Vikan

Tölublað

Vikan - 14.10.1965, Blaðsíða 30

Vikan - 14.10.1965, Blaðsíða 30
undarlausa og auðmýkta, aðeins til þess að sjá þig rísa aftur, fegurri og stoltari en nokkru sinni fyrr. Þetta hefur gert mig vitstola. En þegar allt kemur til alls, hefur það orðið til þess, að ég treysti þér. Ég kemst ekki yfir undrun mína, að finna slíka þrákelkni og slikan þrótt í konu. Eg lagði dæmið niður í plúsa og mínusa. Ætli hún verði mér trú? hugsaði ég. Og daginn við hina konunglegu veiði, þegar ég sá þig mæta reiði konungsins með brosi, vissi ég, að ég myndi aldrei vinna. Og í hjarta mínu fylltist ég stolti yrir því, að þú varst konan min. Hann snerti hana með vörunum, eins og hann færi hjá sér. Hann var óvanur að sýna nokkur blíðuhót og hafði litið slíkt illu auga, þar til núna, að honum fannst hann þarfnast þess. En hann veigraði sér við að leita vara hennar. Það var hún, sem fann hans. Henni fundust varir þessa hermanns hafa ferskleik sakleysisins yfir sér. Hversu undarlegt það var, að eftir hið stormasama líf, sem þau hvort um sig höfðu lifað; eftir þau hörðu högg, sem heimurinn hafði greitt þeim, gátu þau nú að lokum skipzt á hreinum, ljúfum kossum, sem þau höfðu verið svikin um, nóttina forðum í Plessis, þegar þau voru ung. — Eg verð að snúa við, sagði hann allt í einu og hafði fundið gamla, önuglynda tóninn. Ég hef eytt nógum tíma i mál hjartans, má ég sjá soninn ? Angelique sendi eftir barnfóstrunni. Hún kom með litla Charles- Henri í fanginu, sveipaðan í hvítt flauel, eins og fálka á úlnliði veiði- manns. Ljóst hárið gægðist undan perlusaumaðri húfunni, og með þess- ar rjóðu kinnar og stóru bláu augu var hann fallegt barn. Philippe tók hann í fangið, kastaði honum upp í loftið og kitlaði hann undir hökunni, en barnið vildi ekki brosa. — Ég hef aldrei séð svona alvarlegt barn áður, sagði Angelique. — Það liggur við, að fólk verði hrætt. En það kemur ekki i veg fyrir, að hann lendi í allskonar vandræðum, meðan hann er að læra að ganga. Og hann hefur lært að snúa rokkhjólinu og rammflækja þráðinn. Philippe rétti henni barnið. — Ég skil hann eftir hjá þér. Ég trúi þér fyrir honum. Hugsaðu vel um hann. — Hann er drengurinn, sem þú gafst mér. Mér þykir mjög vænt um hann. Hún hélt barninu ennþá í fangi sér, þegar hún hallaði sér út um gluggann til að horfa á Philippe stíga á bak og hleypa niður eftir göt- unni. Með því að koma til hennar, hafði hann breytt beiskju hennar í lifandi gleði, jafnvel þótt hún hefði sízt átt von á huggun frá hans hendi. En lífið kemur manni ætíð á óvart. Hvernig hafði hún getað imyndað sér, að þessi óstýriláti hermaður, sem vilaði ekki fyrir sér að kveikja i heilum borgum og eyða þeim með sverði, myndi ríða í fjóra sólarhringa, linnulaust, í gegnum regn og vind, vegna þess að í hjarta sínu hafði hann heyrt bergmálið af gráti hennar. Nokkrum dögum seinna kom Monsieur de Saint- Aignan frá France- Comté með bréf til hennar frá kónginum. — Frá kónginum? — Já, Madame. Angelique gekk burtu til að lesa það í einrúmi. öll réttindi áskilin — Overa Mundi, Paris Framh. i næsta blaöi. BlíSlátar konur Framhald af bls. 15. Þetta er flokkur, sem lofar öllu — og tekur allt, — en gefur ekk- ert. Á kvöldin þegar einmana karl- menn rölta um og annaðhvort vita ekki hvað þeir eiga af sér að gera, eða eru í beinni leit að félagsskap, fer þessi flokkur á stúfana og skiptir sér niður á beztu staðina í stórborgum Þýzkalands. Flokkurinn hefur frammi nýj- ar og áður óþekktar aðferðir, sem eru alls óskyldar starfi vændis- kvenna, sem lofa kynmökum og veita þau. Stúlkumar í flokknum starfa hver í sínu lagi, í mesta lagi eru þær tvær saman. Þeim er bann- að að mála sig mikið eða klæða sig í áberandi föt. Yfirleitt ávarpa þær aldrei þá menn að fyrra bragði, sem þær hafa valið sér sem fómardýr. Þess í stað koma þær því þann- ig fyrir að þeir ávarpa þær fyrst. Það