Vikan


Vikan - 24.11.1966, Blaðsíða 37

Vikan - 24.11.1966, Blaðsíða 37
einmitt samskonar áhyggjur sem hún hafði. — Ég get ekki hugsað um neitt annað en þig, sagði hann til skýr- ingar. — Er það satt? sagði hún. — Hvað segirðu um það að við giftum okkur í miðjum nóvember, við getum tekið okkur nokkra vikna frí, farið til Miðjarðarhafsins, eða eitthvert annað. Ég þekki náunga, sem gæti séð um fuglana og blóm- in. — En, ég veit ekki, það er ekki svo gott að taka svona ákvörðun ( fljótheitum. — Þetta er ósköp einfalt. Það er aðeins spurningin, hvort við eigum að flytja Alexander og geraníuna þína yfir til mín, eða Heilagan Jó- hannes og morgunfrúna mína yfir til þín. Persónulega hallast ég frek- ar að þinni íbúð, hún er stærri og sólríkari. — Er þetta það eina sem þú hef- ur í huga? sagði Katie, vonsvikin. — Nei, alls ekki, sagði John Graham fastmæltur, þreif utan um han og kyssti hana. Enginn virtist taka neitt eftir því. 19. nóvember, þegar Katie var ýmist rjóð af hamingju, eða föl af áhyggjum, hringdi sfminn. Hún greip hann í þeirri von að þetta væri John. — Fröken McTavish? sagði rödd sem hún kannaðist hálfpartinn við. — Já, sagði hún. — Þetta er Griffith lögreglufor- ingi; þér munið kannske eftir mér? — Já, ég man eftir yður. — Við höfum náð í manninn, þennan sem brauzt inn hjá herra Oliver, og sem þér gáfuð svo góða lýsingu af. Hann viðurkenndi allt og við tókum hann fastan í dag. — Ég óska yður til hamingju, sagði Katie, dálítið veiklulega. — Þakka yður fyrir. En nú verð- um við að biðja yður um að koma og staðfesta að það sé sami mað- urinn. — O, sagði Katie vesældarlega. — Þér þurfið ekkert að vera hrædd, þetta er bara formsatriði, það tekur ekki nema fáeinar mín- útur. Það er líka yður að þakka að við náðum í hann, þér lýstuð hon- um svo vel. — En ég ætla að fara að gifta mig ... — Ekki þó á næsta hálftíma? Oska yður til hamingju. — Nei, það er ekki fyrr en á morgun. — Þá ætti það ekki að stangast á. — Ég veit það. Hvernig átti hún að skýra það fyrir þessum leiðin- lega lögregluforingja, að þetta setti óneitanlega blett á hátíðisdag henn- ar. Meðan hún var að reyna að koma orðum að því, hélt hann áfram. — Yður hefur þó tæplega snúizt hugur. Herra Oliver var ekkert áfjáður, þegar þetta skeði, en mér fannst að þér legðuð mikið upp úr því að ná i manninn. Hversvegna eruð þér hikandi núna. Hefur yð- ur snúizt hugur? — Nei, nei, mér finnst að það eigi að refsa þeim, sem brjóta af sér. — Þá er þetta allt í lagi, fröken McTavish, ég sé yður þá eftir hálf- tíma ........ Hún þekkti hann strax. — Þér gáfuð svo góða lýsingu, sagði lög- regluforinginn. Hann stóð fyrir framan hana. Hún starði aftur inn í grá augu hans og horfði á djúpa skarðið ( höku hans. Hann var í svörtum vinnubuxum, köflóttri skyrtu og stuttum leðurjakka, sem var opinn að framan. Greinilega lánlaus ung- lingur, sem mundi lenda f fangelsi fyrr en seinna, þótt hann slyppi núna. En hún gat ekki fengið af sér að verða til þess að koma hon- um þangað. Það var honum að þakka að hún hafði kynnzt John. An hans væri enginn John, enginn Heilagur Jóhannes, eða morgunfrú í potti. — Jæja, fröken? sagði lögreglu- foringinn. — Mér þykir það leiðinlegt, sagði Katie McTavish, en þetta er ekki maðurinn. — Er þetta ekki maðurinn? Það er ómögulegt; það var lýsing yðar, sem kom okkur á sporið. — Mér þykir þetta ákaflega leið- inlegt, en þetta er alls ekki sami maðurinn. Hún horfði á unga manninn, áð- ur en hún gekk út. Hann virti hana fyrir sér og henni fannst það votta aðeins fyrir brosi í gráum augun- um . . . . ☆ Þeir voru ekki mat- vandir á kútter Haraldi Framhald af bls. 17 öllu öðru sem við mig var sagt. Ég var ráðinn sem kokkur. Ég var 14 ára og kunni ekki að elda graut. Hinsvegar gat ég soðið vatn áfallalaust. Einu sinni fór skipstjóri f land að sækja vistir og kom aftur um borð með hálfa kú. Karlarnir röðuðu sér á lunninguna og bauluð allir í einum kór. En það var ekki hlaupið að því að ná belj- unni sundur, það var ekki til nema kolaöxin um borð og svo var barið á henni með hamri svo úr þessu varð bankabuff. Og allt var það étið. Þeir voru ekki matvandir á kútter Haraldi. Og bragurinn, þessi sem allir kunna, han var ortur þennan vetur sem ég var á kútt- ernum ,hann ortu þeir sér til gam- ans Geir skipstjóri og Nikulás frændi minn og kannski fleiri hafi lagt orð í belg. Þetta var bara kátlna f körlunum í lúkarnum, stund- um héldu þeir álfadans og drógu þá blikkfötur stafna á milli svo engin leið var að sofa niðri. Svo var það eitt sinn að við vor- um sunnan við Eldey að skipið sló úr sér kalfattina og innan skamms var það orðið hálf-fullt af sjó. Við Ronson EINKAUMBOÐ: I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F. REYKJAVÍK 47. tbi. VIKAN 37
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.