Vikan - 24.11.1966, Blaðsíða 54
VIKAN OG HEIMILIÐ
ritstjóri:
Gudridur Gisladóttir.
Það hefur verið haft í flimtingum, að konan væri oft
furðu mörg ár tuttugu og níu ára - hún þori sem sagt
ekki að stíga yfir þrítugsþröskuldinn. Með vaxandi sjálfs-
trausti konunnar er þetta að breytast, og tízkuhúsin eru
farin að framleiða fatnað, sem þau kalla „Look 31“. Þau
föt eru gerð fyrir konuna á bezta aldri, má segja, þeim
aldri, þegar hún hefur einna mikilvægustu hlutverki
að gegna í þjóðfélaginu. Hún er mitt i önn dagsins á
þeim aldri og allt nám hennar og uppeldi hefur miðað að
því, að gera hana færa um að mæta því, sem lífið fær-
ir henni fullþroskaðri. Oft er hún eiginkona og móðir
og stýrir því mikilvæga fyrirtæki, sem kallast heimili.
En nú á tímqm er starf hennar og áliugamál ekki ein-
göngu bundið heimilinu; á öllum sviðum ryður konan
sér braut og framlag hennar til margs konar mála fer
sívaxandi.
Það er því fáránlegt, að ætla sér að halda dauðahaldi
í æskuna, þar sem vitanlegt er, að konan hefði ekki get-
að náð verulegum áfanga í starfi og þroska á skemmri
tíma en þrjátíu árum. Hún á því að vera stolt af þessum
árum og hegða sér í öllu í samræmi við það. Með
réttri snyrtingu getur hún verið flestum yngri konum
fallegri, og með réttu fatavali getur hún undirstrikað
þroska sinn og persónuleika. Þdtt þessu hafi verið val-
ið heitið „Look 31“, er ekki átt við það aldurskeið ein-
göngu, hcldur hitt, að konan viðúrkenni fyrir sjálfri
sér að hún sé ekki lengur kornung, en samt ung, ef
hún vill það. Myndirnar sýna unglegan og fallegan fatn-
að, án þeirra öfga ,sem yngstu stúlkurnar hafa gaman af.
5 J E
«2 :Ö
3 1° -Q
£ ÍO
ÍO d)
cn <u c
° E o
c u, 5
.£ vj —
»- *o
SL o
c
'S- ö
>-
§1
C
2, E
o ■§»
o —
CD T5
O C
i S
c
____o
! 01
^ o
^5 12
C K>
o q
i/) —1
c
-2 E
ö> D
lO Ráð
fyrir konur yfir
þrítugt
Gleymið ekki að jafna litaða
kreminu, sem þið notið undir púð-
ur, vel niður á hálsinn. Kremið
má vera dekkra en húðarliturinn,
en púðrið má ekki vera of dökkt
og þunglamalegt.
2. Setjið kinnalitinn ofarlega á
kinnbeinin út að hársrótinni. Það
lyftir andlitsdráttunum. Auðveld-
ast er að nota kinnalit í púður-
formi.
3. Vcljið sterka ljósa liti á
kinnalit og varalit og forðizt dökk-
rautt og vínrautt.
4. Augnskuggi yngir sé hann
glansandi, cn mattur augnskuggi
gcrir hrukkur meira áberandi.
Undir augabrúninni er gott að
nota mattan ljósan púðurskugga.
það færir brúnina upp og stækk-
ar augað.
5. Varalitsblýantur dregur
sterkari útlínur og kemur i veg
fyrir að liturinn renni út í smá-
hrukkur, séu þær við munninn.
Hægt er að fara utar með blýant-
inn en stifti og gera þannig var-
irnar fyllri.
6. Grátt og brúnt er fallcgra á
augabrúnirnar en svart, því að of
mikið málaðar og svartar brúnir
láta konuna sýnast eldri.
7. Það þarf að draga augnstrikið
Framhald á bls. 53.
Silfurglitrandi efni
eru mikið í tízku
þessi kjóll er pall-
íettu- og perlu-
saumaður með
fallegu munstri.
■Glitrandi efni
yngja og fegra að
kvöldlagi, en í
dagsbirtu eru þau
ekki viðeigandi.
Sigildur klæðnaður fyrir konur á öllum aldri. Svört dragt með fallegu
sniði, en hvíti, mjúki skinnkraginn fcgrar liúð, sem ekki ber lengur
ferskleika æskunnar.