Vikan


Vikan - 24.11.1966, Blaðsíða 20

Vikan - 24.11.1966, Blaðsíða 20
Hér að neðan er Suðuroddi cyjarinnar, en á efri myndinni til hægri eru þeir dr. Sturla Friðriksson og I»orsteinn Einarsson íþróttafulltrúi á leið frá eynni á Surts- eyjargrána — gúmmíbát Surtseyjarfélagsins. Neðri myndin hægra megin er af hluta nýja hraunsins og í baksýn móar fyrir fjallinu. Ólíklegt er, að nokkrum þætti lífvænlegt í Surts- ey, en samt hefur einn maSur haft þar fasta bú- setu eitt sumar. Ekki sló hann gras og þurrkaSi í hey, en samt má segja, aS eitt og annaS hafi heyjast þar meS aSstoS hans í sumar. Hér segir hann okkur eitt og annaS frá liðnu sumri í Surts- ey. Ljósmyndir: Albert Jónasson. Viðtal: Sigurður Hreiðar. „Álfu vorrar yngsta land" myndi líklega vera Surtsey; ég man að minnsfa kosti ekki eftir öðrum skika, sem getur haldið upp ó þriggia ára afmæli sitt um þess- ar mundir. Hér á landi er með al- þýðu farinn mesti spenningurinn fyrir þeim undrum, sem þar eiga sér stað, en útlendingar þreytast seint á að heyra sögur af henni, og vísindamennirnir okkar hafa aldeilis ekki gleymt þessu óska- barni. í sumar sem leið var í fyrsta sinn höfð föst búseta í Surtsey. Það var Árni Johnsen, kennari frá Vest- mannaeyjum — það er að segja Heimaey — sem hafði þar sumar- dvöl og það væri ekki ólíklegt, að hann ætti eftir að draga lengi af því viðurnefnið Surtseyiarvörður — og mætti þá fremur skoða það sem heiðursnafnbót heldur en hitt. Hann flutti í nýbyggt hús í eynni 20. júní s.l. og bjó þar fram undir mánaðamótin september— október. Ég rakst á Árna fyrir tilviljun, þeg- ar hann var í heimsókn í Reykja- vík í byrjun september og hann féllst á að segja mér undan og ofan af starfi sínu og aðbúnaði ( eynni. — Hvenær var húsið reist? — Húsbyggingin hefur átt sér nokkurn aðdraganda. Fyrst var hugsað til hennar fyrir tveimur ár- um. Það var byrjað á að velja hús- inu stað, og menn voru ekki á eitt sáttir um hann. Til dæmis komu aðallega þrír staðir til greina, nr. 1, 2 og 3, og húsið er byggt á stað nr. 3, eða þriðju hugmyndinni. Á nr. 1 er núna aðalgígurinn og á einum stað er hraun komið yfir, svo þetta virðist eiga að blessast allt. Það hefur verið töluvert fyrirtæki að byggja þetta hús! það er erfitt að koma þarna út efni, það er byggt úr flekum og er um sjötíu fermetrar. Það var opið í vetur, það var ekki búið að loka því. — Vantaði þakið, eða . . . .? — Það vantaði annan gaflinn í það og hluta af þakinu. Þessu var lokað um páskaleytið sfðasta vor. — Þetta hefur staðið af sér vet- urinn? — Já, já, og svo var eitt aðal- verkið, með vísindastörfunum, að Ijúka þessu húsi. Það er orðið ansi gott núna. — Vel einangrað? — Já, það er allt einangrað. — Og hiti ( því? — Já, það er hiti í því. Þar eru tvö herbergi til vísindastarfa, sem 20 VIKAN 47-tbL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.