Vikan

Tölublað

Vikan - 14.10.1965, Blaðsíða 28

Vikan - 14.10.1965, Blaðsíða 28
Framhald af bls. 17. ■— Ég reyni að örva hann, sagði hann. — En það er tilgangslaust. Okkar á milli sagt, mamma, — þú lætur það ekki fara lengra, — en hann fer i taugharnar á mér. — Ég veit það, ég veit það, Florimond, sagði Angelique og hló. En hún hafði áhyggjur af næmleik hans fyrir mannlegu eðli. Hún vissi einnig, að krónprinsinn myndi hafa fylgt Florimond til enda veraldar, því hann var gagntekinn af snörum augum hans og her- mannlegri orku. Florimond var einnig aðlaðandi, og það, sem hann tók sér fyrir hendur, gerði hann vel. En hún fann, að hann var einnig að fjarlægjast hana, og þetta jók aðeins á dapurleik hennar. Hann benti út í loftið með nöktu sverðinu. — Sjáðu mamma, sjáðu mig. Ég kann að verja og sækja. Ég get rekið sverðið beint í hjartastað. Óvinur minn er fallinn.... dauður! Hversu fagur hann var! Gleði lifsins hafði kveikt kyndil í honum. Myndi hann ennþá koma grátandi til hennar, ef hann væri í vandræð- um, eða hefði meitt sig? Hversu fljótt eitt barnshjarta tekur þroska og harðnar í skæru sólarljósi hirðarinnar! Fréttirnar frá orrustunni við Cape Passarro bárust um miðjan júní, meðan stóð á siðustu veizlunni, sem konungurinn efndi til, áður en hann leiddi herinn til Lorraine. Galeiður Vivonne höfðu orðið fyrir á- rás út af ströndum Sikileyjar. Tyrkneskur floti undir stjórn alsírsks flækings, sem gekk undir nafninu Rescator, hafði ráðizt á leiðangur Vivonne. Vivonne hafði leitað skjóls inni á flóanum hjá Cape Passarro. Þar hafði hann snúizt til orrustu, sem var lítið meira en skærur. Að- eins tvær af hinum tuttugu galeiðum hans höfðu sokkið. Samt sem áður var þetta töluverður skaði, því mikill hópur af hans nánustu var á þessum galeiðum og það spurðist, að Vivonne hafði orð- ið að horfa upp á þrjá einkaritara sina síga i hafið, tiu matsveina, fjóra þjóna, alla kórdrengina sína tuttugu, skriftaföður sinn, einkaþjón og skutulsvein, og ásamt þessum hafði hafið gleypt litla gítarleikarann hans. 15. KAFLI Varla nokkur maður vottaði Madame du Plessis-Belliére samúð sína Því sonurinn, sem hún hafði misst við Passara, var ennþá aðeins barn. Og hverju máli skipti barn? Atburðir sumarsins bundu enda á skemmtanir hirðarinnar og skildu hana eftir eina í París með sorg sína. Hún gat varla trúað, að þessir hræðilegu fréttir væru sannar. Henni fánnst þetta svo fjarstætt. Hún neitaði beinlínis að viðurkenna hina ógnþrungnu staðreynd. Barbe grét missinn dag og nótt, Þangað tii Angelique endaði með að ávíta hana, af einskærri umhyggju fyrir heilsu gömlu fóstrunnar. —■ Auðvitað, Madame, auðvitað, Madame, muldraði hún milli ekka- soganna. — En Madame skilur þetta ekki. Madame elskaði hann aldrei eins og ég gerði. Angelique féllust hendur. Hún skildi hana eftir og sneri inn í sitt eigið herbergi, þar sem hún settist við opinn gluggann. Það var farið að hausta, og það hafði rignt allan daginn. Kvöldhiminninn speglaðist í votri götunni. Angelique huldi andlitið í höndum sér. Hjarta hennar var þungt, svo þungt, að hún gat ekki hugsað sér, að það myndi léttast framar. Hversu sjaldan hafði hún gefið sér tima til að taka Cantor litla á hné sér og kyssa eplakinnar hans. Útlit hans var henni