Vikan

Tölublað

Vikan - 14.10.1965, Blaðsíða 43

Vikan - 14.10.1965, Blaðsíða 43
Króm-húsgögn Hverfisgötu 82 - Simi 21175 - SkiliS. — Beygið hægt til vinstri og haf- ið auga með áttavita og hraðamæli. Byrjið! A skerminum fylgdist hann með gerðum George. Hann var ekki ó- ánægður. Flug 714 sveigði hægt til vinstri og rétti sig næstum þráð- beint á nýju stefnunni. — Gott Spencer, sagði Treleaven. — Eg skal nú gefa ykkur samband við hinn enska ráðgjafa. Andar- tak . .. Hann kinkaði kolli til loft- skeytamannsins sem hreyfði stilli á borði sínu. — Halló, London Airport! Halló, London Airport, endurtók hann. — London Airport, Turner flug- stjóri, heyrðist fjarlæg rödd í há- talaranum. — Hafið þér fengið allar upp- lýsihgar varðandi flug 714? — Ég veit það sem ég þarf. Þakka ykkur fyrir, Marseille! — Þá gef ég ykkur samband við 714! Allt í lagi? Yfir! Enn einu sinni kallaði Treleaven á 714. — Þá er sambandið tilbúið, Spencer! Turner flugstjóri er nýi verndarengillinn ykkar. Nú get ég ekki betur gert en að óska ykkur góðrar ferðar og giftusamlegrar lendingar! Ég vona, að við hittumst einhvern tíma undir skemmtilegri kringumstæðum. — Það er aldrei að vita, heyrð- ist rödd George í hátalaranum. — En varla í sambandi við flug. Ég ætla ekki að snerta á flugvélastýri framar, ef mér tekst að sleppa úr þessu. Treleaven kreisti fram hlátur. — Maður ætti aldrei að segja aldrei, Spencer! Jæja, nú skipti ég yfir á London Airport. Gleymið ekki flug- hraðanum og stefnunni. Og ennþá einu sinni, giftusamlega lendingu, Spencer flugstjóri. Með söknuði og óhug heyrðu þau rödd Treleaven hverfa. Hann hafði verið þeirra von. Hið eina samband þeirra við venjulegan umheim. Rödd Turner barst til þeirra, dauf fyrst, síðan með meiri styrk. Hann var glaðklakkalegur. Næstum kát- ur. — Turner hér! Halló, 714. Heyr- ið þið skýrt og greinilega til mfn? — Við heyrum skýrt og greini- lega, flugstjóri. — Gott kvöld! Fyrst skulum við bera saman klukkurnar. Nú er mín klukka nákvæmlega tuttugu og eina mínútu gengin í tvö. Kemur það heim við klukkurnar ykkar? — Kemur heim flugstjóri. — Gott. Við höfum reiknað flug- tímann hingað. Þið eigið að vera komin hingað klukkan 3.36, það er að segja eftir tvo tíma og tutt- ugu og eina mínútu. Það þýðir, að við höfum nógan tíma. Ég frétti hjá Treleaven, að yður fer mjög vel fram, Spencer! Hvernig líður yður núna? — Ágætlega, miðað við kringum- stæður, svaraði George og gretti sig. — Og veiku farþegunum? — Illa. Doktor Fellman segir, að ef þeir komist ekki á sjúkrahús hið fyrsta, verði ekki hægt að bjarga þeim. — Við höfum góð sjúkrahús hér í London. Það er þegar búið að panta sjúkrarúmin. Og það er gott veður hér. Lendingin kemur til með að ganga létt eins og í dansi. — Þér eruð bjartsýnn, flugstjóri. Allt í lagi. Þá segjum við það. Lendingin kemur til með að ganga eins og í dansi. — Gott, sagði Turner. — Og höld- um nú áfram með námið. Við byrj- um með því að fara yfir eldsneytis- mælana . . . Meðan Turner f London bað um og fékk stöðuna á hinum ýmsu mælum, opnuðust dyrnar fram í flugklefann og Doktor Fellman kom. Hann lokaði dyrunum vandlega á eftir sér og kraup síðan á kné við hlið hinna meðvitundarlausu flug- manna. Hann rannsakaði þá vand- lega. Dunning flugstjóri hafði að nokkru leyti velt ofan af sér tepp- unum og lá með hnén dregin upp- undir höku og stundi lágt. Pete virtist algjörlega meðvitundarlaus. Læknirinn vafði teppinu vand- lega utan um þá og þurrkaði þeim í framan með pappírsþurrku. Hann sagði ekkert við Spencer eða Janet. sem bæði höfðu nóg að gera, sem flugmaður og loftskeytamaður. Hann fór aftur inn í farþegaklef- ann. Þegar hann kom þangað, hikaði hann aðeins og horfði aftur eftir vélinni. Allsstaðar lágu veikir far- þegar undir teppum. Nokkur hluti þeirra stundi og hreyfði sig með krampakenndum kippum. Aðrir voru grafkyrrir. Sumir virtust ekki einu sinni anda lengur. Sterk upp- sölulykt ríkti í klefanum. Þeir far- þeganna, sem voru heilbrigðir, voru í einskonar taugaáfalli. Hendur gripu eftir Fellman. þegar hann gekk aftur eftir ganginum en hann sleit sig lausan. Ungur maður reis úr sætinu sínu og horfði skömm- ustulegur á lækninn. — Ég hagaði mér heimskulega, muldraði hann. — Ég mun ekki end- urtaka það. Get ég orðið til nokk- urrar hjálpar? — Okkur er mest hjálp í því, að þér séuð rólegur og reynið að koma VIKAN 41. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.