Vikan - 14.10.1965, Blaðsíða 24
*s
Ameriska
konan
bvað
kemur
hún
okkur
við
?
■
GREINAFLOKKUR
UM LÍF
HENNAR,
UMHVERFI
ÁSTIR OG
HUGSANAGANG.
EFTIR
NILS B. TREVING
FYRRI HLUTI
Sue hefir haft stefnumót við marga pilta, en eignast nú
„fastan vin“. Mamma hennar er dálítið óróleg, en fer
strax að hugsa um hjónaband fyrir hennar hönd.
Ameríska konan . . . ÞaS eru 98 milljónir manns-
h'fa, 98.000.000 stúlkubörn og konur á öllum
aldri. ÞaS er t.d. Sue, sem er fjórtán ára. Hún þýtur
upp trétröppurnar á timburhúsi í New Bedford. Hún
er á kynþroskaskeiSi, óþroskuS og varla meira en
barn. Hún hleypur inn í eldhúsiS, augun Ijóma og hún
faSmar Florrie, mömmu sína, aS sér og hrópar: —
Mamma, mér er boSiS út! Johnnie hringdi og bauS
mér í partý á laugardagskvöldiS. MóSirin unga hlær
og Ijómar af ánægju. Elzta dóttirin er aS vaxa úr
grasi. Nú byrjar balliS. Órói og angist blandast ánægj-
unni yfir því aS dóttirin hefir stigiS fyrsta skrefiS út
í heiminn.
Gloria og stjórnmálamennirnir
Það getur verið Gloria. Hún er tæplega þrjátfu ára
gömul, falleg, vel menntuð, örugg með sjálfa sig,
stórrík og munaðargjörn. Hálftfma of seint kemur hún
til hádegisverðar hjá nokkrum fulltrúum Sameinuðu
þjóðanna. Hún siglir inn, fellir minkakeipinn niður á
stólbakið og er í essinu sfnu, þótt hún hafi komið of
seint. Hún spyr og svarar spurnlngum stjórnmála-
manna og blaðamanna alveg hiklaust. Svo segir húr»
við einhvern af gestunum: — Heyrðu elskan, karlinn
minn er á ferðalagi, geturðu ekki komið til hádegís-
verðar á föstudaginn? Og það er hádegisverður serni
segir sex. Fyrst er auðvitað lúxusmatur á herrasetri
hennar, svo slappa gestirnir af og eyða sfðdegi og:
kvöldi kringum sundlaugina eða þá á hestbaki, eftir:
því sem þeir vllja.
Joyce, tuttugu og eins árs ogfrekar
ósnyrtileg
Það getur verið Joyce, fótæk tuttugu og eins árs
gömul, tveggja barna móðir. Hún eyðir dögunurrr í
litlu, frekar óhreinu eldhúsi, f smábænum Marlboro..
Hún er ekki reglulega hrein sjálf og fötin hennar eru>
slífín. Hún er líka í stöðugum ótta fyrir því að pen-
ingarnir dugi ekki fyrir mjólk og mafsflögum handa
börnunum. Það gera þeir heldur ekki. Maðurinn henn-
ar er einn af fímm milljón amerfskra verkamanna, sem
ganga atvinnulausir og gleðin er ekki daglegt brauð
í þessu hrörlega eldhúsi.
Judy, tuttugu og tveggja ára gömuí
negrastúlka, hefir ekki tíma til að
sinna ástinni
Judy er tuttugu og tveggja ára negrastúlka, sem
tekur þátt f kynþáttastrfðinu í Selma, Alabama. Hún
er mjög gáfuð og .stórfalleg, en hún hylur fegurð
24 VIKAN 41. tbl.
Háskólalíf er óskadraumur ungu stúlkn-
anna, það væri cklci ónýtt aS verða fyrir-
liði í „base-ball“ — flokk ...
sína f blárri blússu og bláum gallabux-
um. Hún hugsar ekkert um ást og róman-
tfk, fyrir henni vakir ekkert annað en að
vinna fyrir málefnið og að hjálpa friðar-
sinnanum Martin Luther King í baráttunni
fyrir jafnrétti nítján milljón negra í Suður-
ríkjum Bandaríkjanna.
Brendu dreymir um aS
verða kvikmyndastjarna
Sem síðasta dæmi skulum við taka
Brendu í Hollywood. Hún er tuttugu og
eins árs gömul og kom frá New York,
til þess að verða kvikmyndastjarna í
Hollywood. Hún gekk svo langt að hún
svaf hjá kvikmyndaframleiðendum og
Ijósmyndurum, en varð ekki einu sinni
fyrirsæta. Nú er hún afgreiðslustúlka á
frekar sóðalegri matstofu við Sunset
Boulevard. Hún verður að vera í bikini-
fötum einum saman og þar af leiðandi
útsett fyrir starandi augu karlmanna. Hún
er örvæntingarfull og uppgefin, — en ef
tii vill bíða hennar gullin tækifæri.
Þetta eru aðeins nokkrar svipmyndir
úr lífi amerískra kvenna nú á dögum, og
er þar skammt öfganna á milli. En áður -