ennþá hulinn dómur. Vegna þess, hve hann var líkur henni og Sancé bræðrunum, sem hún hafði horft á vaxa upp, var henni aldrei fyllilega ljóst, að Joffrey hafði verið faðir hans. En hinn fjörlegi, ævintýragjarni uppreisnarandi greifans mikla af Tou- louse hafði tekið sér bólfestu i drengnum. Enn einu sinni sá hún hann fyrir sér, þar sem hann skálmaði ótrauður til síns stríðs, með stóra hattinn, alvarlegur í bragði, og þó viti sínu fjær af gleði. Hún sá hann fyrir sér, þar sem hann söng fyrir drottninguna: Vertu sæl, mín vina kær, ég veit að guð er enginn nær.... Jódynur á götunni reif hana upp úr þessum minningum. Annars hugar leit hún út. Eitt andartak fannst henni, að riddarinn, sem hún sá stíga af baki og ganga upp þrepin, væri Philippe. En Philippe var með hernum í Franché Comté, en þangað hafði kóngurinn rétt nýlega farið. Annar reiðmaður fylgdi honum yfir húsagarðinn og innundir dyra- skyggni hússins. Að þessu sinni missýndist henni ekki. Hún þekkti þennan risa jafnvel þótt hann væri álútur með höfuðið beint I veðrið. Þptta var La Violette, og það var Philippe, sem rétt í þessu hafði kom- !ð. Hún heyrði fótatak hans frammi í forsalnum, og áður en henni hr.fði unnizt tími til að ná sér fullkomlega eftir drungalegar hugsanirnar, var hann kominn til hennar, auri ataður upp að mitti, og eins og dreginn af sundi, með regnið drjúpandi af hattinum og rennandi úr frakkanum. — Philippe, sagði hún og reis á fætur til að heilsa honum. — Þú ert rennandi votur! — Það hefur rignt í allan dag, og ég hef riðið án þess að nema staðar. Hún kippti i klukkustrenginn. — Ég ætla að biðja um heitan mat handa þér. Það er bezt að láta kveikja upp í arninum. Hversvegna léztu mig ekki vita, að þú værir að koma, Philippe? Ég er að láta taka herbergin þin í gegn. Mér datt ekki í hug, að Þú kæmir aftur fyrr en í haust, svo ég hugsaði.... að.... það væri heppilegast.... að lagfæra svolítið. Hann hlustaði, eins og hann heyrði ekki til hennar; stóð gleiður, eins og svo oft áður. — Ég frétti að sonur þinn væri dáinn, sagði hann að lokum. — Ég fékk ekki þessar fréttir fyrr en I síðustu viku. 1 þögninni, sem fylgdi þessum orðum hans, dró algjörlega fyrir dags- Ijósið, þar sem skýin Þéttust fyrir sólinni. — Hann dreymdi um að komast á hafið, hélt Philippe áfram. — Hann greip tseklfærið tll að láta draumlnn rætast. Ég þekkl Miðjarðar- hafið. Blátt og kringt með gulli eins og hvíla konungsins. Það er beður við hæfi litla söngvarans. Angelique brast í grát og tárin gerðu Philippe óskýran. Hann lagði hönd á höfuð hennar. — Þú vonaðir, að spillingin myndi ekki ná honum. Dauðinn hefur hlíft honum við Þeim tárum, sem hrekklaus börn fella I koddann sinn, þegar þeim verður ljóst, að sakleýsi þeirra hefur verið eyðilagt. Hver og einn skal bera sín öriög. Hann var baldinn, en hann var lífsglaður og hann söng. Og hann átti móður sem elskaði hann. — Ég hugsaði aldrei nógu vel um hann, sagði hún og strauk sér um augun. — En þú elskaðir hann, sagði Philippe. — Þú barðist fyrir honum; þú gafst honum það, sem hann þurfti til að finna hamingju sína — öryggi ástar þinnar. Angelique hlustaði á hann með sívaxandi undrun. — Philippe, sagði hún að lokum. — Á ég að trúa því, að þú hafir yfirgefið herinn og komið