Vikan

Útgáva

Vikan - 06.05.1965, Síða 32

Vikan - 06.05.1965, Síða 32
i2upnap HÚSMÆDUR! 1001, eldhúsrúllan er fram- leidd sérstaklega fyrir notkun í eldhúsum ykkar og hjálpar ykkur viö dagleg störf. Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags. Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú verður beðin að fara í ferðalag með óvenjuleg- an og ómeðfærilegan hlut. Þú verður þátttakandi 1 samkvæmi sem þér geðjast ekki meira en svo að. Þú hefur gert mjög góða hluti á vinnustað. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Þú hefur lítið tæki til umráða sem veitir þér marga ánægjustund á komandi tímum. Þú ert að leita fyr- ir þér í málura sem varða mjög mikið framtíðar- heill þína. Talfærðu viss mál við yfirboðara þína. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú verður kannske fyrir barðinu á nirfilshætti og smásálarsemi náungans. En það skaðar þig áreiðan- lega ekkert. Tími þinn til ákveðinna framkvæmda er allt of naumur, þú verður að leita þér aðstoðar. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Þú ert nokkuð taugaóstyrkur vegna þess að tilrajan- ir þínar hafa misheppnazt og þú örvæntir um fram- hald þróunarinnar. Þér berst óvænt gjöf frá vel- viljuðum aðila. Þú uppgötvar nýjan samstarfsmann. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Það má segja að þó látir stríða þér of mikið eða að minnsta kosti rýkurðu upp við minnsta tilefni. Þú verður til þess að gera mönnum aðvart um hættu sem að þeim steðjar. Líkur eru á skemmtilegu ferðalagi. ferðalag. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Neitun þín á boði ákveðins aðila á eftir að færa þér eftirsjá. Þú færð tilboð sem þú gengur að eftir nokk- urt þóf. Gömul kona í fjölskyldunni gerir þér ljós- ar ýmsar staðreyndir sem þú hefur velt fyrir þér. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Hjálpsemi þín við ættingja þína er til fyrirmyndar og þú munt ekki þurfa að sjá eftir því að rétta þeim hjálparhönd. Því miður verðurðu fyrir einhverjum prettum en að líkindum skaða þeir þig ekki stórlega. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember); Þú gerir tilraun sem misheppnast. Það er mikill framkvæmdahugur í þér að koma sem mestu í verk, en þú skalt gæta heilsu þinnar, hún er ekki sterk eins og er. Þú ferð í fremur langt og skemmtilegt Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. desember): Þú verður að öllum líkindum beðin fyrir ákveðin hlut sem reynist þér þungur í skauti. Þú átt í fjár- málabraski sem að öllum líkindum snertir erlendan gjaldeyri. Kunnátta þín færir þér nokkar auka- tekjur. ELDHÚS RÚLLAN ELDHÖSRÚLLAN GEGNIR 1001 HLUTVERKI Steingeitarmcrkið (22. descmber — 20. janúar); Vikan verður miklu skemmtilegri en þú bjóst við. Þú sýnir ákveðinni persónu ekki nægan sóma. Hætta er á að þú verðir veiddur í gildru. Leggðu ekki út í nein viðskipti hvorki kaup né sölu. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar); Hugmynd sú er þið félagarnir hafið lengi haft í hugá er því miður um of bundin ótímabundnum kring- umstæðum svo úr því sem komið er er ykkur ráð- legast að hætta við allt saman. Helgin verður skemmtileg. Fiskamcrkið (20. febrúar — 20. marz); Þú ættir að eyða sem flestum frístundum þínum við íþróttir og útiveru ef þess er nokkur kostur. Þú hefur ærið verkefni fyrir höndum en ef þolinmæð- in er með leysurðu allar gátur og vanda með sóma. l s ^s : 22 VIKAN 18. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.