Vikan - 14.10.1965, Blaðsíða 32
Bílstjórinn, sem ók þeim var
síðan vitni að því að þau létu
vel hvort að öðru í aftursætinu,
og þegar komið var heim til
hennar, fór hún út á undan til að
„athuga, hvort allt væri í lagi“.
Hún hvarf svo inn um dyr, en
maðurinn stóð og beið. Eftir
nokkurn tíma fór hann að lengja
eftir henni og kíkti inn um dyrn-
ar, en þar fyrir innan var port
og opin leið í burtu. Stúlkan var
horfin — og þar að auki með pen-
ingaveskið hans, sem hún hafði
krækt í þegar þau voru að faðm-
ast í bílnum. Maðurinn kærði til
lögreglunnar, og að þessu sinni
var stúlkan handtekin og fékk
sinn dóm.
Lögreglufulltrúi í Frankfurt
segir: „Stúlkurnar eru útsmogn-
ar. Þær ráðast aðallega á túrista
og erlenda vinnumenn í Þýzka-
landi, sem falla vamarlausir í
*
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudaffs.
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Tillitsleysi umhverfis þíns veldur því að þú nýtur
ekki hvíldar sem skyldi og gæti verið mjög gott
fyrir þig að skipta um dvalarstað um stundar-
sakir ef völ er á. Á laugardag ferðu í skemmtilegt
heimhoð.
NautsmerkiÖ (21. apríl — 21. maí):
Þú dáist í laumi að atorkusemi ákveðinnar persónu.
Henni þætti mjög vænt um ef þú létir hana á
smekklegan hátt heyra álit þitt á henni. Þú færð
tækifæri til að auka tekjur þínar. Vertu vandur
að vinum þínum.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. Júní):
Vandaðu þig betur við störf þín og beittu hugan-
um að því sem þú ert að gera. Varastu lausmælgi
og að bera fréttir á milli, sem ekki eru áreiðanleg-
ar. Heilladagar vikunnar eru miðviku- og föstu-
dagur.
Krabbamerkið (22. Júní — 23. Júlí):
Þú starfar í skemmtilegum félagsskap með dug-
miklu fólki. Láttu starfsemi ykkar njóta krafta
þinna. Þú vanrækir vissan fjölskyldumeðlim, gefðu
þig meir að honum og taktu hann með þér þegar
þú skreppur frá.
LJónsmerkið (24. Júlí — 23. ágúst):
Nokkur fjármálavandræði gera vart við sig á heim-
ili þínu en þau hverfa jafn snögglega og þau birt-
ast. Fjölskylda þín verður mjög samhent 1 ákveðnu
máli. Þú verður að dvelja nokkra daga að heiman.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Því miður verður margt til að spilla tíma þínum
og ekki allt sem er 1 þínu valdi að halda aftur af,
en sökum þess hve verkefni þín eru fjölbreytt
þarftu aldrei að sitja auðum höndum. Heillalitur
er blár.
■m
VogarmerkiS (24. septemker — 23. október):
Ýmislegt óvœnt skeður í kunningjahóp. Þú munt
skemmta þér mjög vel með félögum þínum um
helgina. Varastu fjölmennar samkomur. Láttu ekki
eftir þér að vera óþolinmóður þótt sleifarlag ráði
töf á vissum málum.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember).
Þú verður mikið heima á kvöldin og lætur þér
ekki leiðast, því þú ert nýbúinn að finna þér drjúgt
heimaverkefni. Þú sýnir vissri persónu mikla móðg-
un með því að ganga framhjá henni.
BogmannsmerkiS 23. nóvember — 21. desember):
©Þú verður að bíða nokkuð lengur en þú ætlaðist
til í fyrstu og útkoman verður á annan hátt en þú
reiknar með ef þú situr aðgerðarlaus. Þú ættir að
sýna vini þínum meiri samúð og létta undir með
honum ef þú getur.
Steingeitarmerklð (22. desember — 20. Janúar):
Einþykkni þin hefur fælt frá þér persónu sem þér
Jlf ] þykir mjög vænt um. Reyndu að halda aftur af
prédikunum þínum, sérstaklega ef þeim er þeint
að persónum undir tvítugu. Haltu smá gestaboð.
VatnsberamerkiS (21. Janúar — 19. febrúar):
Farðu varlega að öllu er viðkemur viðskiptum. Þú
festir kaup á hlut, sem er að vísu ódýr, en hann
kemur þér aldrei að notum. Kynntu þér betur viss
mál áður en þú hefst handa við framkvæmdir.
FiskamerkiS (20. febrúar — 20. marz):
Yfirleitt má segja að heildarútkoma vikunnar verði
jákvæð, þó þú verðir að vísu fyrir nokkrum skakka-
föllum. Þú verður að taka sjálfstæðar ákvarðanir
til að bjarga heiðri þínum í vissu tilliti.
22 VfltAM 41» ttL