði: „Kæra frú, jafnvel þótt þú hefð-
ir haft áhuga á hinum hundleiðinlega Racine,
hefði þinn persónulegi áhugi á honum rifið
hann upp í augum veraldarinnar. Ég segi ekki
að fólk myndi endilega lesa hann, en það
myndi segja: „Fyrst Bella Barley heldur upp
á hann, hlýtur eitthvað að vera við hann.“
„Ljúgðu! Ljúgðu! Þú sefar taugar mínar með
smjaðrinu í þér,“ sagði hún. „Komdu, við skul-
um fá okkur glas af sherry.“
„En afsakið mig,“ sagði ég. „Guy de Mau-
passant dó áreiðanlega meðan þér voruð aðeins
barn.“
„Hvað kemur það málinu við?“ spurði hún.
„Ást mín til hans var aðeins andleg.“
„Gott og vel, fyrst það var þannig," sagði
ég, „gæti þá ekki hugsazt að ást nútíðar ungl-
inga á rokkstjörnum væri svipaðs eðlis?“
Hún sagði þvermóðskulega: „Ég sé ekki sam-
bandið."
„Myndir af strákum eða stelpum, sem maður
klippir út úr blöðum og festir upp á vegg,
heyra ímynduninni til,“ sagði ég. „Er þá í
rauninni nokkur munur á því að festa mynd
af Hip-Hip Thomas upp á vegg hjá sér og því
að ganga með vindilstubb eftir Liszt í nisti
um hálsinn?“
„Jú, það er munur á því tvennu. En við vor-
um að tala um einn mesta frásagnarsnilling
allra tíma, Guy de Maupassant. Ég sá styttu af
honum í Solferinogarðinum í Rouen, snemma
árs 1908.“
„Þú hefur varla verið nema fimmtán ára þá,
geri ég ráð fyrir.“
„Já. í Englandi og Ameríku voru sögur þessa
mikla manns álitnar óheppilegt lestrarefni fyr-
ir ungar stúlkur, því að hann var hvassyrtur,
kaldur og ruddalegur í skrifum sínum um ást-
ina, en á meginlandi Evrópu óð hann uppi í
öllum beztu kventímaritunum. Ég held ég hafi
verið búin að lesa allar sögur hans áður en
ég varð fjórtán ára, og ég get ekki munað að
ég hafi verið neitt verri fyrir það. Nema hvað
ég lét það, sem þið mynduð kalla „kreistingar"
ganga út yfir manninn sjálfan. Ég varð að fá
að vita allt um hann, gott, vont og það sem
engu máli skipti. Mest af því, sem ég heyrði,
var annað hvort ljótt eða einskisvirði. En þeg-
ar ég í einrúmi horfði á litla mynd af hon-
um, sem ég hafði aflað mér, sagði ég stund-
um við hana: „Æ, aumingja Guy minn! Ef
þú hefðir kynnzt mér, hefðirðu ekki verið
svona lauslátur; og vegna trúar minnar á þig,
hefðirðu kynnzt þýðingu hinnar sönnu ástar!“
Með því átti ég við eitthvað sem minnti á vor, «
blóm, rómantík — eitthvað sem minnti á sam-
líf foreldra minna — en nú geri ég mér grein
fyrir, að það hefði ekki hentað fyrir Guy de
Maupassant.
En það var einmitt út af þessu, sem ég lenti
MADURINN i SMFERINOGJ
hafir áhuga á því. Þitt erindi við mig er
aðeins að forvitnast um fortíð mína, og það
fólk, sem les þesskonar efni, sem þú skrifar,
hefur varla einu sinni heyrt Guy de Mau-
passant nefndan — þó svo að mér sé sagt
að skólastúlkur séu neyddar til að lesa Háls-
í rifrildi •— það kom annars sjaldan fyrir — við
minn mikla sýningarstjóra, leynilegan trúnaðar-
mann og vin allrar veraldar, Jean de Luxe.
Hann hló að mér og sagði: „Ég þekkti Guy de
Maupassant. Hann leit út eins og lítill tarfur
— hálsdigur, bringubreiður, með hrokkið, brúnt
— VIKAN 38. tbl.