Vikan


Vikan - 24.11.1966, Blaðsíða 27

Vikan - 24.11.1966, Blaðsíða 27
/et' — En hvernig er það með flugur, þær eru naskar að leita uppi mat- væli og úrgang? — Jó, þær mundu kannske koma hvort sem er. Flugurnar ráða svo lítið ferðum sínum, þær berast með vindinum. Það er geysimikið af flugum í Surtsey. Og við höfum fundið fleiri dýr en flugur, t.d. bjölIur, og við höfum fundið þar könguló, og þá kemur spurningin: Hvernig hefur könguláin komið? Hefur hún komið með reka af sjó, eða er möguleiki á þvi að hún hafi borizt með mönnum, truflar þetta biologiuna, það kemur ekki rétt niðurstaða. En ef hún hefur komið með reka, þá kemur hún án hjálpar mannanna, og það er það, sem verið er að kanna. — Það er auðvitað útilokað að hún hafi borizt með loftinu. — Já, það er útilokað. En hún getur borizt með fuglum, og það er geysimikið af fuglum þarna. Við höfum talið um 6000 ritur í einum hóp. Auðvitað skilja þessar ritur eft- ir mikinn áburð fyrir komandi fræ. — Það hefur eitthvað komið af fræjum líka? — Jú, það hafa vafalaust komið nokkur fræ, en það hafa fundizt nokkrar plöntur. Núna í sumar fundust fimm plöntur, sem voru melgrasj fjörukál og túnvingull, en náðu sér ekki upp; þær fóru í fár- virðrinu, sem gekk yfir eyjuna. — Hefur verið mikill reki? — Já, það hefur verið slangur. Það hafa t.d. rekið fiskhræ og þeg- ar þetta sezt í fjöruna, sækja skor- dýrin í það. Við höfum líka fundið egg, og allt þetta er tekið til rann- sókna, sent bæði til Svíþjóðar og Ameríku, að ég held, t.d. skordýr- in. Svo er þessi venjulegi reki, þ.e. fimbrið, það er töluvert af því. Við liöfum notað rekavið í húsgagna- smíðina þarna, við erum t.d. með eitt borð þarna sem er maghoný- drumbur, um 300 kg. á þyngd. — Þetta er allt óunnið timbur? — Já, allt óunnið. Við höfum smíðað borð úr sandblásnum viði, beint úr fjörunni. Við notum það sem til fellur. — Þetta er náttúrlega alveg orð- ið steindautt og ekkert á því. — Jú, það er ýmislegt á því. A sumum trjánum eru helsingjanef og á sumum eru flær, og það er alltaf möguleiki á einhverju lifandi. — Nú er þetta komið langar leið- ir að? — Jú, það getur verið frá Norð- ur-Evrópu og einnig frá Ameríku. Og er líka helzt von til þess að það séu einhver sjávardýr á því, ormar og flær, sem lifa aðeins í sjó. En þá er maður kominn út í haffræðina. — En svo við snúum okkur aftur að matnum-. Þú hefur fengið birgð- ir við og við? — Já, við fáum allan mat frá Heimaey, mest dósamat. Annars er stundum hægt að ná í dálítið ný- meti, bæði með því að fara út á sjó og meira að segja við eyjuna; það hefur verið veitt á stöng af klöppunum. — Hvað veiðist af klöppunum? — Það er smáufsi, stútungur og koli. Ágætis fiskur. Annars fáum við langmestan hluta matarbirgða frá Heimaey, meira að segja vatn- ið. — Já, þig hafið auðvitað ekki dropa af vatni? — Nei, og það var ekki fyrr en síðast i sumar, sem hægt var að taka vatn af húsinu. Það var alltaf svo mikið sandfok og svo meðan Jólnir var að gjósa, var svo mikið öskufall að það var ekki hægt að hirða vatnið af húsinu. — Það hefur verið rólegt þarna, þegar þú hefur verið einn? — Já, og þá gat maður unnið al- veg stöðugt í sambandi við húsið. Eg hef unnið að því að innrétta þetta allt saman. - Húsið? — Já, úr þvi maður var kominn á staðinn, varð maður að gerast bæði arkitekt og smiður, enda kölluðum við húsið Klömbru. Bæði er að það er eins og Klambra í lag- inu og svo hefur ýmislegt verið klambrað í því. — Hvernig hefurðu háttað deg- inum hjá þér? Hvað ferðu snemma á fætur? — Það er ákaflega misjafnt. Yf- irleitt fer maður svona skikkanlega á fætur. — Og hvað er skikkanlegt? — Ja, svona sjö til átta. En það er aldrei farið að sofa fyrr en eft- ir miðnætti. Ég hef auðvitað reynt að fara fyrr á fætur, þegar ég hefi verið að vinna eitthvað sérstakt, t.d. í sambandi við dýptarmæling- ar, sem voru gerðar þarna og fleira. — Hvar er húsið á eynni? — Húsið er norðanmegin á eynni. 47. tbh VIKAN 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.