Vikan - 14.10.1965, Qupperneq 44
TOYOTA
TOYOTA - GLÆSÍLEGUR, ÞÆGILEGUR, VANDAÐUR
JAPANSKUR BÍLL í GÆÐAFLOKKI. HENTAR JAFNT r=3
SEM EINKABÍLL EÐA LEIGUBÍLL.
JAPANSKA BIFREIÐASALAN
Ármúla 7 - Sími 34470
D^O
TRIG lyrlr herra.
BANfyrlr dömur
Frá Brlsfol-Myers
New York ■■■s■■■•
Roll-on deodoranls
FULLKOMIÐ
ÖRYGGI
Helldsölublrgdlr :
O. Johnson & Kaaber hl
ÞAÐ ER ÞJÖNUSTA VIÐ NEYTENDUR, AÐ BENDA ÞEIM
Á GÆÐAVÖRU MEÐ AUGLÝSINGU. ÞESSVEGNA ER
V I K U N N I ÁNÆGJA AÐ AUGLÝSA GÆÐAVÖRUR FYRIR
VIÐSKIPTAVINI SÍNA.
HeimilisblaSiS Vikan, auglýsingadeild
hinum til að skilja að það er það
bezta.
— Höfum við nokkra von?
Fellman brosti. Hann yppti ekki
öxlum.
— Mér sýnist að við höfum tölu-
verða von með að bjargast, sagði
hann.
Þessu næst gekk hann til frú
Childer og tók um hönd hennar
undir teppinu og reyndi að finna
æðasláttinn. Hetra Childer horfði á
hann með skelfingu í augnaráðinu?
— Getum við ekkert gert fyrir
hana, læknir?
Fellman virti fyrir sér sollið and-
It konunnar og svaraði hægt:
— Þér hafið heimtingu á að fá
að vita sannleikann, herra Childer.
Þér eruð viti borinn maður, svo ég
get sagt yður það umbúðalaust.
Við fljúgum eins hratt og hægt er,
og verðum komin til London að
minnsta kosti eftir þrjá tlma, en
jafnvel þótt það heppnist, er á-
standið mjög tvísýnt fyrir konu yð-
ar!
Það fóru krampakenndir drættir
um varir Childers, en hann sagði
ekkert. Fellman hélt áfram:
— Það er lán í óláni að hún
þjáist ekki iengur. Náttúran sér
um það fyrir okkur. Morfínið mitt
er búið, en þá sér náttúran fyrir
sínum deyfilyfjum. Eg hef því mið-
ur ekki getað gert nema svo sára-
lítið fyrir konu yðar.
— Þetta megið þér ekki segja,
stamaði Childer. — Hvað sem fyrir
kemur, er ég yður mjög þakklát-
ur. Ég vil að þér vitið það .. .
Fellman brosti beisklega, meðan
hann þreifaði á enni sjúklingsins.
— Vingjarnleg orð en þau breyta
ekki staðreyndum, muldraði hann.
— Þér eruð hughraustur maður,
herra Childer og ég dáist að yður!
En reynið ekki að blekkja sjálfan
yður.
Stund sannleikans, hugsaði hann
kaldhæðnislega. Þetta er hið raun-
verulega líf með sínu rétta bragði.
Þegar til kastanna kemur, er enga
rómantíska hetjudáð hægt að
drýgja. Það er sannleikurinn. í slð-
asta lagi eftir þrjár klukkustundir
erum við dauð, öll eins og við
leggjum okkur! Og hverju máli
skiptir það? Nokkrir dálkar á frétta-
siðum dagblaðanna, slatti af tár-
um og nokkur móðursýkisköst, og
lífið heldur áfram ... án okkar.
í flugstjórnarklefanum í London
Airport, drakk Turner flugstjóri
hvern kaffibollann á fætur öðrum.
Vingjarnlegar hendur réttu honum
krúsirnar hverja á eftir annarri,
meðan hann talaði við George
Spencer, sem nú var yfir Bordeaux
og þokunni, sem lá yfir öllu Frakk-
landi.
Hann kreisti saman síðasta
pappaboxið og lét það falla á gólf-
ið. Svo ræski hann sig.
— Halló, 7141 Hvernig líður ykk-
ur? Heyrið þið til mín?
— Við heyrum, London Airport.
Rödd Janet Benson var róleg og
eðlileg í heyrnartækjunum.
Framhald í næsta blaði.
/^A VIKAN 41. tbl.