Vikan - 19.09.1968, Page 12
SÍÐASTA ELDSPÝTAN
Lögreglulæknirinn rétti úr sér.
— Kyrkt, sagði hann. — Blettirnir á hálsinum, andlitsliturinn, allt bendir til þess. En krufningin leiðir
í Ijós hvort kyrking er eina dauðaorsökin. Það er erfitt að segja hvenær glæpurinn hefir verið framinn,
ég gizka ó að hún hafi lótizt fyrir rúmu dægri, það gæti þó verið lengra síðan. Það er hvergi sár ó henni,
svo blóðið í lófa hennar hlýtur að vera úr morðingjanum. Hún hefir liklega klórað hann í sjálfsvörn.
Rispan sem hann hefir fengið hlýtur að hafa verið nokkuð stór. Læknirinn hristi höfuðið. — Þetta er
ógeðslegt, sagði hann, — ég vona að menn yðar verði fljótir að komast á sporið.
r
Á BORÐI VIÐ HLIÐINA Á GRÖNNUM LÍKAMA
LÁTNU KONUNNAR STÓÐ GEYSISTÓRT,
GYLLT PÁSKAEGG, SKREYTT MARGLITUM
BÖNDUM.
BAK VIÐ HANA KOM í LJÓS LÍTIÐ
HRÆÐSLULEGT ANDLIT. ÞAÐ VAR 10-11
ÁRA TELPUKORN, SEM STÓÐ ÞARNA,
ANDLITIÐ STIRÐNAÐ AF HRÆÐSLU.
V________________________________________________
Læknirinn fór. Ljósmyndarinn og tveir rannsóknarmenn fóru að koma tækjum sínum fyrir og byrja á
að rannsaka herbergið.
Hawser lögreglufulltrúi stóð kyrr um stund og virti fyrir sér stofuna, áður en hjálparmenn hans fóru
að hreyfa hlutina úr stað. Unga konan lá, eins og tuskudúkka, á armbrík eins hægindastólsins. Á borði
við hliðina á grönnum líkama látnu konunnar stóð geysistórt, gyllt páskaegg, skreytt marglitum böndum.
Það var næstum ósiðlegt að sjá þetta yfirskreytta páskaegg á þessum stað.
Hawser sneri sér að húshjálpinni, snoturri, myndarlegri konu um þrítugt. Það var hún sem kom fyrst
á staðinn og hringdi til lögreglunnar. Hún hafði staðið allan tíman, síðan þeir komu, á sama stað og
haldið sér í hurðarhúninn. Bak við hana kom í Ijós lítið hræðslulegt andlit. Það var 10 — 11 óra telpu-
korn, sem stóð þarna, andlitið stirðnað af hræðslu. Hawser kinkaði kolli til telpunnar og brosti vingjarn-
legu brosi. — Við skulum koma fram í eldhús, frú Bond, það er nafn yðar, er það ekki?
Konan jánkaði því, opnaði dyrnar og ýtti telpunni út fyrir. — Farðu heim, Beryl, sagði hún lágt, en
telpan reif sig af henni, skauzt á undan fram I eldhúsið, hljóp að glugganum og hélt sár dauðahaldi í
gluggapóstinn, eins og hún væri hrædd um að verða fjarlægð með valdi.
— Setjist niður, frú Bond, sagði Hawser, — og segið mér frá öllu, eins nákvæmlega og þér getið.
Hvenær komuð þér hingað í íbúðina?
— Klukkan 10, eins og ég er vön. Mér þykir óþægilegt að koma svona seint, en frú Rivers annaðist
gestamóttöku á veitingahúsi, og vann oft lengi fram eftir, svo hún svaf til klukkan ellefu og tólf. Ég
byrjaði alltaf í eldhúsinu og reyndi að trufla hana ekki. Á mánudögum er venjulega mikið af óhreinu
leirtaui, en í þetta sinn var það óvenjulega lítið, svo ég var fljót að Ijúka því af. — Læðztu inn [ stofuna,
sagði ég við Beryl, — og gáðu hvort ekki eru einhver óhrein glös eða öskubakkar þar. En stelpan neit-
aði að gera þetta, sem betur fór! Frú Bond leit á telpuna, sem ók sér af feimni.
— Já, og svo?
— Svo fór ég sjálf inn, guð hjáipi mér, þvílíkur hryllingur! Frú Bond hristi sig. — Full, hugsaði ég, en
ég hafði aldrei séð hana drukkna, í þau tvö ár sem ég hefi unnið hjá henni, og svo fannst mér eitthvað
skrítið hvernig hún hékk yfir stólbríkina. ... Ég gekk til hennar og tók í öxlina á henni.
— Verið þér róleg, frú Bond, sagði Hawser. — Það liggur ekkert á.
— Þetta er allt, sagði hún. — Ég kom telpunni fram í eldhús og hringdi til lögreglunnar.
— Þú sagðist ætla að hringja í lækni, sagði Beryl, sem ennþá stóð og hélt sér í gluggapóstinn, — en
það var ekki satt. Ég heyrði það vel! Hún leit ögrandi á móður sína.
Frú Bond leit á hendur sinar, glennti út fingurna, eins og tilfinningin fyrir því sem hún tók í væri þar
ennþá. — Ég hefði getað öskrað, en Beryl hafði fylgt mér eftir, og ég vildi ekki hræða barnið. Frú Bond
kyngdi, eins og öskrið sæti ennþá í hálsi hennar.
Frú Bond andvarpaði þreytulega. — Hún er í póskafríi, sagði hún við Hawser til skýringar, — og hún vill
alltaf koma með mér hingað, þegar hún á frí frá skólanum. Það er svo sem ekki mikil hjálp að henni
— Það er allt svo fallegt hér, sagði telpan. — Mér þykir gaman að vera hér.
— Frú Rivers var alltaf svo góð við Beryl, sagði frú Bond, — gaf henni oft sælgæti og ýmislegt smávegis.
Hún gerði mikið veður af henni og stundum lét hún hana syngja fyrir sig. Beryl er nefnilega í kirkjukórn-
um, sagði hún með sýnilegu stolti.
12 VIKAN 37-tbl-