Vikan


Vikan - 24.11.1966, Blaðsíða 35

Vikan - 24.11.1966, Blaðsíða 35
að fá mér duftkaffi í undirskálalaus- um bolla. Hann tók koniakið upp úr vasanum. — Áttu glös? Katie sótti þau; þau voru líka dýrmæt og höfðu verið þó nokkuð dýr hjá herra Oliver. — Hve lengi höfum við verið ná- búar. Ég hefi oft verið að furða mig á því hvað þú gætir alltaf verið að skrifa, en ef ég hefi reynt að kom- ast að því, hefur þú alltaf komið þér undan. Bak við þau mældi Alexander Heilagan Jóhannes með augunum og Jóhannes var sýnilega afbrýðis- samur út af f jaðraskrauti Alexand- ers, sem honum hefur líklega fund- ist Ijómandi laglegt. En einhversstaðar nálægt Kings Cross, lá ungur maður, með djúpt skarð í hökuna, og steinsvaf í fata- hrúgu. í buxnavasa hans voru nokkrir þvældir seðlar, sem hann hafði fengið í skiptum fyrir þrjá hringi, af þeim var aðeins einn verðmætur .... Á næstu sex vikum breyttust lifn- aðarhættir Katie töluvert, þó var það allt á mjög reglubundinn hátt. John Graham kom í kaffi til henn- ar á hverjum morgni, klukkan hálf tólf, og hún fór yfir götuna, til hans á hverju kvöldi, klukkan hálf tíu, og drakk súkkulaðibolla. John var búinn að fá sér morgunfrú í pofti, til að skreyta hfá sér anddyrið. Heilagur Jóhannes var ekkert hrif- inn af þessum breytingum, það var eins og hann fyndi á sér að þetta kynni ekki góðri lukku að stýra fyrir hann. Sama var að segja um Alexand- er, hann leit hornauga til vatns- litamyndarinnar, sem nú skreytti einn vegginn hjá Katie. Katie sjálf, sem aldrei hafði ver- ið hrædd við einmanaleikann, var aftur á móti hrædd við ástina. Hún var búin að vera svo lengi ein, að hún var hrædd um að hún kynni hvorki að gefa eða þiggja á þeim vettvangi. Hún sem skrifaði um all- ar hliðar ástarinnar, var sjálf dauð- hrædd við hana. Katie flögraði kringum John Graham, eins og mölfluga sem leit- ar Ijóssins. Hún var farin að hafa áhyggjur af því að hann fyllti svo út í tilveru hennar að henni yrði ekkert úr verki við ritstörfin, og þá yrði endirinn sá að hún gæti ekki einu sinni borgað húsaleig- una. Svo var það einn laugardags- morgun að þau voru bæði úti að verzla, og á ekki rómantfskari stað en hjá grænmetissalanum, þegar John sneri sér allt í einu að henni og sagði: — Hvenær eigum við að gifta okkur? — Gifta okkur? hafði hún eftir honum. — Já, gifta okkur. Með þessum lifnaðarháttum okkar kem ég engu í verk. — Er það það, sem þú hefur áhyggjur af? spurði hún, hálfmóðg- uð, en gleymdi því að það voru Firir 500.oo króoor ó oióooði ootið bór oiooozt stóro ALFRJEDIORDADOKINA NORDISK KONVERSATION LEKSIKON sem nú kemur út að nýju á svo ótrúlega lágu verði ásamt svo hagstæðum greiðsluskilmálum, að allir hafa efni á að eignast hana. Verkið samanstendur af: Stórum bindum í skrautlegasta bandi, sem völ er á. Hvert bindi er yfir 500 síður, innbundið í ekta „Fabela", prýtt 22 karata gulli og búið ekta gullsniði. f bókina rita um 150 þekktustu vísindamenn og ritsnil I ingar Danmerkur. Stór rafmagnaður Ijóshnöttur með ca. 5000 borga- og staðar- nöfnum, fljótum, fjöllum, haf- djúpum, hafstraumum o.s.frv., fylgir bókinni, en það er hlutur sem hvert heimili þarf að eign- ast. Auk þess er slíkur Ijóshnött- ur vegna hinna fögru lita mesta stofuprýði. VIÐBÆTIR: Nordisk Konversa- tions Leksikon fylgist ætíð með tímanum og því verður að sjálf- sögðu framhald á þessari út- gáfu. Verð alls verksins er aðeins kr. 6.700,00. Ljóshnötturinn innifal- inn. GREIÐSLUSKILMÁLAR: Við mót- töku bókarinnar skulu greiddar kr. 700,00 en síðan kr. 500,00 mánaðarlega ,unz verkið er að fullu greitt. Gegn staðgreiðslu er gefinn 10% afsláttur, kr. 670,00. Bókabúð N0RÐRA Hafnarstræti 4, sfmi 14281. Undirrit., sem er 21 árs og fjárráða óskar að gerast kaup- andi að Nordisk Konversations Leksikon — með afborgunum — gegn staðgreiðslu. Dags........ Nafn .................. Heimili ............... ............ sfmi ..... 47. tw. VIKAN 35
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.