Vikan - 06.05.1965, Síða 14
FRAMHAIDS
SAGAEFTIR
IAN
FLEMING
EINKARÉTTUR Á ÍSLANDB:
VIKAN 4. HLUTl
Það sem áður er komið:
Bond er á leið heim frá Mexíkó
eftir að uppræta þar eiturlyfja-
hring, sem teygði klær sínar til
Englands. A leiðinni rekst hann á
bandariskan kaupsýslumann, sem
ræður hann til eins dags til þess
að koma upp um spilasvik ensks
auðkýfings, Auric Goldfinger. Bond
gerir svo og lætur Goldfinger kosta
þægilegan lestarklefa fyrir Bond frá
Miami til New York og tekur til
gamans með sér einkaritara Gold-
ingers, Jill Masterton. Þegar heim
kemur, er Bond settur á næturvakt,
þar til M hringir: . . .
— Fáðu þér sæti, 007. M var
að troða í pípuna sína. Hann var
hressilegur og vel til hafður. Mark-
að sjómannsandlitið yfir hörðum,
hvítum flibbanum og bindinu, sem
hann hafði losað lítið eitf í háls-
inn, var óþægilega hressilegt og
glaðlegt. Bond fann illa fyrir svört-
um skeggbroddunum á sinni eigin
höku og sjúskuðum vökusvipnum á
andlitinu og fötunum. Hann fann
á sér að eitthvað var í vændum.
— Róleg nótt? M hafði kveikt í
pípu sinni. Hörð, heilsuhraust augu
hans störðu rannsakandi á Bond.
— Fremur svo, sir. H stöðin . . .
M lyfti vinstri hönd lítið eitt frá
borðplötunni. — Allt í lagi. Ég skal
lesa það í dagbókinni. Ég skal
taka við henni.
Bond rétti honum möppuna sem
merkt var Leyndarskjal. M lagði
hana til hliðar. Hann brosti einu af
þessum sjaldgæfu kuldalegu og
fremur fráhrindandi brosum. —
Hlutirnir breytast, 007. Ég ætla að
taka þig af næturvaktinni um sinn.
Bond brosti stífu brosi. Hann
fann hjartað slá örar á sama hátt
og hann hafði svo oft fundið áður
í þessu herbergi. M hafði eitthvað
handa honum. Hann sagði: — Ég
var einmitt að venjast því, sir.
— Einmitt. Þú færð nógan tíma
til þess seinna. Það hefur dálítið
komið upp. Undarlegt mál. Ekki
beinlínis þín sérgrein, nema ein sér-
stök hlið, sem — M hnykkti pípunni
til, eins og hann væri að kasta
einhverju frá sér — getur vel ver-
ið að sé alls engin hlið. Bond hall-
aði sér aftur á bak. Hann sagði
ekkert, aðeins beið. — Ég borðaði
með bankastjóranum í gærkveldi.
Maður er alltaf að heyra eitthvað
nýtt. Að minnsta kosti var þetta
nýtt fyrir mér. Gull — það er að
segja skuggahliðin á því. Smygl,
svik og allt það. Mér hefði ekki
dottið í hug, að Englandsbanki
vissi svona mikið um svikara. Ég
býst við, að það sé hluti af starfi
bankans, til að vernda gjaldmiðil
okkar. M glennti upp augun. —
Veiztu nokkuð um gull?
— Nei, sir.
— Jæja, þú veizt meira í kvöld.
Þú átt stefnumót við mann, sem
heitir Smithers offursti, í bankanum
klukkan fjögur. Hefurðu tíma til
að sofna aðeins?
— Já, sir.
— Gott.
— Mér skilst að þessi Smithers
sé yfirmaður rannsóknardeildar
bankans. Eftir því sem formaður
bankastjórnarinnar sagði mér, er
þetta ekkert minna en njósnakerfi.
Ég vissi ekki áður, að þeir ættu
slíkt. Það sýnir aðeins, hvað allt
í þessu landi er stórkostlegt. En
hvað um það, Smithers og menn
hans hafa augun opin fyrir öllu
því, sem kynni að vera loðið í
bankaheiminum. Sérstaklega eru
þeir á verði gagnvart öllu, sem við-
kemur gjaldmiðli okkar, gullfætin-
um og þess háttar. Það kom upp
þar mál um daginn, þegar Italirn-
ir voru að falsa gullkrónur. Þeir
gerðu þær úr raunverulegu gulli,
réttum karatafjölda og öllu því. En
það virðist sem gullkrónan sé meira
virði heldur en niðurbrætt jafnvirði
hennar í gulli. Spurðu mig ekki
hversvegna. Smithers getur sagt
þér það, ef þú hefur áhuga. En
hvernig sem það var, réðst bank-
inn á þessa menn með heilli lög-
fræðingaherdeild — tæknilega var
þetta ekki glæpur — og eftir að
þeir höfðu tapað fyrir ítölskum rétti,
negldu þeir þá að lokum í Sviss.
Þú hefur sennilega lesið um það.
Svo var það dollaramálið í Beirut.
Það gerði heilmikinn úlfaþyt í blöð-
unum. Ég skildi það nú ekki sjálf-
ur. Það var einhver brestur í skjól-
veggnum um gjaldmiðil okkar. En
drengirnir þarna niður í City fundu
lekann. Jæja, það er starf Smithers
að finna svona lagaðar smugur.
Ástæðan til þess að formaður
bankaráðsins sagði mér þetta er
sú, að árum saman, að þvi er
virðist, síðan í stríðslok, hefur
Smithers átt í erfiðleikum með ör-
an gullleka út úr Englandi. Aðal-
lega verður hann var við gullrýrn-
unina, en svo hefur hann einnig
einhverja dulskynjun. Hann viður-
VIKAN 18. tbl.