Vikan - 17.09.1964, Síða 31
stofunni. ÞaS þurfti ekki að gó í
úrkomumælana; það hafði ekki
komið dropi úr lofti allan daginn,
svo það var lótið nægja að líta ó
hitamælinn. Hann sýndi 13 stiga
hita, og sá niðri við grasið var á
sama máli.
Annars sagði Gfsli, að það gæti
verið allt að 10 stiga munur á hon-
um og þeim, sem hærra stendur.
Nú vantaði klukkuna 15 mfnútur
í tíu, og Páll var jafn knúsrólegur
og fyrr, ekki farinn að skrifa staf
af spánni, sem átti að lesa í útvarp-
inu eftir stundarfjórðung. Jón loft-
skeytamaður var farinn að hita kaffi
handa okkur og Gfsla varð tíðlitið
til hans. Þá fyrst sótti Páll spádóma-
bókina og skrifaði upp spána, hægt
og rólega: Suðvestur mið: Austan
kaldi, dálítil rigning . . . o.s.frv.
Þegar hann hafði lokið spánni,
tók Gísli við henni og sendi hana
með prentsíma til útvarpsins. Því
var lokið 8 mínútur fyrir tíu. Og
ég, sem hélt, að þeir sætu við sveitt-
ir allan sólarhringinn, og spárnar
fæddust með stunum og þrautum,
eftir mikið naglanag.
En forvitni minni var enn ekki
svalað til fulls:
— Maður heyrir oft f veðurlýs-
ingum ykkar, Páll, að skyggni sé
þetta og þetta mikið. Hvernig mæl-
ið þið það?
— Við höfum kort eða töflu yfir
fjarlægðir kennileita á hverri stöð.
Ef til dæmis, að við sjáum Esjuna
héðan yfir Kjalarnesið, vitum við
að skyggnið er minnst 15 kílómetr-
ar.
Páll tók fram kort yfir Reykjavík
og nágrenni, og sýndi mér hvernig
hringir voru dregnir á það í ákveð-
inni fjarlægð frá flugvellinum. Sá
yzti var um 20 kílómetra frá mið-
punkti.
— En ef þið sjáið nú lengra en
út fyrir þennan yzta hring, segið
þið þá „skyggni ágætt"?
— Já, við segjum það í útvarp-
inu. En fyrir okkur höfum við fleiri
skyggnismörk. Til dæmis ef við sjá-
um Snæfellsjökul, vitum við að
skyggnið er að minnsta kosti 120
kílómetrar.
Ósjálfrátt leit ég út um gluggann
í vesturátt. Ég sá ekkert nema grá-
an flugskýlisvegg, fáeinar flugvélar
og nokkra skúra. Ég leit hærra: Þar
var aðeins blár himinninn.
— Þið verðið að fara eitthvað
burt, til að sjá skyggnið.
— Já. Það sést ekkert hér, nema
flugskýlið hérna megin og Öskju-
hlíðin hinum megin.
— Er þetta nógu gott?
— Nei, alls ekki. Enda er þetta
aðeins til bráðabirgða, vonar mað-
ur. Veðurstofan hefur nú fengið
lóð, en þá er enginn peninugr til.
Við borgum sjálfsagt ekki nóga
skatta til þess. Samt hefur staðið
til, frá þvt að Veðurstofan tók til
starfa, að byggja yfir hana „eins
fljótt og auðið yrði".
í þessu bili kom gestur inn í Veð-
urstofuna. Maður á bezta aldri, ró-
legur í fasi. Hann spurði um horfur
3TUHHCM
| (3TUHHCH) I H - jj - |
I izka!
LUCAS - C.A.V. - GIRLING
Notið ávallt orginal varahluti:
LUCAS
varahlutir í rafkerfiS.
C.A.V.
varahlutir í olíukerfiS og
stærri rafkerfin.
GIRLING
varahlutir ( hemlakerfiS.
Höggdeyfar.
AÐALUMBOÐ FYRIR
JOSEPH LUCAS (EXPORT) LTD.
R. SÆMUNDSSON
umboðs- og heildverzlun
Laugavegi 176 — Slmi 37456.
Söluumboð:
BLOSSI S.F.
Laugavegi 176 — Slmi 23285.
1234567890
ABCDEFGHIJKL
VIKAN 38. tbl. — gj