Vikan - 14.10.1965, Qupperneq 18
ÞARF BYLTINGU Í SKC
Ag nú komum við að
v þriðja og síðasta
þættinum um skóla-
mál. Áður höfum við
rætt um skólakerfið og
námsefnið en nú snú-
um við okkur að sjálfri
framkvæmd kennsl-
unnar, kennsluaðferð-
um. Kennarar eru mjög
umdeild stétt, enda eV
foreldrum að sjálf-
sögðu ekki sama,
hvernig umönnun börn
þeirra fá í skólanum.
Það er því álitamál,
hvort kennarinn á ekki
að hafa meira samband
við foreldrana en gert
er. Og hversu langt má
strangleiki hans
ganga? Ekki er heldur
sama, hvaða aðferðum
er beitt við námið og
verklegar aðferðir eru
að vinna á. Þá kemur
kristnifræðikennsla
einnigviðsögu á þessu
stigi málsins og ýmis-
legt fleira. Eins og í
hinum þáttunum eru
það fimm manns, sem
svara spurningunum,
sem eru 6 að tölu. Þau
eru: Jónas Pálsson, sál-
fræðingur, Helga Magn-
úsdóttir, skólastýra,
Ingimundur Þorsteins-
son, kennari, Reynir
Guðnason, kennari og
Steinar J. Lúðvíksson,
kennari.
f ÞESSUM ÞRIÐJA OG SÍÐASTA ÞÆTTI ERU ÞAÐ MESTMEGNIS KENNARAR, SEM SVARA
SPURNINGUNUM. ÞAÐ, SEM FLESTIR ÞEIRRA HALDA FRAM VIÐVÍKJANDI KENNSLUNNI ER
AÐ AGINN ER FYRIR ÖLLU 3. og síðasti hluti.
Kennsluaðferfiir
1. Hvaða aðferð teljið þér, að nota eigi á
fyrsta skeiði kennslunnar? Á hún að fara fram
í leikformi, söguformi eða hvernig?
2. Hvaða lestraraðferð viljið þér, mæla með
við kennslu? Hljóðlestri, stafaaðferð eða orða
og setningaaðferðinni?
3. Hvernig finnst yður, að kennarinn eigi að
koma fram við nemendur? Á hann að vera
strangur, vægur eða mitt á milli? Teljið þér, að
hann eigi að hafa samráð við foreldra um til-
högun kennslunnar?
4. Teljið þér heppilegt að fara eftir reynslu
annarra þjóða í kennsluaðferðum? Hvaða þjóða
þá helzt?
5. Á hvaða kennsluformi hafið þér mest álit?
Velglegu eða starfrænu námi, þar sem nemend-
urnir e*\i virkir, fyrirlestanámi, þar sem kennar-
inn talar en nemendurnir hlusta og skrifa niður
punkta, viljið þér hafa spurningaform, þar sem
kennarinn spyr og nemendurnir svara eða hvern-
ig viljið þér haga kennslunni?
6. Viljið þér hafa kristindómsfræðslu frá sögu-
legu, trúarlegu eða siðfræðilegu sjónarmiði?