Vikan

Tölublað

Vikan - 14.10.1965, Blaðsíða 31

Vikan - 14.10.1965, Blaðsíða 31
Le ðurkuldaskóp loðlóðpaðir fpam I tá Póstsendum Hverfisgötu 82 og Bankastræti ó horni Þingholtsstrætis. En það var einmitt það, sem hann vildi, og svo kom auðvitað í ljós að kaffihúsið var lítill næt- urklúbbur, þar sem varla sást handaskil fyrir myrkri. Stúlkan hvarf út um bakdyr, en kom strax aftur í Ijós með litla svuntu framan á sér. Hún rétti honum vínlistann um leið og hún hneigði sig og hvíslaði: ,,Hér er ég kölluð Gigi, — en þér skuluð kalla mig Marianne. Við höfum hitzt privat... “ Hún ráðlagði honum að drekka hvítvín, „því það er ódýrast". Endurskoðandinn laumaði vín- listanum undir borðröndina og tókst að sjá verðið, 25 þýzk mörk. Honum fannst það vel vera þess virði. Síðan kom aftur flaska á borðið og enn önnur fór til stúlknanna við barinn, því þær höfðu orðið forvitnar, þegar þær sáu hvernig Gigi — Marianne brosti til hans í hvert sinn er hún gekk framhjá borði hans. Nokkru síðar bauð hann Mari- önnu upp á kokkteil. Þau skáluðu og honum fannst eins og þau væru gamlir og góðir vinir. Hann sagði henni að hann væri ókunn- ugur í Frankfurt og að þetta væri hans síðasta nótt þar. Hún leit fast í augu hans og hvíslaði: „Þér hafið verið svo vingjarn- legur við mig, og við erum bæði dálítið einmana. Ég hætti bráð- um að vinna. Viljið þér kannske bjóða upp á vínflösku — heima hjá mér“? Endurskoðandinn fékk að vita að Gigi bjó uppi á lofti í sama húsi, og hægt væri að komast inn á ganginn til hennar gegn- um salemin. Gigi-Marianne stóð upp og vinkaði eggjandi til hans með svuntunni, og gekk síðan innar í salinn og hvarf þar út um dyr. Hann gaf þjóninum merki um að koma með reikninginn. Hann var upp á 85 mörk fyrir hverja flösku og 18 mörk fyrir kokkteil- inn. Gesturinn bað um skýringu. Þjónninn lagði fyrir hann vín- listann, en á honum stóð nú þetta verð. „Þetta er annar vínlisti", sagði hann. „Á hinum stóð 25 mörk fyrir flöskuna“. Þjónninn baðaði út höndunum eins og óperusöngvari. „Annar vínlisti“, hrópaði hann. „Hver hefur heyrt talað um annan vín- lista“? Hávaxinn maður í dökkum föt- um kom til þeirra. Hann horfði alvarlegur í bragði á endurskoð- andann. „Haldið þér það“? spurði hann. „Eigum við að veðja? Þér megið gjarna leita hér um allt, en það er aðeins einn vínlisti til, og hann liggur á borðinu fyr- ir framan yður“. Hann greip í jakkakraga endurskoðandans. „En þér hafið kannske heyrt tal- að um falska ákæru? Þetta get- ur orðið yður dýrt, herra minn“. Endurskoðandinn vissi að þeir voru að leika sér með hann og: að honum voru allar bjargir bannaðar. En látum það vera,. hugsaði hann. Gigi-Marianne bíð- ur eftir mér fyrir utan. Hann greiddi því reikninginn. og stakk annarri vínflösku í jakkavasann. Síðap gekk hann. fram á salernið, þar sem hann. komst fram á ganginn til fallega stúlkunnar, sem beið hans með opna arma. En þegar út á ganginn kom, sá hann svartan, stóran skugga fyr- ir framan sig, og skugginn urr- aði ógnandi. Þetta var svartur, stór hundur með gulgræn augu,. sá stærsti, sem hannhafðinokkru. sinni séð. Þetta hlýtur að vera einhvers- konar misskilningur, hugsaði hann og reyndi að klifra yfir hundinn. Þá beit hundurinn hann. í rassinn. Endurskoðandinn sá aldrel framar Gigi-Marianne og bæði lögreglan og lögfræðingur hans: ráðlögðu honum að gera ekkert frekar í málinu. Báðir aðilar- þekktu vel bragðið með vínlist- ana tvo og lögreglan vissi að leikurinn með töskuna, sem opn- aðist á götunni, hafði fært næt- urklúbbseigendum stórar fjár- hæðir. Sömuleiðis að hundurinn. svarti svaf alltaf á daginn, til að; geta verið á vakt á nóttunni. En hver átti að bera vitni með honum? Lögreglan er vonlítil um árang- ur, þótt karlmenn séu aðvaraðir við því að hafa samband við ókunnar stúlkur, og reyna að fylgja þeim eftir inn á nætur- klúbba. En hún hefur samt búið til lista yfir helztu aðferðirnar til að blekkja menn og hafa af þeim peninga á óheiðarlegan hátt. Hér er hann: 1. „Schaumwein", sem í raun- inni er ódýrt þýzkt vín, en fært á reikninginn sem kampavín og kostar þá 80 — 150 mörk flask- an. 2. Ljósin eru svo dauf að gest- urinn getur ekki lesið vínlistann. Hami heldur gjarnan að það sé vegna skemmtiatriða, sem fram eiga að fara, en það er í rauninni dulbúin árás á peningaveski hans. 3. Þjónarnir nota tvo vínlista. Fyrst fær hann þann, sem sýnir ódýrari veitingar, en þegar líður á kvöldið og haim fer að kenna vínsins, kemur þjónninn svo með þann dýrari. 4. Á vínlistanum er gefið upp verð fyrir 2 centilítra. En þjónn- inn kemur með 4 centilítra, og þá er verðið auðvitað helmingi meira. 5. Á meðan gesturinn er að dansa, kemur þjónninn oft og setur fulla flösku á borðið og tekur þá hálftómu, eða að hann hellir úr henni í vínkælinn. Ef þér sjáið gest reka nefið ofan í vínkælinn, þá er hann senni- lega „brennt barn“ sem er að fylgjast með því að hann verði ekki plataður aftur. 6. Stúlkan biður gestinn um að skipta um borð vegna þess að þau hafi betra næði annarsstað- ar. Þá hverfur hálfa vínflaskan og heil kemur í staðinn á nýja borðið. 7. Gesturinn, sem ætlar að fylgja stúlkunni heim, er feng- inn til að hafa með sér eina eða tvær flöskur. Nokkru síðar situr hann kvenmannslaus við borðið, en með himinháan reikning. 8. Sennilega hættulegasta bragðið, er þegar stúlkan biður gestinn um að gefa „vinkonum" sínum í glas. í flestum tilfellum drekka „vinkonurnar" út á hans reikning rándýrt vín, allan næsta tímann. Þegar hann mótmælir reikningnum, fær hann oft þá ráðleggingu að fara til eyrna- læknis, því hann hafði jú greini- lega sagt „sjálfsagt“ þegar hann var spurður. Venjulega fá stúlkurnar um 20% af hagnaðinum, en margar þeirra láta sér það ekki nægja. Maður nokkur lét ánetjast af slíkri stúlku, sem hann hitti í þekktum vínbar í Frankfurt. Þau fóru síðan saman á næturklúbb, þar sem hann fékk „saltaðan“ reikning eins og búast mátti við, en hann greiddi reikninginn og fór út með stúlkunni. VIKAN 41. tbl. gj

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.