meir en tvö hundruð mílna veg í ausandi regni, aðeins.... aðeins til að hughreysta mig? —■ Það væri ekki fyrsti barnaskapurinn, sem þú hefur komið mér til, sagði hann. — En ég kom ekki til þes’s eins út af fyrir sig. Mig langaði að færa þér gjöf. Upp úr vasanum dró hann einskonar öskju, gerða úr gömlu, skorpnu leðri, opnaði hana og tók upp óvenjulega hálfesti: Græna gullkeðju, sem á íléngu þrír diskar úr rauðagulli, en í þá voru greyptir tveir slípaðir rúbinar og stór smaragður. Þetta vor stórkostlegur skartgripur, en svo villimannlegur, að hann virtist helzt gerður handa háttsettum Drúidakvenpresti. — Þetta er hin mikla hálsfesti Belliére kvennanna, sérstaklega gerð handa þeim til að bera á brjóstum sér. Um aldir hefur þessi festi veitt þeim hugrekki. Móðir, sem hefur fórnað þjóðinni syni sínum, er þess verð að bera hana. Hann steig aftur fyrir hana til að festa menið um háls hennar. ■—■ Philippe, sagði Angelique og greip andann á lofti. — Hvað á þetta að þýða? Mannstu eftir veðmálinu, sem við efndum til dag nokk- urn á þrepum Versala? —• Ég man eftir veðmálinu, Madame. Þú hefur unnið. Hann skipti hári hennar i hnakkanum og kyssti hana á hálsinn. Angelique hreyfði sig ekki. Hann varð að snúa henni við til að sjá framan í hana. Hún grét hljóðlaust. — Gráttu ekki meir, sagði hann og hélt henni fast upp að sér. — Ég kom til að strjúka af þér tárin, en ekki til að framkalla önnur ný. Ég hef aldrei þolað að sjá þig gráta. Þú ert mikilhæf kona! — Brjálaður af ást! Brjálaður! endurtók Angelique hvað eftir annað við sjálfa sig. — Þessvegna gefur hann mér þessa hálsfesti. Svo hann elskaði hana og hann hafði tjáð henni það á svo fallegan og blíðan hátt, að það svæfði sviðann í hjarta hennar. Hún tók hönd- um um andlit hans og horfði á hann, full ástúðar. — Hvernig átti ég að vita, að framkoman, sem gerði mig svo hrædda, dyldi svona fallega sál? Þú hefur skáldasál, Philippe. — Ég er það, sem ég er, og ekkert meira, muldraði hann kíminn. — En eitt veit ég, og það er, að ég hef áhyggjur af þvi að sjá Plessis- Belliére hálsmenið á þínum barml. Engin formæðra minna gat borið það án þess að fara þegar í stað að skipuleggja orrustur og borgara- styrjaldir. Það var með þessa gimsteina á brjóstum sínum, sem móðir mín leiddi herinn í Poitou fram við hlið de Condé prins. Það manst þú eins vel og ég. Hvað getur þú nú brallað, þegar röðin er komin að þér? Það er að bæta gráu ofan á svart að hengja svona lagað á þig! Hann þrýsti henni að sér aftur og neri kinn sinni við hennar. — Þessi grænu augu þín eru alltaf að stara á mig, muldraði hann. — Ég get pint þig barið þig og ógnað þér, en þú berð samt höfuðið hátt, eins og blóm eftir storm. Ég get ekki skilið þig eftir hálf meðvit- UN'GFRÚ YNDISFRÍÐ býðiH? yðw hið konlekt ffrá. N HVAR ER ÖRKIN HANS NOAI »aV er alttaf eaml lelkurlnn 1 hcnnl Tnd- IsrrlS okicar. Bfin htlvr faHB Brklna hans etshvets StaBar I tMtaroi hcltlr KðBum verfilaunum handa þelm, scm getur fundlí Brklna. T'crSIaunln eru stfir kon« KSfkassI, fullur af Serta konfekU, og framlelSandinn cr au.SvltaS BœÍgmtlsgerB- Jn NfL Emil Bóasson Hátúni, EskifirSi. Vinninganna má vitja I skrifstofu Vikunnar. 41. tbl. VIKAN 41. tbL

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.