Vikan - 19.09.1968, Side 2
BOOBBT KBISTJiHSSON 4k CO. UF.
SfMI 11400
ane
ÞÉR FÁIÐ EKKI ANNAÐ BETRA
í BORGARSJÚKRAHÚSIÐ VAR EINGÖNGU NOTAÐ
THERSVIOPANE EINANGRUNARGLER
Stærri meðalbú
Þegar þetta er ritað, lítur út
fyrir að bændur ætli sjálfir
að ákveða verð á framleiðslu-
vörum sínum eða stöðva sölu
á þeim, verði verð þeirra ekki
samþykkt. Verð á búnaðar-
afurðum hefur lengi verið
deiluefni og nú mun lang-
lundargeð bændanna vera á
þrotum.
Mér virðist, að þurrabúð-
arfólk geri sér almennt rang-
ar hugmyndir um það, hvert
peningarnir fara, sem það
lætur út fyrir búnaðarafurð-
ir. Það talar oft um, hve
ríkir bændurnir hljóti að
vera með þessum rokna prís-
um á kjöti og mjólkurafurð-
um. Það gleymist sem sé, að
þarna eru inni á milli marg-
ir milliliðir, sem þurfa sitt,
og það er elcki svo fámenn-
ur hópur, sem dregur iram
lífið á þeim mismuni, sem er
á búðarverði búnaðarvara og
því, sem bændur fá.
Þar að auki er búskapur
mjög dýrt fyrirtæki. Ég gerði
mér til gamans um daginn
— eftir pésum sem ég fékk
á búnaðarsýningunni — að
reikna saman, hvað sá véla-
kostur kostaði, sem þarf til
að hægt sé að reka sómasam-
legan búskap með nægilega
fáum höndum nú til dags.
Ég reiknaði með 20 kúa eða
200 kinda búi sem lágmarks-
stærð, og útkoman varð rétt
um 600 þúsund. Það þarf
nokkurn afrakstur til að
kaupa þann vélakost, og svo
þarf að afskrifa hann og
halda honum við. í þessu
reiknaði ég aðeins nauðsyn-
leg tæki, en ekki þau, sem
þar að auki væri æskilegt að
hafa.
En ég er líka sannfærður
um, að hér á landi er allt of
mikið um smáhokur, þannig
að ..meðalbúið" er allt of lít-
ið. Ég hygg, að það væri til
mikilla bóta fyrir bænda-
stéttina, og búin væru iafn-
aðarlega stærri, eða jafn stór
og ein fjölskylda getur mögu-
lega annað með nauðsynleg-
um vélbúnaði. Sú stærð, sem
ég greindi að framan, ætti að
vera lágmarksstærð búskap-
ar.
2 VIKAN 37- ‘w-