Vikan

Tölublað

Vikan - 14.10.1965, Blaðsíða 41

Vikan - 14.10.1965, Blaðsíða 41
Hún sneri bylgiulengdarskífunni hægt í hring. Það eina, sem heyrð- ist, var brak og brestir. Eftir stund- arkorn sagði hún: — Nú er ég búin að fara í gegn- um allan skalann, George. — Byrjaðu þá bara aftur, sagði hann. Hann reyndi að segja þetta kæruleysislega, en mistókst það al- gjörlega. Hann bölvaði með sjálf- um sér. Alltaf var hann jafn andskoti óheppinn. Þegar hann hélt, að hann væri að læra það mikil- vægasta varðandi sjálft flugið, hafði hann misst sambandið vð jörðina. Hvar voru þau? Hann starði út í svarta nóttina. Undir hon- um svifu skýin framhjá, eins og þykkt, hnúskótt teppi. Það fór hroil- ur um hann. Svo leit hann á elds- neytismælana. Guði sé lof, hann hafði bensín til að minnsta kosti fimm tíma flugs. Svo mikið var hann viss um. — Jæja Janet? — Bíddu. Stúlkan hélt niðri [ sér andanum. Allt í einu heyrðist dauf rödd langt í fjarska. — . . . 128,3 sagði röddin, sem allt í einu var skýr og undarlega nærri. — Flugturn Marseille kallar flug 714! Færið bylgjulengdina á 128,3! Gerið svo vel að svara! Yfir! — Haltu í stýrið! hrópaði George. _ Og þakkaðu heillastjörnu þinni fyrir, að þú skyldir hitta á þá aft- ur! Nú skal ég tala við þá! Hann var ennþá æstur, þegar hann þrýsti á rofann og sagði: — Halló, Mar- seille! Þetta er 714! Við erum búin að finna ykkur aftur. Drottinn minn, hvað það er gott að heyra til ykkar. Yfir! Nú heyrðist rödd Treleaven aft- ur trygg og örugg. — Við skulum bara fara rólega, meðan við erum að komast yfir áfallið, sagði hann. — Og takið nú vel eftir. Þér getið ekki lent hér. Það eru eitthvað um 40 metrar upp í svartaþoku. Þið verðið að halda áfram til London eins og þið ætluð- uð. Við erum að setja London inn í málið og þar er annar maður, sem tekur við mínu hlutverki. Það eina, sem er ennþá óvíst, er hvar þið eruð . . . hann snöggþagnaði. — Andartak, bætti hann svo við. — Hafið línuna opna. Radarmaðurinn hafði rekið upp óköf hróp, en nú sagði hann með sinni venjulegu, þurrlegu rödd: — Ég hef náð 714 aftur inn á skerminn. Hún stefnir beint suður yfir völlinn. Þér getið gefið henni stefnuna. _ Við erum búin að ná ykkur inn á skerminn, sagði Treleaven. — Nú skal ég gefa ykkur stefnuna á London. Það er næstum nákvæm- lega 1000 kdómetra flug. Áætlað- ur flugtími er tveir tímar og fimm- tán mfnútur. Stefnan er 295 gráð- ur, 296 gráður. Ég endurtek: Tveir, níu, sex. Gerð svo vel að hafa það yfir. — Tveir, níu, sex, sagði George. goodAear WTiym GÖLETIÍSAB Áratugum saman hafa Goodyear verksmiðjurnar verið í fremstu röð gúmmí- framleiðenda. Nú hafa þær einnig tekið forystu í Vinyl framleiðslu. GOOD YEAR Vinyl gólfflísar eru heimsþekktar fyrir gæði. Fjölbreytt litaval — auðveld hirðing — þarf ekki að bóna. aðeins gœðavara fr& GOOD^HEAR MALNING-&JA’RNVÖRUR LÁUGAVEGI 23 SÍMI 11295

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.