Vikan - 07.10.1965, Blaðsíða 8
r
Nýtt útlit
Ný tækni
Málmgluggar fyrir
verzlanir og skrif-
stofubyggingar í
ýmsum litum og
formum.
Málmgluggar fyrir
verksmiðjubygging-
ar, gróðurhús, bíl-
skúra o. fl.
LÆKJARGÖTU, HAFNA RFIRÐI. — SlMI 50022
Taka spr€franijna
ffram yffr
elglnkonuna
Teikning og myndir: Sigurgeir Jónsson
Það er æöimargt 1 Vestmannaeyjum, sem aðkomumönnum kemur
spánskt fyrir sjónir. ÞaÖ, sem einna mesta undrun vekur hjá þeim,
er þó sennilega þaö fyrirbrigöi, sem nefnist spranga. Sprangan er eins
konar afbrigöi af bjargsigi, aðeins fært í hentugri og hættuminni bún-
ing. Krakkar i Reykjavík myndu aö öllum líkindum kalla þetta Tarzan-
leik, þar sem þetta byggist á því að sveifla sér í bandi milli kletta.
Sprangan hefur gífurlegt aðdráttarafl á unglingana í Vestmanna-
eyjum, og það er jafnvel sama, þótt menn séu búnir að slíta barns-
skónum, hún dregur þá enn til sin. Til dæmis lét einn Eyjabúi, giftur og
ráðsettur maður, hafa það eftir sér, að hann tæki sprönguna oft fram
yfir það aö fara heim til konunnar, þegar komið væri úr róðri, slíka
ánægju heföi hann af henni.
Sprangan er rétt fyrir ofan og innan höfnina i klettum, þar sem
heita Skiphellar. Fest hefur verið band uppi á klettsbrúninni og svo
sveifla menn sér af stöllum hægra megin í klettinum yfir aö hinum
klettaveggnum og aftur til baka upp á stallana. Áður fyrr var lögreglan
lítt hrifin af þessari íþrótt og skar jafnhraðan niður öll bönd, sem upp
voru látin. En það hafði einungis í för með sér, að menn urðu sér úti
um önnur bönd til að spranga í og voru það oft hreinustu fúaspottar.
Nú eru það hafnarverðirnir, sem hafa umsjón með þessu og leggja til
nýtt tóg, þegar hinu er ekki lengur treystandi. Það er hægt að fara
mismunandi hátt upp í bergið til að spranga yfir, það fer allt eftir
kunnáttu og áræði manna. Allir staðir þarna heita sérstökum nöfnum,
svo sem Djöflasteinn, Stallur, Stigvél, Klossi, Efra og Neðra gras o. fl.
Stelpurnar gefa strákunum ekkert eftir í þessari íþrótt, þar er alveg
jafnt algengt að sjá þær þarna innfrá. Annars skýra myndirnar þetta
miklu betur en nokkur orö.
g VIKAN 40. tbl.