Vikan - 14.10.1965, Blaðsíða 2
Haustfatnaður
í miklu úrvali
Andersen & Lauth hf.
VIIIAN 41. tbl.
I FULLRI flLVORU
Skírteinafargan
Hér á dögunum þurfti ég að
fara til læknis, eins og kemur
fyrir beztu menn, og hann bað
um að fá að sjá sjúkrasamlags-
skírteinið. Ég fór í vasa minn og
4
dró upp veskið, og í því fann
ég ökuskírteini, nafnskírteini,
fjölskyldubótaspjald (sem sumir •
kalla verðlaunaskjalið), en ekki
sjúkrasamlagsskírteini. Þetta
skírteini kom þó síðar í leitirn-
ar í skúffu heima, en það vant-
aði þarna, þótt ég væri með
þrenns konar önnur skírteini.
Svo kom að því, að ég þurfti að
framvísa sjúkrasamlagskortinu í
apóteki, til að fá afslátt á eitur-
lyfjunum sem læknirinn gaf res-
eft upp á; ég var með fransk-
brauð og normalbrauð (innpökk-
uð samkvæmt sparnaðarstefnu
bakaríanna) undir annarri hend-
inni en tvo pakka af treitommu
undir hinni (10 kíló) og þrisvar
varð ég með erfiðismunum að
troða hendinni í vasann, því í
fyrstu tilraun kom nafnskírtein-
ið, þá verðlaunaskjalið og loks
sj úkrasamlagsskírteinið.
Væri nú ekki ráð að sameina
þetta? Mér fyndist til dæmis laf-
hægt að hafa reiti á nafnskír-
teininu fyrir sjúkrasamlag og
fjölskyldubætur, og þá værimað-
ur þó ekki nema með tvö skír-
teini, þegar ökuskírteinið er með-
talið. Ég er hins vegar ekki viss
um, að rétt sé að hafa meira á *
ökuskírteininu en ökuréttindin
ein, því þeir eiga það til að skrifa ^
alls lags athugasemdir á öku-
skírteinin, sem maður kærir sig
ekki um að sýna hvar sem er.
En að hafa hin þrjú vottorðin
á sama blaði; ég er viss um, að
því yrði margur feginn.
S.H.