Vikan


Vikan - 24.11.1966, Blaðsíða 56

Vikan - 24.11.1966, Blaðsíða 56
VAMASTA06FJðLBREVTTASH CimiKlfl t MARKAMM. 5 ÁRA ARVRGO. tLunMöra Viö bjóöum yóur aó skoöa stærstu sýningu á eldhusum her k landi. Tvö eldhus ásamt þvotta- og vinnuherbergi til sýnis i sýningarsal okkar SÍ-DUMÚLA11. Sióumúla 11-20885 PDGGENPflHL ELDHÚS legur og beiskur, að manni lá við að örvænta. Sheba hafði komið sér fyrir hjá Charles og talaði við hann lágum rómi. Fay var illa við að sjá þau saman. Gátu þau reitt sig á Charles? Mundi hann nú ekki segja Shebu allt, sem þeim hafði farið á milli í bátnum? Það var eins. líklegt, að hann gerði það, af því að hann var hræddur um sjálfan sig. — Var hann hræddur, eða var hann að látast? Hann var teprulegur. Auðvelt herfang fyrir hverja konu, sem hafa vildi. En þau þörfnuðust hans og flugvélar hans, ef þau ætluðu að komast undan. Það var sem sagt ekki fiskur, sem hafði ráðizt á Alan. Einhver hafði ráðizt á hann með hníf í sjónum. Þau sátu umhverfis bálið og horfðu inn í glæðurnar, sem voru að deyja út. Myrkrið féll skyndi- lega á, eins og gerist í hitabelt- inu. Himinninn var stjörnubjart- ur og tunglið var að koma upp. í bjarmanum frá eldinum voru andlitin óraunveruleg og um- hverfið var alls ekki hugnanlegt. Þessi svokallaða skemmtiferð var óviðkunnanlegur leikur — for- leikur að — hverju? Dauðanum ef til vill. Alan hafði orðið fyrir morðtilraun. Myndi verða ráðizt á hann aftur, og hvenær? Þau ur&u að komast undan. Það var greinilega auðveldast fyrir hana að hafa samband við Charles, vegna þess að hann var ástfanginn af henni. Og henni heppnaðist að komast í sama bát og hann, þegar þau réru þangað, sem bílarnir þeirra stóðu. Hún ávarpaði malayska ræðarann á ensku, en hann brosti og yppti öxlum til að sýna, að hann skildi ekki það sem hún sagði. — Ég get víst ekki látið mér detta í hug, að þú hafir yfirgefið mann þinn, allra sízt núna, þegar hann hefur orðið fyrir slysi, bara til að vera með mér? Svo það hlýtur að vera eitthvað fleira, sem þú vilt segja mér, sagði Charles. Hún lét sem hún heyrði þetta ekki. — Þú veizt væntanlega, að við verðum að komast af stað í hvínandi hvelli? Hann dró enn við sig svarið. — Ég reyni að komast í flug- skýlið snemma í fyrramálið til þess að líta eftir flugvélinni. Það á ekki að vera neitt athugavert við hana. Hún var flugfær, þegar við Mad komum. Hann lækkaði röddina, eins og hann vissi að drengurinn skildi í raun og veru allt, sem þau sögðu. — Ég held það sé bezt, að við fljúgum ann- að kvöld. Þegar ég fer út á flug- völlinn, get ég útvegað okkur bíl og látið hann koma á ákveð- inn stað úti á þjóðveginum. — Þetta lítur út fyrir að vera góð hugmynd. Ég segi Alan frá henni. Þau komu að landgöngubrúnni og innfæddur drengur hjálpaði þeim upp úr bátnum. Skömmu seinna voru þau komin aftur til plantekrunnar. Þau buðu fljót- lega góða nótt og fóru inn á herbergin sín, eins og þau væru að flýja frá einhverjum eða ein- hverju. Einhverju, sem allir hugsuðu um, einhverju, óútskýr- anlegu, einhverju, sem boðaði hættu — og dauða. Þegar Fay hreinsaði sár Alans inni á herbergi þeirra, sagði hún honum hvað Charles hafði sagt. Hann kinkaði kolli. — Ég vona, að það heppnist. Hann var mjög þreytulegur og hún vissi að hann var með hita. — En mér finnst að hann hafi verið alltof fljótur að samþykkja áætlun okkar, nema að þú hafir verið mjög sannfærandi, Fay, sagði Alan og horfði á hana blóð- hlaupnum augum. Hún minntist þess að hún hafði einnig orðið undrandi yfir því, hve fljótur Charles hafði orðið að samþykkja ráðabrugg hennar. Hún hafði orðið óróleg en ýtt því frá sér. — Það er einnig mjög áríðandi fyrir Charles að komast héðan, 56 VIKAN 47 íbl-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.