Vikan - 14.10.1965, Blaðsíða 34
það er*
OMO
skilar
hvífasfa
• • •
Já, það er auðvelt að sjá að OMO
skilar hvitasta þvottinum. Sjáið
hve skínandi hvítur hvíti þvottur-
inn verður og einnig verða litirnir
skærri á litaða þvottinum sé OMO
notað. Löðrandi OMO, gerir þvot-
tinn ekki aðeins hreinan heldur
einnig hvítari. Reynið OMO og þér
munuð sannfærast.
þvoffinum!
X-OMO líl/lC-*.
og tekjur. Hann var þess vegna
ókaflega eftirsóknarverður sem eig-
inmaður.
Rosie segir mér fró stúlkunum,
sem eltast við bróður hennar. Pat
er Ijóshærð og frekar heimsk af-
greiðslustúlka, Catherine er lagleg,
en leiðinleg flugfreyja, Suzanne er
frekar feitlagin og frekjuleg auð-
kýfingsdóttir og Lynda er elskuleg
og mjög geðug. Hún er einkaritari
og Ernie geðjast bezt að henni. En
honum dettur aldrei í hug að gift-
ast henni.
Tvískinnungur í sið-
ferðismálum
Hún segir mér hversvegna hann
giftist henni ekki. Ernie líkar vel
við Lyndu og Lynda elskar Ernie,
og þau hafa verið saman í mörg
ór. En Lynda elskaði Ernie strax
svo heitt, að hún gætti sín ekki,
eitt af fyrstu skiptunum sem þau
hittust. Svo hafa þau umgengizt
hvort annað mjög nóið síðan, þótt
Ernie hafi líka verið með öðrum
stúlkum.
— En bróðir minn vill ekki gift-
ast nema ósnertri stúlku . . .
Þessi óskiljanlegi og hrollvekj-
andi tvískinnungur í siðferðismál-
um er ekki óalgengur í Bandaríkj-
unum. Það er allt í lagi að ógift-
ur ungur maður sofi hjá ungri
stúlku. Hann álítur það skýlausan
rétt sinn sem amerískur borgari að
reyna að tæla stúlkuna. En ef hún
fellur fyrir ástleitni hans, er hætta
á að hann hugsi ekki frekar til þess
að giftast henni. Þessu er vel lýst
í frekar lélega skrifuðu órímuðu
Ijóði, sem ungur stúdent sýndi mér.
Það byrjar á því að pilturinn reyn-
ir að fleka stúlkuna, en hún lætur
ekki að óskum hans og fer heim
til sín fyrir miðnætti:
„Og þá gekk hún ósnert heim og
lagðist á sinn jómfrúbeð
Og næsta morgun vaknaði hún
og fann vð hlið sér
Knippi hvítra rósa og áletrað
spjald:
Cassie, ástin mín, viltu giftast
mér?
Því karlmaður verður að leita sér
ánægju og svala þorsta sínum
En velji hann móður sonum sín-
um
Þá grinst hann hreina og sterka
konu
Og konu sem er trúuð og fer
heim klukkan tólf".
Þetta er bitur sannleikur, en tákn-
rænt dæmi upp á ameríska yfir-
borðsmennsku.
Þú verður að giftast,
Rosie!
Rosie er sjálf eitt af fórnardýr-
unum. Það er ekkert sem hún vill
frekar en að giftast. Hana langar
til að eignast barn, en hún vill ekki
eiga barn, án þess að vera gift.
Hún vi11 lifa heilbrigðu ástalífi, en
getur ekki hugsað sér að hafa elsk-
huga. Svo er mamma hennar sí og
æ suðandi um það að Rosie verði
að giftast.
Nú situr hún hér á kaffihúsi í
New York og talar út; segir frá
innilokuðum, hættulegum hugsun-
um, sem hún hefir ekki þorað að
tala um áður, en leysir frá skjóð-
unni núna, vegna þess að hún er
undir áhrifum víns, og líka vegna
þess að ég er útlendingur, sem
hún reiknar ekki með að hitta aft-
ur.
Sem unglingur átti hún stefnu-
mót og skemmti sér með jafnöldr-
um sínum, og nítján ára gömul átti
hún fastan vin, sem endilega vildi
giftast henni. Mömmu hennar og
vinkonum þótti það voðalega
spennandi, að Rosie væri trúlofuð.
En þegar hún fór að kynnast hon-
um betur komst hún að þeirri nið-
urstöðu að hann væri ósköp leið-
inlegur.
— Og svo slapp ég, segir Rosie,
— við að gera það sem margar
vinkonur mínar hafa gert, það er að
giftast manni, sem ég átti ekkert
sameiginlegt með . . .
Síðustu átta árin hefir hún oft
lent í ástarævintýrum, en alltaf orð-
ið fyrir vonbrigðum.
Hjónaband byggt á
vináttu
— Nú hugsa ég oft, hvort ég
hafi ekki gert of miklar kröfur,
hvort ég hafi ekki spennt bogann
of hótt. Ég hefði líklega átt að
gera eins og margar aðrar stúlk-
ur í mínum sporum, sem ekki eru
búnar að ná sér í eiginmann; að
fara upp til Grossinger og töfra
þar einhvern fullorðinn, giftingar-
sjúkan karlmann, freista hans til
ystu takmarka, en láta ekki endan-
lega undan, fyrr en viku fyrir brúð-
kaupið . . .
Nokkrum vikum sfðar hitti ég
Rosie aftur, í annarri veizlu. Hún
heldur þar í höndina á háum frek-
ar snotrum manni. Hann er þrjátíu
og fimm ára, snyrtilegur, en lítur
ekki út fyrir að vera skemmtilegur
eða spennandi, og hún Ijómar í
framan: — Þú verður að hitta
VIKAN 41. tbl.