Vikan


Vikan - 24.11.1966, Side 22

Vikan - 24.11.1966, Side 22
•••Þap hefur verið httrkulið á tíðum — Svo maður verður að standa klár á því að athafna sig í rokinu. — Já, ég fékk þarna ágæta reynslu. — Ekki ferðu á honum til Eyja? — Jú, jú, ég fer á honum á milli. Við höfum farið á honum fimm flestir. — Hvað getur hann borið marga? — Hann getur eiginlega borið eins og í hann kemst. Ég hefi einu sinni keyrt hann fullan af sjó, og það skiptir engu máli. Hann er bara ekki eins hraðgengur. — Hann sekkur ekki? — Nei, nei. Hann er mjög góður, þó að hann sé ekki stór. Ég hefi t.d. siglt á honum upp Holtsósinn, alveg upp að þjóðvegi. — Hver á þennan bát? — Surtseyjarfélagið. — Er þetta dýrt? — Hann kostaði rúm 45 þúsund, báturinn sjálfur fyrir utan mófor, með honum kostar hann 60 þúsund. — Menn hafa keypt sér annað eins fyrir sport. — Já. Ég mundi segja að þetta væru tvímælalaust betri bátar, en t.d. trefjabátar. Það er miklu betra að eiga við þessa, þeir eru miklu öruggari, og er ekki eins hætt, við að hvolfa. Til afnota á sió, eru þessir bátar miklu betri. Við höf- um siglt í allar eyjar þarna í kring, tekið hann upp í þær flestar. Við höfum farið til fýla og súlu og auð- vitað veitt á honum þarna fyrir ut- an. Svo hefur hann mikið verið notaður í sambandi við rannsókn- irnar. Dr. Sigurður Jónsson, pró- fessor við Sorbonne-háskóla, þör- ungafræðingur, hefur notað hann mikið, og ég hefi verið með hon- um. — Við rannsóknir þarna um kring? — Já, hann hefur kannað þarna allt botndýralífið, ekki eingöngu það, heldur alla þörunga þarna um kring, og það eru um 80 eða 90 . tegundir. Það eru verulegar slægj- ur. — Þú hefur náttúrlega mallað ofan í þig sjálfur? — Já, það má nú segja það, en ég hefi oftast reynt að koma því á aðra. Frh. á bls. 26 Myndin til hægri ofan við stóru mynd- ina sýnir hluta af 16 fcrmetra kaðia- mynd, sem Árni hefur gert í hús- inu og táknar heimana tvo. Á stóru myndinni er svo Pálsbær, sem heitir svo eftir Paul S. Bauer, bandarískum visindamanni, sem mest eínstaklinga hefur gcfiö til hyggingarinnar. í bak- sýn er Bólfell. Fremst á myndinni leggja þeir Guðmundur Sigvaldason, Robert Decker og Gunnlaugur Elías- son af stað að safna gasi úr hrauninu. Setið að snæðingi í húsinu. Tali.ð frá vinstri: Halldór Kjartansson, jarð- fræðistúdent, Guðmundur Sigvaldason, jarðeðlisfræðingur, Gunnlaugur Elías- son, efnafræðingur, Robert Dcckcr, Iirófessor i jarðfræði við Dartmouth liáskóla í Hannover, New Ilampshire og loks Árni Johnsen. Að neðan til hægri situr Árni í miðskipinu. Stól- arnir cru eftir hann, gcrðir úr kaðli og furu, og tók lengri tíma að teikna þá að smíða. Til hægri er mynd úr eld- húsi, scm Árni hefur einnig innréttað. Að neðan til vinstri grípur Árni i gítar cins og fyrir kom á síðkvöldum.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.