er mjög sjaldan að þær fyrirfinnast á lélegum vínveit- ingahúsum eða næturklúbbum, þar sem vændiskonur halda sig. f stað þess velja þær fórnardýr sín í góðum veitingahúsum, á kaffihúsum og jafnvel á mjólkur- börum. Þær virðast vera vellaunaðir einkaritarar eða eiginkonur í sæmilegum efnum og sumar þeirra gætu verið ungar stúlkur, sem hafa fengið leyfi einu sinni til að skreppa út að kvöldlagi. En allar hafa þær sama mark- miðið, að lokka karlmann á ein- hvern hátt til að ávarpa þær, og síðan að koma honum til þess staðar, sem atvinnuveitandi þeirra hefur til umráða ... Þar veita þær honum þögul loforð um heit ástarmök, með augnatil- liti og líkamssnertingum. En það sem hann í rauninni fær eru margfaldir reikningar fyrir dýru víni, hótanir og oft misþyrming- ar ef hann borgar ekki möglun- arlaust. En ástarmökin fær hann aldr- ei. Þegar reikningurinn kemur til hans, er ástarfuglinn löngu flog- inn út um eldhúsdyrnar, í gegn um fatageymsluna eða aðrar bak- dyr. Lögregluyfirvöldin í Múnchen segja: „Við vitum með vissu, að næt- urklúbbaeigendur hafa sumir hverjir komið sér saman um hve marga karla sé hægt að ræna hvert kvöld og á hvern hátt. Við vitum að til eru heilir hópar Endurnýjum sængur og kodda. Fljót afgreiðsla. Höfum einnig æðardúns-, gæsadúns- og dralonsængur. Póstsendum um land allt. DÚN- & FIÐUR- HREINSUNIN VATNSSTÍG 3 (örfá skref frá Laugavegi). Sími 18740. LILiJU LILUU LILUU LILJU BINDI ERU BETRI Fást í næstu búð kvenfólks, sem starfar við að lokka viðskiptavini til þeirra. Þær eru æfðar í þessu, líkt og karlmenn lokka oft viðskiptavini til vændiskvenna. Lögreglan í Múnchen gat ekk- ert hjálpað Max Wimmer við að ná peningum sínum aftur, né skaðabótum. Því hver hefði átt að bera vitni með honum? En þá huggun gat hann fengið að marga þjáningarbræður er hægt að finna meðal dómara, ákærenda og marga í röðum lögreglu Vest- ur-Þýzkalands. Lögreglustjórarn- ir í Hamborg, Frankfurt, Köln, Hannover og víðar, eru á sama máli. Lítum á eina lögregluskýrslu frá Frankfurt. Það var maður að nafni Robert M. endurskoðandi frá Augsburg, sem kærði, og full- orðin hjón voru vitni að síðasta atriðinu í næturævintýri hans. Hjónin voru á heimleið eftir fáfarinni götu í Frankfurt, þegar þau heyrðu allt í einu angistar- óp: „Hjálp! Ég hef verið bitinn“! Maðurinn lá og skreið eftir gangstéttinni fyrir utan bakdyrn- ar að litlum næturklúbb. Hjónin fussuðu fyrirlitlega að mannin- um og gengu út á götuna til að komast framhjá honum. En svo snarstönzuðu þau. Stór hluti af bakhluta buxna hans var rifinn burtu, en skyrtan og nærbuxurn- ar huldu nekt hans. Það var greinilegt að hann hafði verið bitinn. Hann hafði komizt að því af eigin raun, að ginningarstúlk- urnar hafa ekki aðeins sterka karlmenn til að þjarma að fórn- arlambinu, heldur einnig grimma hunda. Það byrjaði — eins og ávallt —- mjög sakleysislega, þegar endur- skoðandinn frá Augsburg hitti fyrst sína ólánsdömu þrem tím- um áður. Hann gekk á eftir henni á götunni, og kannske hann hafi dáðst að dökkblárri dragt henn- ar eða göngulagi með sjálfum sér, en hann hafði engin áform um að ávarpa hana. Skyndilega opnaðist handtaska hennar og innihaldið dreifðist um gangstéttina. Hann hjálpaðihenni að tína dótið saman, og komst ekki hjá því að taka eftir mynd af litlum strák, um 12 ára göml- um, sem verið hafði í töskunni. „Þetta er litli bróðir minn“, útskýrði hún. „Við erum for- eldralaus og ég verð að sjá fyrir honum“. Hann gekk nokkurn spöl við hlið hennar eftir götunni. Svo spurði hann: „Mætti ég ekki bjóða upp á kaffibolla, sem nokkurskonar fundarlaun...“? Hún brosti feimnislega til hans. „Þér sáuð myndina. Ég er bara venjuleg skrifstofustúlka, en vinn við afgreiðslu á litlu kaffihúsi á kvöldin. Þér kærið yður vafa- laust ekkert um að fylgja mér þangað“? gQ VIKAN 41. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.