Vikan - 16.01.1969, Síða 2
SMITH - CORONA
30 GERÐIR
Stórkostlegt úrval rit-og reikni-
véia tii sýnis og reynsiu i nýjum
glæsiiegum sýningarsal;
ásamt Taylorix bókhaldsvéium og
fullkomnum samstæöum skrifstofu-
húsgögnum
SKRIFSTOFUTÆKNI
.trniríla :i. níml :Ul t)00.
hbs
ELSTAR
DJÚPFRYSTINGIN
aukttt hagsýnt og
þœgindi
t heimilísrekstri
Elstar frystikisturnar 330 og 400 litra eru
fullar af tæknilegum nýjungum.
M. a. er ný einangrun Polyuretan, sem hef-
ur minnl fyrirfer8 en meira einangrunargildi
og kistan því stærra geymslurými.
Hraðfrysting er i öllum botninum auk hrað-
frystihólfs.
Kælistillir ræður ávallt kuldanum i kistunni,
en sérstakur hraðfrystirofi stjórnar djúp-
frystingunni.
Að sjálfsögðu er Elstar frystikistan með
lausum körfum, skilrúmi i botni, innri lýs-
ingu, segullæsingu, læstu loki og á hjólum
til hægðarauka.
Elstar fæst lika í stærðinni 114 litra fyrir
minni fjölskyldur.
ER FALLEG FRYSTIKIST/
VÖNDUÐ NIATVÆLAGEYMSLA OG VERÐIÐ SViKUR ENGAN.
Mótmæli
Mótmæla- og kröfugöngur eru
sterkasta vopnið, sem almenn-
ingur hefur í höndum, þegar
hann telur sig rangindum
beittan. Með því að grípa til
þess hefur hann oft á áhrifa-
ríkan hátt látið í ljós andúð
sína á aðgerðum stjórnar-
valda.
Eitt af því sem helzt ein-
kenndi nýliðið ár voru tíðar
mótmælaaðgerðir og róstur
um allan heim. Sér í lagi var
hér ungt fólk að verki með
stúdenta í broddi fylkingar.
Það var daglegt brauð að sjá
í sjónvarpinu hörð átök lög-
reglu og mótmælenda. Þetta
varð að eins konar faraldri,
sem gekk yfir heiminn.
Ekki var hægt að koma
auga á nein meginmarkmið
eða ákveðna stefnu í þessum
aðgerðum. Stundum virtust
mótmælin tímabær og eiga
fyllsta rétt á sér. En oftar
virtust tilefni þeirra harla fá-
fengileg, og stundum var jafn-
vel alls ekki unnt að gera sér
grein fyrir hverju væri verið
að rr.ótmæla.
Þ_ssi faraldur barst að
s’álfsögðu hingað til lands
eins og önnur tízkufyrirbæri.
Fámennur hópur baldinna
unglin^a hafði í frammi ólæti
með fáránlegum kröfuspjöld-
um og eggjakasti. Þessi mót-
mæli voru einber skrípalæti
og áhrifalaus með öllu. Þau
vöktu ýmist aðhlátur eða fyr-
irlitningu.
Þeir tímar kynnu að koma,
þegar málum er þann veg
farið, að almenningur s’ái sig
tilneyddan að mótmæla og
krefjast réttar síns. Þess
vegna er skaði, að beittasta
vopn hans skuli hafa verið
gert bitlaust með skrípalátum
og alvöruleysi.
\
ÁRMÚLA 3
SÍMI 38900
G. Gr.
2 VIKAN
4. tbl.