Vikan


Vikan - 19.09.1968, Blaðsíða 20

Vikan - 19.09.1968, Blaðsíða 20
í Bandaríkjunum, stprveldi velferðar og hagsældar, búa tíu milljónir manna við svo slæm kjör, að þeir hafa hvorki í sig eða á. Þetta samsvarar því, að tíu þúsund íslendingar, jafnmargir íbúum Akureyrar, byggju við hungur og klæða- leysi. FÁTÆKTIN j BAHDARIKIUWUM „Brjótið niður gamla heiminn", stendur í blaðinu sem negrinn heldur á. Úr fátæktinni í Suð- urríkjunum flytja þeir svörtu til stórborganna norður frá, þar sem þeir verða öreigar — en þar eru þó meiri möguleikar á þjóðfé- lagshjálp. En meira en þriðjung- ur fátækra negrabarna elst upp með öðru foreldranna aðeins. í ljóði eftir Hannes Sigfússon stendur, að Bandaríkjamenn, sem séu hálft sjötta prósent jarðarbúa, hafi sér til fram- færslu sextíu prósent auðæfa jarðarinnar. Hvað sem þeim prósentureikningi líður, þá leik- ur enginn vafi á því að Banda- ríkin eru langrikasta land heimsins. Þessar tvöhundruð milljónir manna eiga sextíu milljónir bíla og sjötíu milljónir sjónvarpstækja, þar af tíu mill- jónir litvarpstækja. Meðaltekjur á fjölskyldu eru átta þúsund dollarar um árið, sem samsvarar eitthvað fjögur hundruð og fimmtíu til sextíu þúsund ís- lenzkum krónum. Meðallífskjör- in í þessu landi eru betri en í nokkru landi öðru. En þar með er ekki öll sagan sögð. f þessu stórveldi velferð- ar og hagsældar búa tíu milljón- ir manna við svo slæm kjör, að Kennedy hóf myndun hers, er stríða skyldi gegn fátæktinni. Margir foringja þess liðs hafa yfir milljón króna í árslaun. í New Jersey veitti hið opinbera þeir hafa hvorki í sig né á. Þetta samsvarar því að tíu þúsund ís- lendingar, jafnmargir íbúum Akureyrar, byggju við hungur og klæðaleysi. Og til viðbótar þessum soltnu og vannærðu tíu milljónum eru í þessari paradís auðæfanna og forustulandi lýð- ræðisins tuttugu milljónir manna, sem að vísu teljast hafa nóg til fæðis og klæða — en nákvæmlega ekkert þar fram- yfir. Þetta svarar til þess að þrjátíu þúsund íslendingar, jafn- margir íbúum Akureyrar, Kópa- vogs og Hafnarfjarðar saman- lagt, lifðu við sárustu örbirgð og væru jafnvel veikir eða miður sín af hungri. En til allrar guðs- iukku erum við ekki svo langt komnir í velferðinni, þrátt fyrir alla okkar ameríkaníseringu. Bandarísk stofnun, sem kall- ast Krossferð samborgaranna gegn fátæktinni, birti nýlega sextíu og sjö þúsund dollara til fátækrahjálpar, en af því fóru fimmtíu og tvö þúsund í laun og annan rekstur.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.