Vikan - 24.11.1966, Blaðsíða 41
þangað til vísarnir ó klukkunni eru
komnir ó tiltekinn stað. Ferð í
strætisvagni, stuttrar stundar bið
eftir viðtali eða eftir matnum ætti
að nota til hvíldar.
Einhver bezta aðferðin til hvíld-
ar, andlegrar og líkamlegrar, er
reglubundin hreyfing, eins og
gönguferð, sund, dans eða hjól-
reiðar. Sumt fólk gengur um til að
njóta litbrigðanna úti í náttúrunni,
sumir elta lítinn hvítan bolta til að
slá hann smáspöl í einu. Göngu-
ferð fyrir svefninn er eitthvert ör-
uggasta ráðið við svefnleysi. Þú
hefur e.t.v. heyrt hent gaman að
því, að sumt fólk geti ekki sofið
fyrir áhyggjum af svefnleysi sínu.
I þessu felst nokkur sannleikur.
Svefntöflur hafa orðið tízkufyrir-
brigði á síðustu árum. Aður komst
fólk af án þeirra. Og við vissum
ekki til þess að það háði neinum
að ráði. Það gæti verið, að fólk
hafi þá fundið, að stundir nætur-
innar gátu verið góður tími til ró-
legrar íhugunar, — ekki til að hafa
áhyggjur af því, að það svæfi ekki.
Rannsóknir á fólki, sem er hætt
störfum fyrir elli sakir, sýna, að
heilsufar þeirra, sem hafa haft
hreyfingu við vinnu sína, er miklu
betra en þeirra, sem hafa stundað
kyrrsetuvinnu .Því er það sjálfsögð
regla, ef þú vinnur starf, sem reyn-
ir lítið á líkamann, að nota hvert
tækifæri sem gefst til að ganga,
hjóla, dansa, synda, leika keilu-
spil eða golf.
A þeim allsnægtatímum, sem við
nú lifum, veitist mörgum erfitt að
halda þyngd sinni í eðlilegum
skorðum. Mataræði okkar er heldur
ekki eins og það á að vera. Mat-
aræði þýðir venjulegur dagskammt-
ur okkar og skipting hans á mál-
tíðir. Ekki það að éta yfir sig aðra
vikuna og svelta hina. Við vitum
öll, hve próteinefnin eru mikilvæg
til uppbyggingar og viðhalds líkam-
anum, og sömuleiðis söltin, eins og
kalk og járn, og fjörefnin, sem við
fáum úr ávöxtum, grænmeti og
mjólkurmat. Svo vel vill til, að
ekkert af þessari fæðu er mjög
fitandi.
En það eru kolvetnin, sem eru
aðalóvinurinn [ stríðinu við offit-
una. Sykur, ofmikið brauð og ann-
ar kornmatur, kökur, kex, búðing-
ar, vínandi. Þessar fæðutegundir
byggja ekki upp líkamann. Þeim
má líkja við bensínið, sem sett er
á bílinn. Ef þú fyllir geyminn
þrisvar á dag og notar vélina ekki
nógu mikið, flýtur út úr geyminum.
Sá er þó munurinn, að líkaminrr
bindur eldsneyti það, sem hann
fær umfram þörf, sem fitu. Eftir-
farandi ráð er ágætt til að léttast.
Margt feitt fólk borðar hratt, og
ef það minnkar við sig kolvetna-
fæðu, finnst því máltíðin orðin að
engu. Henni er lokið, áður en það
veit af. Nú skulu kolvetnin minnk-
uð um helming. Fáðu þér hálfa
brauðsneið, í stað þess að þú hefð-
ir undir venjulegum kringumstæð-
um fengið þér eina, eina skeið af
búðingi í staðinn fyrir tvær, en not-
aðu jafn langan tíma til að borða
helminginn og þú notaðir til að
borða fullan skammt. Tyggðu bet-
ur, njóttu bragðsins af matnum,
og þú finnur furðuiega lítið fyrir
því, að þú hafir borðað minna en
venjulega.
Lokaniðurstaða þessa spjalls um
þroskaárin, þetta tímabil lifandi
lífsnautnar, þegar fólk er nefnt
miðaldra, verður sú, að það hefur
þann stóra kost við sína ókosti, að
þú getur að miklu leyti ráðið því
sjálfur, hvort þeir verða þér til
baga. Allt og sumt, sem til þarf
til að losna við þessa ókosti, er
hvíldarstund á hverjum degi, reglu-
bundin líkamsáreynsla rétt matar-
æði til að halda hæfilegu holda-
fari og sígarettubindindi. Sé bætt
við þessa mixtúru vænum skammti
af áhuga á fólkinu í kringum þig
og lífinu ( heild, er þarna komin
hin ágætasta uppskrift að ánægju-
legu lífi, ekki síður en góðri heilsu
á þroskaárum þínum. ☆
Fjórar fullar
skeiðar, takk
Framhald af bls. 15.
fimm ár höfum við Zal haft söng-
inn að atvinnu og sungið allt frá
þjóðlagamúsik til rokk og ról. Ég
byrjaði að gutla á gítar, þegar ég
var 13 ára — um líkt leyti og
Elvis tók að láta að sér kveða.
— Við fengum leiða á þessari
músik — rokkmúsik á ég við —
því að margt nýtt kom til sög-
unnar. Við köllum músikina okk-
ar skemmtimúsik, því að við
skemmtum okkur svo vel, þegar
við leikum saman.
Hljómsveitin er óútreiknanleg.
Með hverri nýrri hljómplötu
kemur fram nýr stíll. Þessi stefna
The Loving Spoonful — að forð-
ast stælingar á fyrri lögum —
hefur skapað þeim stóran aðdá-
endahóp. Og hann stækkar í sí-
fellu.
Fjölhæfni hljómsveitarinnar
lcemur vel fram í samanburði á
laginu „Daydream" og nýjasta
laginu „Summer in the City“.
Ef þú skyldir verða þess að-
njótandi að sjá þá koma fram á
hljómleikum, muntu fljótt
gleyma, að þeir klæða sig eins
og fígúérur í teiknimyndaseríu
— að augnabæturnar hans John
Sebastian minna á augnabæturn-
ar hennar langömmu þinnar. Þú
hlustar aðeins.
SIGMAR & PALMI
Hverfisgötu 16A, sími 21355
Eg parf ekki að líta á vigtina
því ég stjórna matarlystinni með Trimmers
Nýja Trimmetts Trimmers kexið hjálpar yður að grennast á nýjan
hátt.
Það stjómar matarlystinni. — Þér njótið máltíðanna áhyggju-
laust því að þér þarfnist minna magns fæðunnar en áður.
Borðið tvær til þrjár kökur af Trimmers — með mjólk eða tei —
hálftíma fyrir mat, yður er óhætt að nota örlítið smjör með, matar-
lystin minnkar og þér neytið nægju yðar á máltíðum án þess að
hugsa til vigtarinnar.
Haldið yður unglegum og látið Trimmetts Trimmers kexið gæta út-
línanna .
Trimmers kexið milli mála er lausnin.
Fæst í Apótekum.
Heildsölubirgðir:
G. ÓLAFSSON H.F.
Sími 24418.
47. tw. VIKAN 41