Vikan

Tölublað

Vikan - 14.10.1965, Blaðsíða 7

Vikan - 14.10.1965, Blaðsíða 7
svo gott fyrir Reykvíkinga að þekkja þessar tvær manntegund- ir í sundur. Mér finnst felast í þessu svo mikil lítilsvirðing á sveitamanninn, og að Vikan sem er með afbrigðum gott blað ætti að sjá sóma sinn í að birta ekki svona lagað. Skora ég á Póstinn að segja álit sitt á þessu. Virðingarfyllst, „Fávís“ sveitamaður. P.S. Mig varðar ekkert umskrift- ina. Sami. Því miður finnst mér þú heldur fávís, sveitamaður minn, eins og þú reyndar finnur sjálfur, þótt þú setjir gæsalappir undir það í lokin. Þú ruglar sem sagt sam- an FÁVÍSUM sveitamanni og venjulegum sveitamanni. Það eru FÁVlSU sveitamennirnir, sem á ber í Reykjavík og það meira að segja fremur en Klepps- sjúklingunum, vegna þess að þeir eru fávísir. Hins vegar alast fá- vísir Reykvíkingar upp í um- hverfi banka og fjölmennis og því ber þar minna á fávísi þeirra. Mér finnst felast svo mikil fljót- fæmi í bréfi þínu, að þú, sem ert fávís aðeins í gæsalöppum, ættir ekki að skrifa svona lagað. — Mig varðar heidur ekkert um skriftina. EIN ANGELIQUE-ÓÐ! Kæra Vika! Ég ætla að snúa mér strax að því sem ég ætla að spyrja þig. 1. Ætlið þið að birta allar sög- urnar um hina óviðjafnanlegu Angelique í Vikunni? 2. Mér var sagt að Angelique myndi hitta Joffrey de Peyrac að lokum — hann hefði ekki ver- ið brenndur, böðullinn eða ein- hver hefði getað komið honum undan. Er þetta rétt? (Ég vona það). 3. Verðaallar Angelique-mynd- irnar sýndar í Reykjavík á næstu árum? 4. Verður Angelique einhvern- tíma drottning? 5. Hve margar eru Angelique- bækurnar? Ég vona að þú getir aflað þér upplýsinga um það sem ég hef spurt þig, og ég veit að allir sem hafa lesið Angelique-bækurnar vilja fá að vita svör við þessum spurningum. Ég vil hvetja alla sem kost eiga á, að fara á Angel- ique-myndina, hún er sú flottasta mynd sem ég hef séð. í ósk um að Vikan haldi áfram að vera gott blað, kveð ég ykkur og von- ast eftir greiðum og góðum svör- um sem fyrst. Ein ónefnd. P.S. Hvernig er skriftin? Sama. 1. Já. 2. (Ég vona það líka). 3. Næsta myndin, Angelique II, verður líklega jólamynd Aust- urbæjarbíós, en um þessar mund- ir er verið að frumsýna hana í Frakklandi og Þýzkalandi. Verði fleiri myndir gerðar, koma þær að sjálfsögðu hingað líka. 4. Ja, nú veit ég ekki! Held- urðu það? 5. Síðast þegar við fréttum, voru komnar 6 og sú sjöunda var á leiðinni. Skriftin gæti verið læsilegri. EIN OF FEIT 13 ÁRA. Kæra Vika! Ég er ein af þeim óheppnu stelpum, sem eru feitar, og mér er stundum strítt með því. En mér finnst ég ekkert svo feit, að hægt sé að stríða mér með því. Ég er 1,53 m á hæð, en 56 kíló. Og svo spyr ég hversu mörgum kílóum er ofaukið. Ég kaupi Vikuna alltaf og þessvegna langar mig að spyrja hvenær kom Vikan fyrst út, hvaða ártal? Einhverntíma heyrði ég þá fljót- lærðu og þægilegu reglu, að mað- ur ætti að vera álíka þungur í kílóum, og sentimetrarnir fram- yfir meter eru margir. Samkvæmt þessu ættirðu að vera um það bil 53 kíló. Auðvitað ber að taka margt annað til greina, svo sem líkamsbyggingu, tízku o.fl. og enn er það að yfirleitt mega karl- menn vera þyngri en kvenfólk, miðað við sömu hæð. Fyrsta blað VIKUNNAR kom út þann 17. nóvember árið 1938, en það þýðir að blaðið er rúmlega helmingi eldra en þú, þrettán ára mín! CENTRIFUGAL WASH MODEL620 Fallegri AL-SJÁLFVIRK: Með aðeins einum hnappi veljið þér hið rétta þvottakerfi, hvort sem um er að ræða fínlegasta og viðkvæmasta tau eða það grófasta og óhreinasta — og CENTRIFUGAL-WASH þvær, hitar eða sýður, skolar og þeytivindur eftir fullkomnustu aðferðum, sem kunnar eru. CENTRIFUGAL-WASH er fallegri — það sjóið þér straxl CENTRIFUGAL-WASH er fullkomnari: ☆ þvottakerfi fyrir allan þvott, einnig þann viðkvæmasta ☆ nýtt þvotta- kerfi „SUPER-suðuþvottur" fyrir óhreinasta tauið ☆ hitastýrður forþvottur ☆ sjólfstæður auka-forþvottur, skolun eða þeytiþurrkun, ef óskað er ☆ marg-skolar í mismunandi vatnshæð og gegnumrennsli ☆ sérlega góð „tvívirk" þeytiþurrkun ☆ aðeins einn stjórnhnappur, þrótt fyrir fleiri möguleika ☆ merkjaljós sýna þvottagang og hitastig ☆ sópuskammtar settir í strax — vélin skolar þeim sjólf niður á réttum tíma ☆ ytra barna- öryggislok, sem til mikilla þæginda notast einnig sem fyllingar- ag tæmingarborð og gerir vélina fallegri útlits ☆ bezta efni: nælonhúðuð að utan — fínslípað ryðfrítt stól að innan ☆ hljóður gangur ☆ þarf ekki að festast niður með boltum ☆ auðveld tenging ☆ íslenzkur leiðarvfsir. CENTRIFUGAL-WASH - fallegri - fullkomnari. Sannreynið við samanburð. — Fullkomnari S í MI 2-44-20 - SUÐURGATA 10 - REYKJAVÍK Sendið undirrit. mynd af CENTRIFUGAL-WASH með nánari upp- lýsingum, m. a. um verð og greiðsluskilmála. Nafn:................................................................. Heimilisfang: ....................................................... Til*. FÖNIX S.F. Pósthólf 1421, Reykjavfk. V-41 VIKAN 41. tbl. 7

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.