Vikan - 24.11.1966, Blaðsíða 36
Herradeild
nékimil:
★ Nýjasta tízka í stuttfrökkum.
★ GrófriflaSar flauelsbuxur.
★ Rúllukragapeysur, þykkar
og þunnar.
★ Jakkaföt — Nýjasta tízka.
★ Vesti — Mikið úrval.
★ Bindi, 10 tegundir.
★ Stakar buxur — Urval.
★ Stakir jakkar — Urval.
★ Þykkir sokkar, margir litir.
★ Buxnadragtir, úrval.
★ Stakar buxur, 10—15 gerðir.
★ Kápur.
★ Kjólar.
★ Stuttjakkar.
★ Peysur, fjólubláar.
★ O. m. fl.
SM 12330
ww
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl)*
Þú stendur í stað og tekur engum íramförum. Þú ert
leiður í starfi þínu og þér finnst flest ganga á móti
þér. Þú verður þátttakandi í meiriháttar gleðskap,
sem hefur góð áhrif á þig.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Mörg kvöld vikunnar verða skemmtileg. Þú byrjar
á nýju viðfangsefni sem þú hefur mikinn áhuga
fyrir. Þú nærð betri árangri í starfi þínu, en þú
hafðir haldið. Kenndu ekki öðrum um mistök þin.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Þú ert þátttakandi i leik sem þér finnst spennandi
í fyrstu, en þú verður fljótt fyrir vonbrigðum með
félaga þína. Þú hefst óvenjulítið að og lætur þér
hálfleiðast. Heillalitur er blár.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Þú lifir á einhvern hátt óvenjulegu lífi í vikunni.
í heild verða kvöldin jákvæð, og skaltu notfæra
þér þau, eins og þú getur, til að koma vilja íínum
á íramfæri. Heillatala er þrír.
II
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Það ríður á að þú sýnist í góðu jafnvægi og sért
lítillátur, en gættu þess að ýkja ekki. Þú færð tæki-
færi sem þú getur notfært þér á ýmsa vegu. Heppnin
verðúr með þér, en farðu samt varlega.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Þú ert önnnum kafinn og verður að vanrækja ýms-
ar skyldur þínar Þú verður að súpa seyðið af fljót-
færnislegum gerðum þínum. Félagi þinn kemur ekki
heiðarlega fram við þig.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.):
Ýmsar hugmyndir þínar eru nokkuð fjarstæðu-
kenndar, en þær eru þó sumar þess virði að fram-
kvæma þær, það gæti orðið ágætis skemmtun. Vikan
er vel fallin til skemmtana og hvers kyns gleðskapar.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Reyndu eftir megni að temja þér skynsamari vinnu-
aðferðir. Þú gætir komið helmingi meira í verk ef
þú skipulegðir tímann betur. Iteyndu að vera sem
minnst upp á aðra kominn. Treystu á sjálfan þig.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ógúst):
Þú hefur áhyggjur af nokkru, sem þú þorir ekki að
trúa neinum fyrir. Til að létta svolítið á þér gætirðu
farið í kring um efnið, án þess að nokkurn grunaði
hið rétta. Þú ferð í óvenju skemmtilega ökuferð.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúarl:
Þú ert þreyttur af svefnleysi og vinnu. Þú verður
að fá meðhjálp eða ætla þér minna, annað gæti
haft alvarlegar afleiðingar. Þú kynnist eldri manni
sem vill þér vel. Heilladagur er föstudagur.
Meyjarmerkið (24. ógúst — 23. september);
Kunningi þinn þarfnast aðstoðar þinnar um sinn
og myndi samvinna ykkar hafa góð áhrif á báða.
Það hvílir einhver leynd yfir gerðum félága þinna
í vikunni, vertu ekki of forvitinn.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Víkan verður ánægjuleg fyrir yngri kynslóðina.
Þú kynnist nýjungum sem hertaka hug þinn. Kunn-
ingjahópur þinn breytist nokkuð. Þú lætur af ein-
hverjum rótgrónum ávana.
36 VIKAN
47. tbl.